Færsluflokkur: Bloggar



Ég tel sem sagt þjóðráð að markaðssetja íslenska skemmtanalífið. Sér í lagi hér í hundrað og einum Reykjavík þar sem ég bý. Fyrir okkur Íslendinga er gamanið orðið ansi dýrt en vegna stöðu krónunnar er stuðið hverrar krónu virði ef þú ert túristi.
![]() |
Norður-kóreskur ofurdrykkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.6.2010 | 08:06
Og ég sem er svo erfiður!
hmmmmmm furðulegt verð ég að segja og ég sem er svo erfiður ?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.5.2010 | 06:10
Ástarponsaljóð...í anda Davíðs Stefáns
Forðum ég leitaði að liljum
ljúfum svanasöng
leyndum gullnum giljum
Og gleymdri kristalgöng
Fallegum fjallahlíðum
og frjóum berjamó
svipum fagurfríðum
og fróðum viskusjó
Niði af friðnæmum fossi
að- fjólum á grænni grund
viðuðum verndarkrossi
og værri kærleiksstund
Hvarvetna að gæfunni gáði
gegnum ris og hnig
Aldrei fékk það sem ég þráði
þar til ég hitti þig
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.5.2010 | 06:52
Gefðu mér pening fyrir árabáti.
Þetta klassíska rokklag með hljómsveitinni Box- lýsir ástandinu 100 % í Bretlandi og Hollandi.Reyndar er einn hængur á textagerðinni. í staðin fyrir að segja - "Færðu mér miða með flugvél" þá ættu þessir fornaldarrokkarar að segja - "Gefðu mér pening fyrir árabáti. "
![]() |
Stórir flugvellir lokaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2010 | 14:54
þetta var bara djók
það vill svo til að ég náði skýrslutökunni á spólu og ætla að byrta viðtalið hér á bloggsíðunni minni. Eins og sést þá höfðu kaupþingsmenn ekki gert neitt af sér og í raun var um spaug að ræða sem gekk þvímiður aðeins of langt.
Lögreglumaður- Hvað hefur þú að segja meindar ásakir okkar á efnahagsbrotum innan bankans ?
Sigurður Einars -"Sko Þetta er allt saman grín. Brandarinn er reyndar dálítið súr og framúrstefnulegur. Hann byggir á því að mergsjúga íslenska hagkerfið og svíkja viðskiptavini sína með drepfyndnum lánum sem halda ekki vatni. HA HA HA HA HA HA HA HA HA "
- lögreglu maður
- já ókei og hvernig þróaðist þetta ?
sigurður Einars-Já ég meina döööööö- þetta var svona fyrsta aprílþema sem gekk of langt og við ákváðum að halda henni áfram alla daga. Það var bara eitthvað svo broslegt að sjá fólk trúa nánast hverju einasta orði sem við sögðum- við ætluðum að hafa þetta sem skats fyrir árshátíð en því miður þá fóru bankarnir á hausinn áður en það varð að veruleika ha ha ha ha ha ha ha .
Nú skil ég ekki alveg
Sigurður Einars- Það sem var enn þá fyndnara er að grínið var allt á ykkar kostnað og er það því ykkar að borga. Ekki get ég gert af því þó sauðsvartur almúginn sé svona heimskur og sjái ekki í gegnum okkur ha ha ha ha ha.
lögreglumaður- þú gerir þér grein fyrir því að þetta er sakhæft atriði
sigurður Einars uuu dööö nei .. þú getur ekki kært menn fyrir það að djóka.
![]() |
Sigurður Einarsson verður yfirheyrður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.5.2010 | 10:12
Ég er hún.
heimasíminn hringir og ég svara. Það skellur á andataksþögn uns ég heyri í fallegri kvenmansrödd.
hæ- segir kvennmannsröddin
uu hver er þetta ?
þetta er ég - segir röddin
Bíddu hvernig má það vera ?
Ha! Hvað áttu við ? spurði hún að nýju
Varstu ekki að segja að þú værir ég..Ég er ekki kona ?
Já þú meinar...Ég hef aldrei velt því fyrir mér
ertu að ljúga að mér
Nei ég segir þér alveg satt...þetta er ég.
Eftir þetta furðulega samtal rann uppfyrir mér ljós. Ég, Brynjar Jóhannson,sonur föður míns og móður, bróðir bræðra minna, er ekki ég heldur vinkona mín og það sem gerir þetta mál enn þá furðulegra er að hún er samt ekki ég þó að ég sé hún. Hún er bara hún .......og já ég líka.
Bloggar | Breytt 9.5.2010 kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.5.2010 | 01:02
eitt kvæði
Á bak við þinn dulræna blæ og óljósu orð
ofan í dós þinnar djúpu og háfleigu speki
situr þú ofan á stóli á bak við þitt borð
hjá bunka af óleystum syndum og óunnu spreki
Titrar af lamandi ótta og óskar þess eins
að engin í kringum þig - sjái hið rétta og sanna
og skilji að tilurð þíns hrjúfa og holaða steins
er hræðslan- að þú verður álitin fífl meðal manna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2010 | 13:30
Töskuhrunið mikla og ástæður þess.
Töskuhrun átti sér stað á kaffihúsi. Atburðinn bar fljótt að en guði sé lof tókst mér að bregða fæti fyrir þennan glæsilega fylgilhut og dempa þannig fallið. Innanstokksmunum töskunar var bjargað frá óþarfa hnaski og laptoptalva mín er ósködduð. Allt annað dót töskunnar er á sínum stað og finn ég því fyrir miklum létti.
Neita ábyrgð
Ég þverneita ábygð á þessu töskuhruni en vísa ábyrð til allra annarra sem komu nálægt þessu sakarmali. Það er ekki mín sök að umrætt kaffihús hanni ekki húsgögn sín með þeim hætti að þau geri ekki ráð fyrir fallvöltum töskum. Það er ámælisvert að hið "óstofnaða töskueftirlit" hafi ekki varað mig við þessu hruni. Einnig er það óskiljanlegt að hver einasti kaffihúsagestur steinþagði yfir þessari komandi vá.
Allt ykkur að kenna
Ég tel því um ofsóknir sé hér um að ræða af undirmáls-frethólkum. Þeir halda röklausum ærumeiðindum á lofti um að ég beri sök í þessu máli. Ég hef því ákveðið að stefna þeim öllum- fyrir að hafa ekki réttar skoðanir. Auk þess kæri ég kaffihúsaeigandanum og starfsmönnum hans fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir þetta skakkafall. Íslenskum almenningi verður stefnt fyrir að hafa sofið að feigðarósi og þér sem lest þetta blogg fyrir að hafa ekki varað sérstaklega við mér.
Eða með öðrum orðum... Þetta var allt ykkur að kenna en ekki mér
Skammist ykkar
![]()
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2010 | 14:04
Punktar...
Púnktar ...........
- Við nutum tungulipurðar hvors annars en í sitthvorri merkingu orðsins.
- Þú dáðist að minni vitrænu dýpt- en ég að brjóstunum þínum.
- Ég vildi fullnægingu en þú vinskap minn.
- Þú elskaðir mig sem mannveru en ég þig sem kjötskrokk.
- Þér þótti ég vera vel innrætt mannvera en mér fanst þú vera falleg
- Ég hlustaði á kornflekspakkaheimspeki þína af miklum áhuga... ekki til að heyra -heldur til að horfa á kyssulegar varir þínar hreifast.
- þegar mér var ljóst að ég fengi aldrei að ríða þér... þá vildi ég ekkert með þig hafa.
.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.4.2010 | 13:37
Herra Eyjafjalla-Jökull sendir frá sér yfirlýsingu.
Ég Herra Eyjafjallajökull- Hef hér með sett hryðjuverkabann á Bretland,Holland og allar þær þjóðir sem hafa reynst okkur óhliðhollar í samningaviðræðum varðandi icesave. Kröfur mínar eru ofur skýrar og krefst ég þess að þeim sé fyllgt út í ystu æsar
- Að íslendingar fái lán frá norðurlöndunum án þess að við þurfum að borga af Icesave.
- Englendingar og Hollendingar láti skuldir vegna Icesave niðurfalla
- Að evrópusambandið sýni okkur samningsvilja og sanngirni.
- Að við fáum öll þau gögn sem við þurfum til þess að senda þá raunverulegu menn sem ullu bankahruninu í fangelsi og að þið hjálpið okkur að hneppa þá í bönd
- Að Bretland greiði okkur eyjaskeggjum til baka með 6.7% vöxtum- Allan þann skaða sem hlaust af hryðjuverkalögum.
Dont mess with us you stupit Bastards
Með eldheitri kveðju- Herra Eyjafjalla-Jökull
![]() |
Miðað við að það gjósi áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Halla Rut
-
Anna Einarsdóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Signý
-
Kreppumaður
-
Fríða Eyland
-
Heiða Þórðar
-
Bara Steini
-
Marta B Helgadóttir
-
halkatla
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sema Erla Serdar
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Björgvin
-
Bjarki Tryggvason
-
Jón Þór Ólafsson
-
Brissó B. Johannsson
-
Tinna Jónsdóttir
-
Sigurlaug Kristjánsdóttir
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Aðalheiður Ámundadóttir
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Ásgerður
-
Brattur
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Bergur Thorberg
-
Viktor Einarsson
-
Agný
-
Lady Elín
-
Guðfríður Lilja
-
Gunnar Axel Axelsson
-
Óskar Helgi Helgason
-
Sigurður Viktor Úlfarsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Matti sax
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
kiza
-
Huld S. Ringsted
-
www.zordis.com
-
Brjánn Guðjónsson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Jónína Dúadóttir
-
Páll Geir Bjarnason
-
Sigríður Hafsteinsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Stríða
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
S. Lúther Gestsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Ólöf Anna Brynjarsdóttir
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Sævar Einarsson
-
Gullvagninn
-
Kolgrima
-
Óskar Þorkelsson
-
Helga Dóra
-
Guðrún Birna le Sage de Fontenay
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Óskar Arnórsson
-
Kristín Jakobsdóttir Richter
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldóra Rán
-
Helga Magnúsdóttir
-
Guðrún Lilja
-
Mía litla
-
Íris Arnardóttir....vitringur
-
Þórhildur Daðadóttir
-
polly82
-
Andrea
-
Hdora
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Brynja skordal
-
SeeingRed
-
Benna
-
Villi Asgeirsson
-
Svartagall
-
Alfreð Símonarson
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Skattborgari
-
Aprílrós
-
Mál 214
-
Bwahahaha...
-
Isis
-
persóna
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Vefritid
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Hlédís
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Eva
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
brahim
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar