Færsluflokkur: Bloggar

Ég veit hver ástæðan er fyrir þessari hamingju kvenna

Ástæða þess að kvenfólk er hamingjusamast að staðaldri- þegar það er 28 ára- er að á því tímaskeiði reynir karlpeningurinn hvað mest við þær. Frumorsök hamingjunnar hefur ekkert með fjárhagslegt öryggi að gera eða hvort gráu hárunum fjölgi eins og hárvöruframleiðandinn Clairol vill reyna að halda fram. Vissulega gengur viðreynslan misvel hjá karlpeningnum en nær sjaldan þeim hátindi fullkomnunnar og neðanvert myndskeið sýnir.

 

 

ýttu hér 

 

 

Ýmislegt má læra af þessum herramanni í kurteisislegri hegðun og er ég staðráðin að taka hann til fyrirmyndar að öllu leiti. Það ætti að sýna þetta myndband í öllum skólum sem sýnibókadæmi um herramennsku og hvernig er æskilegt að hegða sér við dömur.

 

 


mbl.is Konur hamingjusamastar 28 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjónabönd enda oftast með skilnaði

 

Flest hjónabönd enda áður en þau verða nokkurn tíman að veruleika.Sem betur fer segi ég. Ef þau ná svo langt að komast upp að altarinu er best að þeim ljúki sem fyrst enda er hjónaband milli karls og konu ámóta fáranleg hugmynd og að koma hundi og ketti saman í skókassa. 

 

Skoðum dæmi- 

 

Prestur - Smile Jón villt þú gangast við Erúnu eins og hún er er og vera hennar maður til eilífðarnóns. 

 

Jón - Já InLoveHeart

 

Prestur- Jón og Eirún ég lýsi ykkur hljón og nú máttu kyssa brúðuna og taka við öllum hennar skuldum.

 

Jón- Gasp UUU ha skuldum ?

 

Eirún-Angry Jón við vorum búin að tala um þetta 

 

Jón- ErrmUUU nei um hvað ertu eiginlega að tala

 

Eirún- Happy Nú að þú tækir við öllum mínum skuldum

 

jón- Crying Heyrðu .... ekkert svona kjaftæði. Ég fer fram á skilnað.

 

Eirún- Blush Nú jæja - samkvæmt skilnaðarsáttmála okkar þá átt þú að taka þá við helmingi skulda minna. 

 

ENDIR

á vonlausu hjónabandi 

 


mbl.is Skildu á brúðkaupsdaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttamisræmi......í fjölmiðlum..

Stundum finnst mér eins og að fréttavægi fjölmiðlanna sé eitthvað örlítið brenlgað. Til að sýna hvað ég meina þá kom ég með dæmi um þrjár fyrirsagnir. Dæmin eru fréttir sem ég bullaði sjálfur  og setti ég þær upp í þeim tilgangi  að sína hvað ég á við með því að mér finnst misræmið sé oft örlítið rökskakkt.  

 

Fyrirsögn 1 

 

 

Hamstur

 

ANDAÐIST Í GÆR
 
7 ára að aldri .
 
Það má fullyrða að það ríki þjóðarsorg vegna þessa sorglega voðaatburðs en samkvæmt óáræðanlegum heimildum mbl.is liggur húsasmiður undir grun sem var að vinna í grend við slysstaðinn en samt sem áður neitar sökudólgurinn allri sök. "málið er í rannsókn" segir rannsóknarlögreglumaðurinn Tryggi Gunnarsson og hyggst taka málið til meiri íhugunar og komið hefur til tals að berja húsasmiðin til þess að játa."Það virkar alltaf betur að fá fólk til að játa með því að puttabrjóta það" útskýrði Tryggvi Gunnarsson 

 
 
Fyrirsögn 2 
 
 
 Brytney spears sást í nýjum brjóstahöldurum.
 
 
Þeir voðaatburðir gerðust í gær að Brytney Spears birtist út í búð í Orlando með órakaða handakrika. Það sem er enn þá alvarlegra í þessu útlititsmáli var að poppdívan var í nýjum brjóstahöldurum sem pössuðu engan vegin við líkams vöxtin.  "það er skömm af þessu" svaraði tískuhommalöggan Joan Jease og hyggst ekki bjóða henni í næsta partí sitt ef hún dirfist láta klæða sig svona í framtíðinni. 
 
 
Fyrirsögn 3 
 

 
Ísland er orðið gjaldþrota 

Ísland verður tekið til þrotaskipta eftir um það bil 2 klukkutíma.Nauðaflutningar hefjast á morgun og verður lokið um hádegi þegar síðasta flugvélin flýgur burt af Leifsstöð. "við bara urðum að gera þetta" sagði Steingrímur J og glotti hressilega við tönn og tók Bjarni Ben formaður íhaldsins í sama streng. "Hei ekki kenna mér um þetta var Geir H Harde að kenna" bætti Bjarni við. Jóhanna Sigurðardóttir var hin léttasta er hún var innt af þessu smávægilega buferlamáli og sagði ekki væri öll von úti. "við íslendingar getum til að myndabyggt upp stræti í gautaborg í Svíþjóð við hliðina á Írönunum og skemmt okkur yfir því hvað við erum vonlaus í peningamálum."


Ég er með mynd af áflogunum um hvort það eigi að minnast jackson- Kræst hefur fólk ekkert annað til að rífast um ?

Ég náði myndum af slagsmálum sem brutust út í strætisvagni í Miami- Þegar fréttir bárust af andláti tónlistarmansins Michaels Jacksson og fólk fór að rífast um hvort að það ætti að minnast hans eður ei. Þökk sé mikillri mildi fór ekki verr en virtist í fyrstu.Mörgum var greinilega mjög heitt í  hamsi er talið barst að þessum ást-skræka- tónlistarmanni og mátti minnstu muna að blóð heit borgarasyrjöld brytist út.

 


KLIKKIÐ HÉR 

 

 

Eins og sést var mikil gjá á meilli deilenda,og ágreiningurinn óásættanlegur. Ég spái því að bandaríkin kljúfist eftir andlát þessa mans og það skelli á heimsendir.

 

Eigið góðar stundir

 

 

þangað til

  


mbl.is Lát Jacksons olli usla í strætisvagni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhappadrætti útrásavíkingins (villtu tapa þúsund milljörðum ?)

 

Ágætir íslendingar, nú er komið að því !  Óhappadrætti útrásavíkingsins. Komið og takið þátt, sama hvort ykkur líkar það betur eða ver. Óveglegir vinningar gætu verið  í boði í komandi tíð fyrir okkur íslendinga ef við borgum eða ekki borgum ekki fyrir vinninginn (icesave).

 

  • Gríðarleg kjaraskerðing
  • einelti af alþjóðasamfélaginu
  • fólksfækkun
  • Þjóðargjaldþrot
  • Eignarupptökur á íslenskum auðlindum
  • viðskiptabann
  • Fjallkonan verður tekin ósmurð í rassgatið af fangavörðum kapitalismans(Alþjóðargjaldeyrissjóðnum)

 

Allt í boði hins eiginhagsmunasama útrásavíkingsins sem skemmtir sér ávalt eins og kóngur á okkar kostnað. Ekki láta þig vanta og taktu þátt í þessari botnlausu vitleysu. Vertu ómálefnalegur þátttakandi í leiknum með því að kenna núverandi stjórnvöldum um ríkisábyrgð sem þau efndi ekki til og að þau skuli dirfast að reyna að taka til eftir valdasukk útrásarvíkingsins með báðar hendur fyrir aftan bak.
 

Með kærri kveðju-

 

Ó Happadrætti útrásavíkingsins.  

 


 


mbl.is Stofnar happdrætti um eigurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástæða þess að ég vil ekki láta tattoera mig.

 Sagan segir að einn snillingurinn vaknaði táttooeraður eftir fyllerí.Eitthvað virtist enskukunnáttan hafa skolast til hjá þeim sem mundaði pennan.Á annað handabakið hafði Tatooskrifarinn krotað  love en heat á hitt handabakið en........ ekki hate.

 

Ég væri í sjálfu sér ekkert á móti því að krota á mér líkaman með tússi í einhverju flippi en mér dytti ekki í hug eina sekóndu að tattoera mig.

Aldur og æfi eru mörg tímaskeið og eitthvað sem er framkvæmt á einu tímabili þykir grátbroslegt á öðru. Til að mynda er allt annað mál að vera 17 ára áhyggjulaus unglingur en 45 ára ábyrgur fjölskyldufaðir. Á vissum tímabilum er mögulega ótrúlegur töffaraskapur að vera krotaður einhverjum vegsummerkjum um allan líkamann en á öðrum skeiðum þykir sá hinn sami verknaður hlægilegur í augum fólks. Þessvegna forðast ég öll tatoeruð vegsummerki og vil hafa líkaman minn lausan við þau um alla lífstíð. 


mbl.is Stjörnustúlka viðurkennir ósannindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elvis hefði sagt .....

 

Ef einhver helvítis refur hefði reynt að narta í hann og stela af honum skónum sínum. 

 

Norðan monthaninn hefði sungið....

Ef ég væri væri hænuhana  grei ...

Ef ég væri hænu hana grei..

Þá myndi ég taka tófuna

og (bííííííííííb) henni undir rófuna

ef ég væri hænu hana grei. 

Whistling

 

Jimmy heandrix hefði sungið ...

jimi_hendrix_on_stage_fender_stratocaster

 

FOXY

 

 

 

LADY

 

 

ú

 

j

 

e

 

 


 

 

 

Ég aftur á móti hefði tekið upp síman og hringt í stelpuna sem ég er hvað skotnastur í og sagt við hana.

 

-Sæl gæskan... Þetta er ég ... Heyrðu..ég er að spá í að koma við á eftir og gefa þér efni í loðfeld og koma líka með kjöt sem við gætum hennt á grillið. Cool


ENDIR


 

 


mbl.is Refur stal 100 skóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég var sá fyrsti

............... Ég er sá fyrsti til þess að ganga um á Tiger blues sandölum um Reykjavík og ekki nóg með það - þá var ég einnig sá fyrsti sem gerði það í öllum heiminum. Aldrei hafði mbls.is samband við mig út af þessum merka áfanga og vakti athygli á því að hér væri um einstakan veraldar-atburð að ræða. Heimsmeta bók Gunnes hefur ekki enn þá hringt í mig til þess að fá þessi stórtíðindi staðfest og einhverra einkennilegra hluta vegna er Ólafur forseti ekki búin að næla fakaorðunni við brjóst vasa jakkafatana minna. 

 

Crying athygli heimsins er greinilega misskipt.

 

Ástæða þess að ég svo gallharður að ég fer hér með stórtíðindi er að ég hannaði þessa sanddala sjálfur og gaf þeim þetta þetta nafn. Ég hannaði þá reyndar skóna aðeins í huganum á eftir koma þeim niður á blað.  Atburðirinn sem ég lýsi hér að ofan á enn eftir að gerast í raunveruleikanum en það er ekki eins og það sé aðalatriðið. Ég er þegar búinn að ganga um á þessum Tiger Blues skóm mínum í draummúrum um gjörvalla reykjavík og ætti hverjum manni að vera það ljóst að það ætti að vera nægjanlegt til þess að fá hylli heimsins svona miðað við hvað mbl.is þykir greinilega vera fréttnæmt. 


 

 

 

 



mbl.is Svifið af Snæfellsjökli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ekkert er skemmtilegra en þegar börn segja sögur...

Ég á eina litla vinkonu sem er 4 ára gömul. Hún á til með að búa til sögur handa mér og hún lætur síðan móður sína skrifa hana niður. Ég hef skemmt mér konunglega við lesturinn á sögum hennar og haft einstaklega gaman af einlægni ungu dömunar. 

Undanfarið hefur móðir hennar verið kasólétt og fyrir tveimur dögum eignaðist móðirinn þríbura.  Söguleg skýring ungu stelpunar á því hvað gerðist þykir mér ansi skemmtileg og gat ekki annað en skellihlegið.  

 

"Einu sinni var stelpa sem heitir Margret sem átti rosalega góða og ofsalega feita mömmu. Mamma hennar var svo feit að hún gat ekki einu sinni labbað og varð bara að liggja í rúminu og það fannst stelpunni leiðilegt því hún vildi mamma léki við sig. En svo fór mamman á sjúkrahúsið af því hún var með barn í maganum og læknirinn skar stóra, feita, ljóta magann af mömmunni og hún fékk þrjú. lítil börn, en svo týndust þau og enginn fann þau. Margreti fannst það rosalega leiðilegt og vildi finna börnin sem voru í bumbunni en hún fann þau hvergi svo hún fór að gráta. Margret finnur ekki litlu börnin því læknirinn tók þau, en núna er mamma ekki lengur feit. Hún er bara aftur orðin falleg og góð og kann að labba núna."

 

það sem átti sér stað var að þríburanir voru settir tímabundið í öndunarkassa. Mamman er í raun tágrönn en var kasólétt og voru börnin hennar með miklar áhyggjur á því hvað mamma þeirra væri orðin mikil bolla er hún var orðin kasólétt.

önnur dóttir hennar sagði við þetta við mömmu sína þegar hún heimsótti hana á sjúkrahúsið.

 

 "Mamma mín núna máttu alveg koma og liggja í rúmið mitt og bjóða góða nótt og lesa sögu því núna ertu ekki lengur feit og brýtur ekki rúmið mitt því þú ert ekki lengur feit"

 

 


Könnunn ... takið endilega þátt

hvern af þessum brosköllum myndir þú vilja þiggja hjarta úr ? Heart þar að segja ef þeir væru raunverulegar persónur.


Devil 1.skrattinn- Forstjóri Helvítis og yfirmaður ilskunar. Helvíti fínn gaur svona að tjatta við en víst ótrúlega erfiður þess á milli-  MÚHAHAHHAHAHAHAHAHHHHAHA.

 

Ninja 2-Kúbeinn- Hann er kallaður þessu nafni því hann er gjarn á að berja fólk með kúbeini. Maðurinn er gjarn á að ganga með baefli á sér og nánast í hvert einasta skipti þegar hann gengur fram hjá búðarrúða þá brítur hann hana af gömlum vama

 

Bandit 3-.Sparkaður- Hét áður Starkaður en vegna mikilra ofbelishneigðar var hann endurskýrður af félögum sínum. Þetta fól á íslandsmet í því að berja fólk og starfar sem handrukkari.

 

Police 4- WMCA maðurinn- samkynhneigt Diskofrík sem vegna mikils gjálíferni er væntanlega með alla kynsjúkdóma sem fyrir þekkjast.

 

InLove5- ástsjúki Kvennaflagarinn- sem er allatf ástfangin af annari konu en hann er byrjaður að slá sér upp með og gjarn á að kyrkja konur ef hann slysast til að faðma þær.  

 

Shocking 6- Finnska fíflið- HUBBA BÚKKA BAKKA KALLA NEMA - Maðurinn gerir lítið annað en að babla tóma þvælu á samhengislausri finnsku sem gæti þýðst yfir á íslensku - "Hvað er froskur, hoppandi hummer í súrkálskássu." ásætðan hefur með ofneislu á LSD að gera og því ekki vinnandi vegur að getað rætt við hann um nokkurn skapaðan hlut.

 

Sideways 7-Herra hægri- Hann gengur ekki undir viðurnefninu vegna politískrar skoðunar heldur vegna þess að hausinn hans er svo skakkur. Orsök þess að hausinn er svo skakkur er hve oft hann hefur skallað fólk í rot. 

 

Halo8- Hvað gerði ég maðurinn ? útrásarvíkingur með meiru og því ekki með neitt sem kallast siðferði og því er honum fyrir munað að skilja sína sök. Hann er frægur fyrir setningar eins og "ó ó fyrirgefðu elskan en ég ætlaði ekki að ræna ömmu þína þetta var bara kækur." eða "æææ ææi keyrði ég yfir frænda þinn ég skal bjóða þér upp á bjór ef þú lætur ekki lögregluna vita."

 

 Angry 9- Rostinn- Eitt máttu eiga af rostanum en hann er alltaf í vondu skapi og því hefur hann svo sannarlega með staðbundið jafnaðargeð. Hann væri þolanlegur nema að hann á til með að bíta eyrun af afgreiðslu fólki og hrækja þeim síðan framan í það eins og mike tyson.

 

Wizard-10 Glaumgosinn- Hann skemmtir sér ávallt konungulega en undantekningarlaust á kostnað á annaarra-  hanna segir td. "Má ég ekki bjóða þér upp á bjór.. þú borgar ? og hann segir einnig "mikið roslega skemmti ég mér vel í gær við það að sjá þig vera lamin í klessu múhahahahhahaha þú varst alveg eins og gúmmiklessa í höndunum á þessum mönnum- " og hann bætir síðan við "Ha vildir þú að ég hringdi í lögregluna ? og eyðileggja allt gamanað - "Nei mér datt það ekki í hug en ég rændi af þér veskið því þú ert hvort eð er orðin öryggi núna og hefur því ekkert með peninga að gera. "


mbl.is Vilja síður þiggja líffæri úr morðingja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband