Sex drögs end rokk end ról.

Þegar mér verður hugsað til útlits hljómsveitarinnar Rolling Stones þá dettur mér helst í hug uppvakningar í krikjugarði. Hrukkunuar framan í eilífðartáningum grúbbunar minna á krumpað landakort og hreifingarnar verða stirðbusalegri með árunum. Það kæmi mér ekkert á óvart að á síðustu tónleikunum þeirra mun Mick Jacker koma fram ber á ofan og í göngugrind á meðan Keith Richard tæki gítarsólóin með súrefnisgrímu framan í smettinu, fastur við hjólastól.

 

WhistlingÆ nóv its onlí rokk end ról but æ læk it Whistling

 

Mér finnst alltaf skondið að sjá myndir af rokkstjörnum sem eru orðnar sextugar sem ganga enn í sömu leðurbrókunum og fyrir tuttugu árum síðan. Þegar ég sá mynd af hinum sextuga söngvara hljómsveitarinar Aerosmith sá ég að maðurinn var einmitt komin með þetta sama uppvakninga útlit og meðlimir hljómsveitarinnar Rolling Stones. Klæðnaðurinn í bland við hrukkunar passar einhvern vegin ekki saman og útkoman minnir múmíu sem staðnað hefur í tímanum. Óhjáhvæmilegur kjánahrollur hríslaðist mig og ég hristi ósjálfrátt höfuðið yfir fatnaðavalinu. Það er ekkert að því að vera tónlistarmaður fram í rauðan dauðan og menn geta verið töffarar þar til þeir detta niður af grafarbakkanum. Leonard Choen er alltaf sami glæsigarmurinn en ég vil meina að ein af aðalástæðunum  er að hann klæðir sig líka alltaf eftir sínum aldri og kemur ekki fram á tónleikum ber á ofan eða í leðurbróknum.

Eitt verð ég samt að hrósa "kjaftaskinum" Steven Tyler fyrir. Hann er farin í meðferð og er að taka á sínum málum. Fyrir það eiga menn alltaf að fá hrós.  


mbl.is Steven Tyler farinn í meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

uppáhalds slúðrarinn minn sagði þetta um Steven Tyler:

Seriously, Stephen is getting too old for that crackhead shit! There comes a time when you need to put down the pipe, pick up the remote and turn on "Murder She Wrote." Being 60 is all about worshiping Angela Lansbury, eating lunch at Hometown Buffet and nagging your children. 60 is not about drugging and boozing.

mér finnst þetta bara snilld

halkatla, 22.5.2008 kl. 18:12

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Hann er greinilega á svipuðu máli þessi slúðrari sýnist mér

Brynjar Jóhannsson, 22.5.2008 kl. 18:37

3 Smámynd: Helga Dóra

Bara að láta þig vita að við erum komin áfram í horbjóðkeppninni.....

Áfram Ísland..............................

p.s. frábært hjá kallinum að drífa sig í meðferð.... Gat hann ekki tekið Amy Vínhús með sér...... 

Helga Dóra, 22.5.2008 kl. 21:05

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

ææi nei ... GUÐ HEFUR BRUGÐIST MÉR

Brynjar Jóhannsson, 22.5.2008 kl. 21:16

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Takk fyrir það Guðrún. njóttu bara vel.. alltaf velkomin

Brynjar Jóhannsson, 22.5.2008 kl. 22:05

6 Smámynd: Andrea

Sammála Guðrúnu- þú ert fyndinn :)

Andrea, 23.5.2008 kl. 19:12

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Má ekki drögga og búsa eftir 60?  Ég hefði haldið að þá fyrst myndi fjörið byrja Brylli minn

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2008 kl. 20:15

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Áfram Ísland

Jónína Dúadóttir, 23.5.2008 kl. 21:31

9 Smámynd: Halla Rut

Ég hlæ nú bara að Rollingunum. Þeir eru svo kjánalegir. Sagt er að trommara greyið sé búin að reyna að hætta í mörg ár.

Þíns álits óskað á minni síðu ef þú mátt vara að.

Halla Rut , 23.5.2008 kl. 22:39

10 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Bara... innlitskvitt

Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.5.2008 kl. 23:50

11 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Andrea

já takk fyrir það

Jenny

jú jú ... svo sem. Þetta eru líklega fordómar í mér. Ég man bara eftir afa mínum þegar hann var sextiu ára gamall þegar ég var pottormur og í sannleika sagt þá leit hann ekki út eins og Stebbi tyler.

Gunnar ..

Ég næ ekki alveg jónumum ?

Jónína.

Hvað er Fótboltaleikur í gangi ?

Halla og gunnar .. takk fyrir innnlitiið 

Brynjar Jóhannsson, 24.5.2008 kl. 09:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 184865

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband