27.9.2009 | 14:12
Talandi dæmi um ósanngirni tilverunnar--
Einu sinni var hylla sem hét Hormákur sem stóð ávalt teinbein upp í loftið. Við hlið þessarar stolta innanhússmuns var kylliflatur sófi sem kallaði sig Beggi og var óvenju mikið hrekkjusvín í eðli sínu. Hann gat ekki horft upp á hve hyllan var hreikin af því að geyma bækur eiganda síns og átti erfitt með að leyna öfund sinni á henni.
-afhverju stendur þú þarna eins og standpína upp í loftið.

Spurði sófinn hylluna
-Afhverju liggur þú eins skata á sjávarbotni.

Svaraði hyllan sófanum um hæl
-ertu að leggja mig í einelti helvítis Ikea draslið þitt ?

spurði sófin bálreiður og henti pullu í hylluna.
Hyllan varð afar reið og sparkaði í sófan. Allt fór í bál og brand og húsgögnin misstu sig af bræði. Höggin dundu og innanstokksmunurinr lömdu hvorn annan í mél. Bókum hyllunar leyst ekki heimilisofbeldið og flúðu ofan í svartan plastpoka. þær hoppuðu síðan út fyrir dyrnar þar sem kunnur innbrotsþjófur var á gangi fyrir einskæra tilviljun. þjófurinn hélt að hann væri að gera samfélaginu greiða með því að taka saklausu menningarritin að sér og fara með þær heim til sín. Hann lét vel af þessum menningverðmætum og setti þær beina leið upp í hyllu.
þegar eigendur hússins komu heim urðu þeir skelfingu lostnir. Þeir voru sannfærðir að hér væri um innbrot að ræða og hringdu í lögregluna. Þegar lögreglan kom á svæðið var hún ekki lengi að komast að því hvar bækurnar voru að finna. Þeir fóru heim til saklausa stigamansins og gerðu bækurnar upptækar. Núna situr þessi innbrotsþjófur á bak við lás og slá en í þetta skipti fyrir þá sorglegu sök að húsgögn fóru að slást og bækur hafi leitað sér skjóls í örmum hans.
Frekar ósanngjarnt ekki satt ?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.9.2009 | 11:04
Þetta lag
.........er á geisladisk sem er verið að leggja lokahönd. Lagið er eftir mig og heitir Anti metro sexual en geisladiskurinn heitir Martraðaprinsinn.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2009 | 02:31
Privatherbergin..
í duldum dökkum herbergum
og Dr jenkle verður herra Hide
karlmenn verða að prinssessum
og trúðar fella tregatár
og tilveran hún gerist óréttmæt
á bak við læstar lokaðar dyr
þar lifnar óeðlið
og myrkraverur fremja enn eitt
ódæðið
fláir siðapostular sjást
þar sjúga kókaín
barnaperrar byrtast þar í sýn
Þjófarnir þeir skipta
ránsfengnum með sér
Svikarararnir leggja launráð
í duldum dökkum herbergjum
og Djöfullinn á létta stengi slær
englar verða að ófreskjum
og inn í mesta myrkrinu
er morðingi sem hendur sínar þvær
Á bak við læstar lokaðar dyr
þar lifnar óeðlið
Rót hins illa ræktar ávöxt
ranglætis
Dýrslostinn þar kemur í ljós
loftið rafmagnast
og góðmennin úr þurru umturnast
Tónlist | Breytt 26.10.2009 kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.9.2009 | 16:51
HAUUUUUUUUUUUUUUUUKAR ERU BESTIR....
Mtt lið! Hið yfirnátturulega fótboltafélag HAUKAR<--- eru komnir upp í úrvalsdeild eftir nokkurra áratuga bið. Ef mig réttminnir þá voru Haukar síðast meðal efstu liða í fótbolta um árið 1980 og því fyrir löngu komin tími til að uppáhaldsfótboltaliðið mitt komi sér aftur upp í úrvalsdeild karla. Þeir eru búnir að valsa á milli neðri deildir í allt of langan tíma og þar að leiðandi hið besta mál að Haukar séu komnir aftur í hóp þeirra bestu hérlendis.





![]() |
Haukar í úrvalsdeild með sigri á Selfyssingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
12.9.2009 | 14:39
Hvað með að hanna nýja dómsali ?
Vissulega þarf að efla dómstólana hérlendis en spurninginn er hversu harðir þeir ættu að vera. Svo hvað er til ráða ef við myndum vilja harðari dómstóla ? Ég er þeirrar skoðunar að ef dómstólar ætli að vera öflugri en þeir eru nú þegar- þarf að breyta hönnum dómsalarins sjálfs og byggja upp nýjan frá grunni. Ég ákvað því að búa til plastlíkan að dómarasæti sem væri aðeins meira ógnvekjandi en við þekkjum til daglega. Tilgangurinn minn með því athæfi er- að hver sá sem gegn dómaranum situr þori engu öðru en að segja sannleikan og vilji með minnsta móti reita dómarann til reiði.
Eða hvernig væri að hafa
Héraðsdóm
Reykjavíkur
SVONA ?
Myndir þú þora að ljúga að dómar sem væri á svona tryllitæki ef þú mættir fyrir dómstóla?
- Ekki ég allavega
Þar að auki þyrfti engan húsakost og eina sem lögmaður þyrfti auk hefðbundnar menntunar væri meirapróf til þess að gerast dómari. Sparnaðurinn væri því gígantískur fyrir ríkið og árangurinn vonandi þess valdandi að stigamenn hefðu ekki þor til neins annars en að segja sannleikann.
![]() |
Efla þarf dómstólana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2009 | 16:25
Víst er viðhaldið mitt einkamál
....... og það kæmi ekki einu sinni eiginkonu minni við- ef ég ætti eina slíka- hvað ég geri með viðhaldinu .Allavega! Ef ég vil að viðhaldið mitt fari í fegrunaraðgerðir þá sendi ég hana á næstu líkamsræktarstöð eða set plastpoka fyrir andlitið á henni. Einfalt mál! Það er nú eðlilegt að hún drapist niður með aldrinum en ég þvertek fyrir að það sé í mínum verkahring að punta hana upp. Hún getur séð bara um sig sjálf og ég tek ekki í í mál að einhver byggingarfulltrúi sé að vasast í mínum einkamálum.
Þú getur bara séð um þitt viðhald sjálfur
En ég ætla ekki að deila mínu viðhaldi með þér. Það eru klárar línur.
PIIIIIIFFF...
![]() |
Viðhaldið er ekki einkamál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.9.2009 | 03:17
Konum líkar þá ekki við medrósexual-karlpempíunar eftir allt saman.
Nýjustu rannsóknir hafa leitt í ljós að konum þykir karlmenn með svita vera kynþokkafullir. Mikið er ánægjulegt að heyra slíkar "greddufréttir" á tímum hreingerningafasismans, þar sem ætlast er til að karlmenn séu smúlaðir með snyrtivörum á bak við eyrun.
Halltu þér inni í eldhúsi tiltektartíkin þín- þér líkar við sveitta menn með stólpakjaft..
Kannski líkar konum best við "Herra Anty Medró Sexual" eftir allt saman, en ég skrifaði um þessháttar fýr á geisladisknum mínum Martraðaprininn sem er við það að verða að veruleika. Sá fýr er angandi af svitalykt og með þriggjadaga skegg en er ekki karlpíka úr plasti.
Anty Medró Sexual
Ég er antí metrósexual
er ekki í takt við tímann
Fyrir tískulöggum barbari og ómynd þeirra í senn
Ég er antí metrósexual
með hjarta hellisbúans
Hata karlkynspempíur og væmna metrómenn
Geng ekki í jakkafötum
né fínpússuðum skóm
Ég er antí metrósexual
með hárið oftast ógreitt
Angandi af svitalykt, með þriggja daga skegg
Ég er antí metrósexual
og naga mínar neglur
Með næpuhvítan hörundslit og órakaðan legg
Bringuhár á brjóstinu
og skán á hverri tönn
Fljóð sem að minna mig á tískublaðið Vogue
og anga eins og ilmvatnsprufur
Lyfta nefi, labba burt
og líta ekki á karlmenn eins og mig
Draumaprinsinn þeirra ferðast um á hvítum Porche
Því ástin spyr um stétt og stöðu
starfsheiti og menntatitil
eða hvernig fötin skapa þig
Ég er antí metrósexual
kvöð í augum kvenna
því ég kem ekki til dyranna sem tískuklæddur sveinn
Ég er antí metrósexual
ekki karlpíka úr plasti
sem puntar sig með húðkremi og er alltaf tandurhreinn
Nota hvorki hárfroðu
né demantseyrnalokk
JÁ by the way- ég er að fara að spila á tónleikum, mánudaginn 12 okt á Rosenberg.
![]() |
Kynæsandi svitalykt karla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.9.2009 | 21:29
Lífið er hægara en snigill.
Lífið er sem tré-
þó þú sjáir ekki tréið þróast, vex það samt....
Þannig fer lífið. Það er ósýnilega hægt en mjakast samt áfram....
Það virðist standa í stað en færist samt úr stað, á minni hraða en snigillinn...
En á hvaða leið er lífið að fara ?
Bloggar | Breytt 7.9.2009 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.9.2009 | 03:07
Ég er að spá í ????
Hvort bréfið sem hún jóhanna Sigurðardóttir, forsetisráðherra okkar eyjaskeggja klakalands, sendir Englendingum og Hollendingum vegna icesaveskuldbindingarinnar, verði einhvers konar ástarbréf og að sé á þessum nótum. Í því bréfi verði gert allt til þess að skjalla Englandsdrottninguna og liðka hana til með skjallyrðum.
þrýstu á spurningarmerkið til að sjá myndskeið um hvernig ég sé fulltrúa Englands og Hollands fyrir mér - er þeir fá þetta ástar bréf jóhönnu í hendur.
ENDIR
![]() |
Bréf til Hollands og Bretland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.8.2009 | 00:41
Túnglið er úr tréi.
Nýjustu sannanir benda til þess að máninn er úr tréi. Bráðum mun koma í ljós að Mars sé úr osti og Venus úr vínbrauði. Vísindamenn munu uppgvöta að sólin er eingöngu risastór lampi ofan í myrkvakompu og alheimurinn pinkulítil öreynd í tilraunaglasi.Um síðir mun uppgvötast að Jörðin, sé leiksvið og gjörsamlega kylliflöt. Það sé látið lýta út sem við séum óteljandi en í raun erum við miklu færri og allt sé þetta samsæri. Mannkynið er tilraunastarfsemi Guðanna og guðirnir séu í raun vísindamenn í rannsóknarstofu.
Hvernig í andskotanum getur homo sapiens verið svona heimskur
Já og með svona mikla ofurtrú á sjálfum sér á sama tíma
Hugsa vísindamennirnir með sér á þessum tíma og skilja ekki hvernig þetta mankyn geti komist áfram á sínum einkennilegu eiginleikum.
Ég vil því að gefnu tilefni segja þér sem þetta lest. Ef þú veist ekki af því þá er lífið eitt allsherjar samsæri gegn þér. Ég og allir hinir þykistu mannaparnir erum raun vísindamenn á tilraunastofu og erum gagngert að leika okkur með þig. Við erum að sjá hve lengi við getum spilað með þig áður en þú gerir þér grein fyrir því en þá hefst fyrst mesta grín brandarans.
VIÐ ERUM STJÓRNUÐ AF GEIMVERUM SEM ERU VÍSINDAMENN
Munt þú segja þegar stund sannleikans rennur upp. Fyrstu viðbrögð valdboðarans eru þá að stinga þér inn á hæli og láta þig dúsa þar til æviloka. Á sama tíma stöndum við vísindamennirnir í laumi og hlægjum okkur máttlausa
MÚHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
![]() |
Tunglgrjótið reyndist vera tré |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Halla Rut
-
Anna Einarsdóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Signý
-
Kreppumaður
-
Fríða Eyland
-
Heiða Þórðar
-
Bara Steini
-
Marta B Helgadóttir
-
halkatla
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sema Erla Serdar
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Björgvin
-
Bjarki Tryggvason
-
Jón Þór Ólafsson
-
Brissó B. Johannsson
-
Tinna Jónsdóttir
-
Sigurlaug Kristjánsdóttir
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Aðalheiður Ámundadóttir
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Ásgerður
-
Brattur
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Bergur Thorberg
-
Viktor Einarsson
-
Agný
-
Lady Elín
-
Guðfríður Lilja
-
Gunnar Axel Axelsson
-
Óskar Helgi Helgason
-
Sigurður Viktor Úlfarsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Matti sax
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
kiza
-
Huld S. Ringsted
-
www.zordis.com
-
Brjánn Guðjónsson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Jónína Dúadóttir
-
Páll Geir Bjarnason
-
Sigríður Hafsteinsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Stríða
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
S. Lúther Gestsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Ólöf Anna Brynjarsdóttir
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Sævar Einarsson
-
Gullvagninn
-
Kolgrima
-
Óskar Þorkelsson
-
Helga Dóra
-
Guðrún Birna le Sage de Fontenay
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Óskar Arnórsson
-
Kristín Jakobsdóttir Richter
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldóra Rán
-
Helga Magnúsdóttir
-
Guðrún Lilja
-
Mía litla
-
Íris Arnardóttir....vitringur
-
Þórhildur Daðadóttir
-
polly82
-
Andrea
-
Hdora
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Brynja skordal
-
SeeingRed
-
Benna
-
Villi Asgeirsson
-
Svartagall
-
Alfreð Símonarson
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Skattborgari
-
Aprílrós
-
Mál 214
-
Bwahahaha...
-
Isis
-
persóna
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Vefritid
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Hlédís
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Eva
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
brahim
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar