Ég vona að Ísland falli strax út.

 

Devil     Devil     Devil     Devil     Devil

Ég er með grænar bólur og óstjórnlegan pirring. Andlitið mitt er orðið eldrautt í framan og afmyndað af reiði. Mig langar til að öskra vitfirringslega og henda sjónvarpinu út um gluggan. Hausinn snýst í hringi eins og andsetna konan í Extorsist og ég er búin að sparka í alla ketti sem löbbuðu fram hjá mér í hverfinu þegar ég var á leiðinni heim til mín úr vinnunni. Það er engu líkara en að ég sé andsetin djöflum og það sem verra er að þessir djöflar er í raun insta sjálf mitt að öskra til mín HINGAÐ OG EKKI LENGRA. Ástæða stórskringilegrar hegðunar minnar er andlegt óðaofnæmi mitt fyrir Eurovision. ÉG HATA ÞESSA VIÐBJÓÐSLEGU SÖNGVAKEPPNI AF ÖLLU MÍNU HJARTA.Devil Ég reyni að halda óðaofnæminu niðri með því að vera sem fjærst imbakassanum og ég er búin að kaupa mér eyrnatappa ef ske skildi að einhver smekklaus tónlistarunnandi ætli að leggjast svo lágt að hlusta á þessa keppni. Ég hef beðið til almættisins mínar innilegustu og einlægustu bænir grátbænandi á hnjánum. 

Ó GÓÐI GUÐ LÁTTU ÍSLAND FALLA ÚR KEPPNI SVO ÉG ÞURFI EKKI AÐ UPPLIFA ÞENNAN HRYLLING LÍKA Á LAUGADAGINN: Halo


mbl.is Svíar sigurstranglegastir samkvæmt könnun BBC
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er svo hjartanlega ósammála þér

Franska laggið er flottast - smelltu hér! 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.5.2008 kl. 18:12

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

vík BURT FRÁ MÉR ZATAN + aaaaaaaaaaaaaaaaaa

Brynjar Jóhannsson, 20.5.2008 kl. 18:18

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

hahahahahahahahahahahahahahahahaha

Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.5.2008 kl. 18:22

4 Smámynd: Andrea

Brilliant! Þetta lýsir okkur svo hrikalega vel þegar þessi hryllingur liggur í loftinu! Viðbjóðisköggull yfir öllum ömurlegu lögunum sem maður "neyðist" til að hlusta á

Andrea, 20.5.2008 kl. 18:25

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Eins og talað frá mínu Hjarta Andrea .......

Brynjar Jóhannsson, 20.5.2008 kl. 18:31

6 Smámynd: Helga Dóra

Vertu ekki að þessu tuði, slökktu á sjónvarpinu og farðu út að labba....... Hvort sem við dettum út eða ekki þá verður þetta í beinni á fimmtudginn líka og laugardaginn......      Þið Andrea neyðist ekki til að hlusta á neitt ag þessu.... Þið getið valið það að hlusta á CD og horfa á Startrek á flakkaranum.......

Krúttin ykkar.....

Helga Dóra, 20.5.2008 kl. 19:13

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Þetta er VIÐBJÓÐUR DJÖFULSINS.... skítur úr endaþarmi andskotans... ÓHUGNAÐUR sem banna ætti yfir 99 ára aldur

Brynjar Jóhannsson, 20.5.2008 kl. 19:16

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Á sjónvarpinu þínu ætti að vera takki sem ýtt er á í tvennum tilgangi, annars vegar til að kveikja á því og hins vegar til að slökkva á því.... frjálst val væni minn Mér er alveg sama um þessa keppniog læt hana svo sannarlega ekki pirra migEigðu góðan Evróvisionlausan dag

Jónína Dúadóttir, 21.5.2008 kl. 07:27

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gerðu eins og ég; "If you can´t beat them join them".

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 08:50

10 Smámynd: kiza

Það er á þessum ögurstundum sem ég fagna þeirri ákvörðun minni að tengja sjónvarpstækið mitt EKKI í loftnetið hérna í nýju íbúðinni.  Vissi ekki einusinni af þessu í gær fyrr en ég ætlaði að líta á fréttirnar hjá henni múttu og þá var þessi andskotans úrkynjun á dagskrá!  Frekar en FRÉTTIR.   H A L L Ó ?

Mikið var ég fegin að koma heim og geta bara farið á netið mitt og VALIÐ hvað ég vil horfa á.  Já og engar auglýsingar heldur, hehe.  Mæli hiklaust með þessu, það tekur ekki nema í mesta lagi viku að venja sig af froðunni sem kölluð er 'dagskrá' í sjónvarpi nútímans...

kiza, 21.5.2008 kl. 15:09

11 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Jónína..

Mér tókst að losna blessunarlega við Eoruvison ofnæmið og horfði ekkert á sjónvarpið.. Útbrotin eru því ekki eins slæm og gætu verið hjá mér í augnablikinu.

Dóra.

Mér finnst að það ætti að breita þessari keppni í HOMMÓVISION. Þá kallaðist hún allaveganna réttu nafni.

Jenny.

Nei kemur ekki til greina ég hyggst rembast enn sem rjúban við staurinn.

Jóna..

Hjartanlega sammála.. Netið er svo miklu meir skemmtun en þetta sjónvarp nokkurn tíman. ... Ég er enn á lífi og hef tekist að horfa ekkert á þetta að neinu viti enn sem komið er.. HALELULIA:

Brynjar Jóhannsson, 21.5.2008 kl. 16:40

12 Smámynd: kiza

PRAISE TEH INTERWEBS!!!

Vona að geimverur lendi í Serbíu og noti á okkur einhvern svona minnis-útstrokunargeisla þannig að gjörvallt mannkyn einfaldlega gleymi eurovision og þetta hverfi úr menningu og minni okkar.
ÁÁÁÁÁÁFRAM GEIMVERUR!!!

kiza, 21.5.2008 kl. 16:58

13 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

hhahahahaha....

Ég vona bara að júgoslavíustríð skelli á aftur og tónleikahaldið verður lagt niður

Brynjar Jóhannsson, 21.5.2008 kl. 17:35

14 Smámynd: halkatla

en hvað ég vorkenni þér elsku hjartans Brylli!

en heyrðu, ég er að hugsa að ég vil endilega gera eitthvað fyrir minnihlutahópinn sem þolir ekki eurovision, einsog að skipuleggja hópaferðir fyrir ykkur til Nashville eða Disneylands á þessum árstíma þegar "vertíðin" er eða gefa ykkur hverju og einu heilann kassa af eyrnapinnum. Já það er mitt markmið. Ég ætla að helga líf mitt því að bjarga ykkur frá þessu volæði

halkatla, 21.5.2008 kl. 21:48

15 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég er hjartanlega sammála, vona að Ísland falli úr keppninni á morgun.

Marta B Helgadóttir, 21.5.2008 kl. 23:17

16 Smámynd: Signý

Isss mér er andskotans sama hvort Ísland komist áfram eða ekki! Ég varðveiti homman í mér mjög vel, svoan eins og Dóra virðist gera einnig og því fagna ég júróvisjón með hommunum mínum! Vondari tónlist er vart finnandi, nema kannski í biðinni sem er að þjónustuveri símans... þar sem hvert meistaraverkið á fætur öðru er tekið og naugað svo heiftarlega í analinn með panflautum í fjórum fjórðu!..

En júróvisjón er einhverskonar uppskeruhátíð vondrar tónlistar, og Brylli þetta ættir þú að tileinka þér sem tónlistarmaður...þetta sem ég ætla að segja hérna næst. Því þetta er nauðsynlegt...

Ef maður hlustar á vonda  tónlist þá virkar það sem einskonar egóbúster fyrir manns eigin tónlist þannig að hún verður ekki einungis frábær... heldur gjörsamlega það besta sem komið hefur fyrir tónlist yfir höfuð!

En annars..... Viva la France!....eða eittvað ég kann alveg NÚLL í frönsku... myndi halda að þetta væri svona spænska með frönsku ívafi... en allavega... Áfram Frakkland þá bara!!   *skopp* *hopp*

Takk fyrir kaffið! 

Signý, 22.5.2008 kl. 00:22

17 Smámynd: Halla Rut

Ég vissi að þessi keppni mundi fara í taugarnar á þér Brynjar. Ég var að skrifa um keppnina í gær og beið eftir að þú mundir koma með skítkast.

Hættu þessari fýlu og horfðu á þetta með opnun huga, mundu að þú ert að horfa á skemmtikeppni.  

Halla Rut , 22.5.2008 kl. 13:02

18 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Dóra...

DISS IS YOUR LÍFE

Gunnar..

Með báðar hendur fyrir aftan bak og uuuu munninn fyrir neðan læri

Anna.

Sálarheylsu minnar þá ætla ég að panta ferð hjá þér strax.

Marta

Heyr heyr. Ef mig langar til að æla þá fer ég á fyllerí með rauðspritti og panta mér ferð með Herjólfi til eyja

Signy..

Já enda er ég að drepast úr EGÓI..

Já njóttu kaffsins ... sem betur fer villt þú kaffið svart því mjólkin mín er EVRÓVÍSION SÚR

Halla..

Sökum leti lét ég mig vanta á EVRÓVION UMRÆÐUNA Í GÆR...

Sama hve opin ég er fyrir þessari keppni .... þá fæ ég nú samt sem áður sama skítahrollin við að horfa á hana

Brynjar Jóhannsson, 22.5.2008 kl. 15:37

19 Smámynd: halkatla

ég er byrjuð að finna þefinn af nóbelsverðlaununum fyrir þetta góðverk

halkatla, 22.5.2008 kl. 18:14

20 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

já..

þetta er sannkölluð RAUÐA KROSSHJÁLP HJÁ ÞÉR Anna

Brynjar Jóhannsson, 22.5.2008 kl. 18:49

21 Smámynd: Halla Rut

Ég get ekki beðið þar til á morgun....ég er svo spennt....

Halla Rut , 23.5.2008 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 184929

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband