28.8.2009 | 00:26
Bull og steypuverksmiðja Brylla
Ég bíð í ofvæni eftir að umhverfis og iðnaðarráðherra landsins heimsæki "Bull og steypuverksmiðjuna" mína. Starfsemi smiðjunar gengur vonum framar - þó svo að það ári illa í samfélaginu. Hugmyndaskortur er ekki þekkjanlegur og hefur steypuvélin mín nóg að bíta og brenna. Skrítnu hugmyndastarfsmennirnir í hausnum á mér vinna daginn út og inn og hafa ekki við því að vinna úr hugflæðinu sem kemur úr hausnum á mér.
Jæja svandís... hérna eru starfsmennirnir mínir ...
Myndi ég segja við umhverfisráðherran á meðan ég sýndi henni mína helstu strafsmenn. Þar sem starfsmennirnir eru hugarrórar í kollinum á mér yrðu ráðherranir tveir að horfa framan í mig á meðan ég bullaði einhverja tóma helvítis steypu.
uu ??
Væri það eina sem myndi heyrast í ráðherrunum sem þyrftu að hafa sig alla við að sjá hvað ég væri að fara með þessari kynningu minni. Andlit ráðherranna yrðu furðulostin og fattleysið skyni í augum þeirra beggja. Á meðan væri ég hvergi banginn og léki mér við hvurn minn fingur.

-uuu DÖÖÖÖÖÖÖ þú meinar ís með smjöri ??
Spyr undimaðurinn sem væri einnig ég sjálfur og vildi vera viss um hvað yfirmaðurinn væri að fara. Hann myndi reyna allt til þess að misskilja verkstjóra sinn og gera þvert gegn því sem hann segir- enda bullukollur með eindæmum og einn einn besti starfsmaður verksmiðjunar.
nei nei hann er að tala um Harðfisk ... hann er í fiskabúrinu .
Segir sá þriðji og skilur ekki neitt í neinu.
Eins sést eru skrítnu starfsmennirnir í hausnum á mér sannkallaðir vinnuþjarkar. Ef allt gengi samkvæmt óskum væri hægt að markaðssetja mig sem umhverfisvæna hugmyndasteypuvél sem væri með svo háan ruglustandart að ég stæðist heimsklassagæðakröfur í bulli. Gróðin yrði það gríðarlegur að hægt væri að borga icesaveskuldirnar áður klukkan væri orðin hádegi föstudags á morgun. En verr og miður hefur umhverfisráðherran ekki haft samband enn sem komið er og verður því íslenska fjallkonan að sötra skuldasúpuna sem breska konungsfrúin býður henni upp á og japla á sinni hungursneið uns hún andast.
![]() |
Ráðherrar í Sementsverksmiðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
![]() |
Samkomulag í fjárlaganefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nú er mér öllum lokið. Það var engin skiljanleg ástæða fyrir því að reka hjúkrunar konuna Nancy fyrir að hafa enga menntun á sviði hjúkrunnar.Skýrsla sem ég komst yfir, sýnir bæði og sannar að hún var óvenjufær hjúkrunarfræðingur og vissi miklu meira um þetta starfssvið en flestar menntaðar starfssystur hennar.
Í skýrslunni stendur
Herra Foster lá í rúminu sínu. Hann þráði ekkert heitar en að láta vorkenna sér og kallaði því á hjúkrunarkonuna Nancy til að láta hjálpa sér.
Á Værir þú til í að kyssa á bágtið.
Sagði herra Foseter er hin kurteisa Nancy kom til hjálpar og byrtist honum sem frelsandi engill í sýn. Þegar Nancy sá hvað Foster var vorkunsamur á að lýta og ákvað að grípa til nauðsinlegra ráða.
Iss það er nú ekkert mál herra Foster.. ég er með ráð við svona smá eymslum-
Svaraði umhygjusama daman og tók stærstu upp gerð af vélsög. Hún kveikti á henni og gerði sig líklega til þess að saga fótin af- rétt eins og hún var vön að gera við slíkar aðstæður. Hún horfði til sjúklingsins með sínu undurblíðasta brosi en varð skyndilega furðulostin þegar hún sá hvað sjúklingurinn var orðin skelkjaður.
-HEI HEI HEI... abb BABB BABB ... hva hva hva HVAÐ ERTU AÐ GERA ?
Spurði vesalings maðurinn og skildi ekkert hvaðan stóð á sig veðrið. Þó Foster þótti Nancy hin kurteisa- fanst honum honum orka tvímælis að láta saga af sér fótinn fyrir að hafa gröft í öðrum leggnum..
Nú ég er að saga fótin af- sérðu það ekki
Svarði Nancy og átti erfitt með að skilja mótlæti sjúklingsins. Astæðulausar aðfinnslur Herra Fosters voru með eindæmum duttlungarfullar og í raun hégómi. Því var með öllu eðlilegt að Nancy greiið klóraði sér í kollinum enda gagnríni mansins uppfull af algjörum óþarfa.
hvar er læææææknir... Ég lækni eins og skot ?
Ó herra foster þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur... ég var kjörin hjúkrunarkona ársins árið 2008
Greip dásemdin hún Nancy og reyndi að róa niður asa mannsins með kvenlegri blíðu sinni. Hún dró hálsamálið frá og reyndi að sýna í íturvaxin brjóstinn í þeirri von að hann myndi fyrirgefa henni er hann starði rangeigur til þeirra.
Kannski slátrari ársins . EN NEI EKKI HJÚKRUNAR KONA:. það er HREINT og klárt MÁL
Svaraði Foster og emjaði sig hásan þar til að læknir kom á svæðið. Fyrir þetta saklausa athæfi var hún Nancy rekin frá störfum og eins og þið sjáið þá var það með öllu ástæðulaust.
![]() |
Upp komst um hjúkrunarkonuna Betty |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 9.8.2009 kl. 00:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.8.2009 | 13:20
Ekki skipta um nærbuxur í vísindaskyni.
Geimfarar eru slæmar fyrirmyndir. Þeir eru oftar en ekki kófsveittir innan í heitum búningi sínum er þeir sinna starfi sínu og eins gerðist með geimfaran Koichi Wakata- þá kemur fyrir að þeir skipta ekki um nærbuxur í heilan mánuð.Einstæðar mæður hvarvetna út um allan heim hafa orðið vitni af geigvænlegri þrifnaðaróæði af hálfu barna sinna. Sumum mæðranna er öllum lokið er þær lenda í þrasræðum við krakkaorma sína sem taka ... hvert orð sem geimfarafyrirmyndir þeirra segja í viðtölum og tileinka sér til hins ítrasta.
mamma- Bergvin viltu skipta um nærbuxur eins og skot
drengsi- Kemur ekki til greina mamma
Mamma- Afhverju ekki ?
Drengsi -Ég er að gera það í þágu vísindana
Mamma- Ha VÍSINDANNA
drengsi- Já eins og geimfaranir í nasa... þeir skipta ekki um nærbuxur í þágu vísindanna í heilan mánuð
mamma- OHH- afhverju gastu bara átt þér draum að verða róni eins og pabbi þinn ?
![]() |
Sömu nærbuxur í mánuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.7.2009 | 20:45
Hvað var jesú áður en hann fæddist.. ?
Fáir vita að Jesú Kristur var Rúnar Leopálsson áður en hann fæddist. Drengurinn stundaði skemmtannalífið af miklum eldmóði og með tímanum leiddist hann út í eiturlyfjaneyslu. Eftir að hafa prufað hinn og þessi "óefni" komst Rúnar að því að hassið væri líf hans og yndi og fór að púa kanabisefni eins og ofvirkur skorsteinn. Honum líkaði hvergi betur við sig en blokkaríbúð sinni í Breiðholti og stundaði þar mikið úthverfar íhuganir.
vá sjáið þessa gardínu maður
sagði Rúnar við sína verðandi lærisveina sem voru gjarnir að koma í heimsókn til þess að fíra eina feita með honum. Útúr reyktur mannskarin góndi svo klukkutímum skiptir á garðdínur íbúðar hans- auk þess að fá snilldar viðskiptahugmyndir sem þeir voru svo frábærar að þeir höfðu gleymt þeim öllum fyr um kvöldið.
Hei ég er með hugmynd... ég bara man hana ekki mar
Einn daginn komst Rúnar mjög merkilegri niðurstöðu. Hann uppgvötaði það að hann væri Jesú Kristur og sá að nýja testamenntið væri skrifuð um sig. Einhverra hluta vegna átti fólk erfitt með að trúa honum og þótti maðurinn galin en brást maðurinn við með þeim hætti að sýna þeim mikilfönglegt kraftaverk. Hann bauð félagaskara sínum að koma með sér niður á höfn og þar ætlaði hann að sýna að hann gæti gengið á vatni. Þetta var að vetri til um miðbik desember og því frekar kallt í veðri. Félagarnir létu þessa vitleysu eftir honum enda meira félagar heldur en vinir.
Far vel félagar-
Sagði Jesú og stökk í sjóinn.
Auðvitað sökk maðurinn á bólakaf og greip skelfing um sig í kjölfarið. Hringt var í lögregluna undir eins og tóks laganna vörðum að bjarga manninum frá dauðum með mikillri hetjudáð.
Núna er jesú komin inn á geðdeild og verður þar um ókomna tíð. Honum finnst vistin þar fín en samt sem áður út í hött- þar sem hann vill frekar vera út í hinum vitfirta heimi í þeim tilgangi að bjarga honum frá glötun.
Já en ... ef ég næ að breita stofnanna súpunni í vín... viljið þið þá sleppa mér lausum
![]()
Spurði hann geðlækni sinn um daginn. Ekki þótti lækninum hugmyndin góð og jók lyfjaskammtinn hans aftur.
Eitt má þessi Jesú Kristur eiga- Hann kenndi lærisveinum sínum þá lexíu að fara varðlega með eiturlyf og hættu þeir flestir neyslu í kjölfarið á þessum atburði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.7.2009 | 17:44
það er ÓGEÐSLEGT AÐ VERA ÁSTFANGIN... OJJJJ OOJJJJJJJ OJJJJ:
Það er fátt eitt skelfilegra en að vera ástfangin. Um það hljóta allir að vera sammála og þá sér í lagi ég. Þetta væmni þrungna tímabil er heilahristingi líkast og fjarri því að vera viti borið. Ekkert er jafn skelfileg tilhugsun og ósanngjarnara hlutskipti en að verða lostin af ást. Hvernig má það vera að sykursætar glæsikvendúllur byrtast óumbeðnar í líf mans og valdaræna hausinn á mér?
og biðja ekki einu sinni um leifi ?
Þær birtast bara sisona og stela af mér senunni? Ég verð skyndilega kurteis og fæ einhverjar heimskar hugmyndir í hausinn eins og fer að sýna af mér herramanslegt fas.
-nei komdu sæl fröken hvað er skítt... uu nei ég meina títt .. DÖÖÖ ég mis- ældi mig
Fallegi og yndislegi hluti Kvenþjóðarinnar er ekkert nema til ama og leiðinda að þessu leiti. Þeirra fallega bros gerir mig fallega feimin og þvinga mig til þess að gera eitthvað ósæmilegt eins og að vera góður.
-Oj bara ... ég get ekki bloggað meira ... ég er farin á klósettið til að æla af almennilegheitum.
Hei ... hlustið á lag sem er í spilarnum mínum- það heitir AÐ ELSKA ÞIG ER ÓGEÐSLEGT. Það lag sýnir bæði og sannar hvað er skelfilegt að verða lostin af þessari furðulegu vellýðunartilfinningu.
<----- lagið er næst síðast á spilaranum.
Já og ég nenni ekki að hlusta á eitthvað helvítis ástarþref frá einhverjum sívæmnum og ælulegum fagurgölum. Þið getið bara andskotast til að vera sammála mér og tekið undir hvert orð sem ég er að segja.
Annars....
góða helgi..
![]() |
Ástin lenti á bið í 20 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Ég náði myndum af fundinum þar sem Árni M Mathiesen var gjörsamlega lagður í einelti af talsmanni Breta. Það er hverju orði sannara að Árni greiið hann Matthisen átti í vök að verjast eins og þetta myndskeið bæði sýnir og sannar. Raunar er hálf ótrúlegt að horfa á alþjóðasamfélagið láta þessi slagsmál afskiptalaus og lýta undan þeim eins og allt sé í stakasta lagi.
Ljótt að sjá svona aðfarir .. Skamm alþjóðasamfélagið ... Skamm skamm skamm Bretland fyrir að sýna okkur svona framkomu varðandi Icesave deiluna.
![]() |
Árni átti í vök að verjast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.6.2009 | 21:29
Fróðlegt dæmi um draumaprins
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2009 | 12:37
Ég veit hver ástæðan er fyrir þessari hamingju kvenna
Ástæða þess að kvenfólk er hamingjusamast að staðaldri- þegar það er 28 ára- er að á því tímaskeiði reynir karlpeningurinn hvað mest við þær. Frumorsök hamingjunnar hefur ekkert með fjárhagslegt öryggi að gera eða hvort gráu hárunum fjölgi eins og hárvöruframleiðandinn Clairol vill reyna að halda fram. Vissulega gengur viðreynslan misvel hjá karlpeningnum en nær sjaldan þeim hátindi fullkomnunnar og neðanvert myndskeið sýnir.
Ýmislegt má læra af þessum herramanni í kurteisislegri hegðun og er ég staðráðin að taka hann til fyrirmyndar að öllu leiti. Það ætti að sýna þetta myndband í öllum skólum sem sýnibókadæmi um herramennsku og hvernig er æskilegt að hegða sér við dömur.
![]() |
Konur hamingjusamastar 28 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2009 | 00:50
Hjónabönd enda oftast með skilnaði
Flest hjónabönd enda áður en þau verða nokkurn tíman að veruleika.Sem betur fer segi ég. Ef þau ná svo langt að komast upp að altarinu er best að þeim ljúki sem fyrst enda er hjónaband milli karls og konu ámóta fáranleg hugmynd og að koma hundi og ketti saman í skókassa.
Skoðum dæmi-
Prestur - Jón villt þú gangast við Erúnu eins og hún er er og vera hennar maður til eilífðarnóns.
Jón - Já
Prestur- Jón og Eirún ég lýsi ykkur hljón og nú máttu kyssa brúðuna og taka við öllum hennar skuldum.
Jón- UUU ha skuldum ?
Eirún- Jón við vorum búin að tala um þetta
Jón- UUU nei um hvað ertu eiginlega að tala
Eirún- Nú að þú tækir við öllum mínum skuldum
jón- Heyrðu .... ekkert svona kjaftæði. Ég fer fram á skilnað.
Eirún- Nú jæja - samkvæmt skilnaðarsáttmála okkar þá átt þú að taka þá við helmingi skulda minna.
ENDIR
á vonlausu hjónabandi
![]() |
Skildu á brúðkaupsdaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Halla Rut
-
Anna Einarsdóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Signý
-
Kreppumaður
-
Fríða Eyland
-
Heiða Þórðar
-
Bara Steini
-
Marta B Helgadóttir
-
halkatla
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sema Erla Serdar
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Björgvin
-
Bjarki Tryggvason
-
Jón Þór Ólafsson
-
Brissó B. Johannsson
-
Tinna Jónsdóttir
-
Sigurlaug Kristjánsdóttir
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Aðalheiður Ámundadóttir
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Ásgerður
-
Brattur
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Bergur Thorberg
-
Viktor Einarsson
-
Agný
-
Lady Elín
-
Guðfríður Lilja
-
Gunnar Axel Axelsson
-
Óskar Helgi Helgason
-
Sigurður Viktor Úlfarsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Matti sax
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
kiza
-
Huld S. Ringsted
-
www.zordis.com
-
Brjánn Guðjónsson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Jónína Dúadóttir
-
Páll Geir Bjarnason
-
Sigríður Hafsteinsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Stríða
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
S. Lúther Gestsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Ólöf Anna Brynjarsdóttir
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Sævar Einarsson
-
Gullvagninn
-
Kolgrima
-
Óskar Þorkelsson
-
Helga Dóra
-
Guðrún Birna le Sage de Fontenay
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Óskar Arnórsson
-
Kristín Jakobsdóttir Richter
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldóra Rán
-
Helga Magnúsdóttir
-
Guðrún Lilja
-
Mía litla
-
Íris Arnardóttir....vitringur
-
Þórhildur Daðadóttir
-
polly82
-
Andrea
-
Hdora
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Brynja skordal
-
SeeingRed
-
Benna
-
Villi Asgeirsson
-
Svartagall
-
Alfreð Símonarson
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Skattborgari
-
Aprílrós
-
Mál 214
-
Bwahahaha...
-
Isis
-
persóna
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Vefritid
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Hlédís
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Eva
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
brahim
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar