Færsluflokkur: Bloggar
5.10.2010 | 11:30
hér er mín tillaga að næsta texta við þjóðsöng okkar Íslendinga.
Sigldu burt frá Noreigi- í villtum vígamóði
Þeir- Víkingar sem urðu okkar -fyrstu landnámsmenn
með- engilfögru kvenfólki -og írsku þrælastóði
Að íslandsströndum sigldu er- þeir námu land í denn
Hýrðust inn i torfkofum- um ótal margar aldir.
Angandi af hlandfýlu- á kafi í kindaskít
Skattpíndir og kúgaðir- af ýmsu konungsvaldi
Í kuldalegu allsleysi- með andlit næpuhvít
& Við komum öll af sauðsþjófum
við komum öll af þrælum
við erum framtíð rumpulýðs
okkar föðurlands
Af þroskaheptum ómögum- og hreppsfíflum þeir hlógu
Hæddu lausgirt fagurfljóð- og gjörðir afglapans
mygu yfir bókvitið- og börn til hlýðni slógu
Bölvuðu en framfylgdu- svo skipun kúgarans
Kotabændur þessa lands- og sérhver sveitahreppur
sultu nær úr volæði- við bágann þjóðarhag
Í -gegnum móðurharðindin- og margar djúpar kreppur
Miklu verra kvalræði- en það sem er í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2010 | 17:53
Bara grín.....
hrópaði ég um torgin
meira til þess að skemmta mér
en út af skilanlegri ástæðu
Ég myrti mann-
Æpti ég af öllum mínum sálarkröftum
Ég myrti mann-
Heyrðist öðru hvoru í mér
þar til lögreglan kom á svæðið
Ég myrti mann-
Var það eina sem ég lét eftir mig í skýrslutökum.
Ég myrti mann-
Æpti ég til dómarans sem virtist ekki sama sinnis.
Ég myrti mann-
Svaraði ég skellihlægjandi.
Málið var látið falla niður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2010 | 11:19
það er erfitt að vera dýrðlingur.
Það er erfitt að vera dýrðlingur - eins og þessi saga sýnir.
Dýrðlingurinn- Kæru bræður... Ég hef verið snortin af höndum ljóssins.
Vinur 1- uuu hvað ertu eiginlega að tala um ?
Vinur 2- Já ég segi það sama - hvað...rakstu þig kannski í vegg ?
Dýrðlingurinn- Nei Kæru bræður- Sannlega segi ég ykkur að stund mín er runnin upp. Nú er draumurinn, sem lengi vel var aðeins óraunverulegur framtíðaróri að verða að blómi sem mun rísa upp til himna. Fold mín mun auðgast af gjöfulum ávöxtum og gola hamingjunar blása um veginn.
Vinur 2 - Ég skil... þú ert sem sagt að fara að skrá þig í Garðyrkjuskóla Ríkisins ?
Vinur 1- Ég væri til í að prufa þetta hass sem þú ert að reykja ?
Dýrðlingurinn - Sannlega segi ég ykkur Bræður- að ef þið fylgið mér- mun gæfan verða að veginum sem þið arkið og fögnuðurin varanlegt ástand. Líf ykkar mun fá raunverulegan tilgang og þið munuð þarfnast einskyns meira en helstu nauðsinjar.
Vinur 1- Ég segi nú frekar að ef þú ferð ekki að halda kjafti þá mun ég fylgja þér inn á KLEPP.
Vinur 2 - Já og ég mun sjá til þess að þú sleppir aldrei þaðan aftur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2010 | 13:38
Fangelsi leiðindana.
Allir einstaklingar yfir 30 ára aldri eiga að vera foreldrar. Þeim ber að vinna myrkrana á milli og búa í grásteyptum helli sínum ásamt maka og börnum. Hver sá sem brýtur þessa reglu er refsað með svívirðilegum hætti. Honum stendur tvennt til boða,-annað hvort að verða barrotta eða sætta sig við félagslega einangrun í lifanda lífi.
Og hvort villt þú ? Spurði dómarinn mig hastarega.
Ég held ég velji mér félagslega einangrun. Svaraði ég .
Samtstundis kom ósýnilegur fangavörður og hann járnaði á mér hendur og fætur. Hann breytti íbúðinni minni í fangaklefa og um leið og hann lokaði hurðinni sagði hann.
"Sá sem hefur uppreisn gegn hundleiðindum hversdagsins og hyggst gera samfélagið skemmtilegra - skal samstundis mannorðsníddur og skikkjaður til þess að fara aftur í grámyglulega hlekki leiðindana. Og að endingu vil ég minna þig á það að það er bannað að brosa frá mánudegi til mánudags "
Hér er ég- Með járnsögina í hendinni og byrjaður að saga rimlana. Ég er búin að svæfa verðina með þeirra eigin leiðindum og hyggst flýja við fyrsta tækifæri. Spurningin er hvert og hvort fangaverðir leiðindana muni finna mig áður en dómurinn firnast út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2010 | 19:19
Afhverju ég þoli ekki hasshausa.
Ég var að fá einhverja bestu viðskiptahugmynd allra tíma Marr
Og hvaða viðskiptahugmynd var það ?
hei hérna sko það sem ég var að spá í var.. hérna sko
uu hvað ?
Sko það sem ég var að pæla í var - hérna þú veist
Nei -
Hei chillaðu á því mar- Hugmyndin er sko svona - Þú veist ég ætla að - eða réttara sagt þá var ég að spá í - sko
Heyrðu værir þú til í að æla sprokinu út úr þér ?
Bíddu um hvað vorum við aftur að tala um ?
Þú varst með Viðskiptahugmynd ?

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.8.2010 | 07:57
Lykillinn að langlífi.

Eru dæmi um dólgsyrði sem ég hef ekki þurft að heyra í langan tíma,þökk sé kvenmansleysi mínu og er því ansi liklegt að ég verði langlífur og dánarorsök mín eitthvað annað en hjartaáfall. Það er ansi líklegt að ég muni lifa hamingjusamur og sáttur út í lífið og tilveruna nema, ég tæki upp á þeim óskundan að fara að finna mér kærustu.
![]() |
Slær NBA-stjörnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það er komið að heimsendi. Loksins getum við sleppt af okkur beislinu og farið ránsferðir um 10-11 verslanir eða mögulega sprengt upp lögreglubíla því að á morgun verður enginn morgundagur. Ekkert líf aðeins dauði og þá fyrst fá hinir trúuðu og trúlausu staðfestingu á því hvort það sé framhaldslíf eftir dauðann.
Eða nei bíddu nú við, Ég er að ljúga. Á morgun verður morgundagur - enda hefur komið á daginn að allar dómsdagsspár hafa verið á hræðsluáróðri byggðar. Okkur stendur því ekki til boða að gera annað en það sem við þurfum að gera til að komast af. Við verðum að takast á við okkar hversdagslega vanda, ella tekur þessi hversdagslegi vandi okkur í rassgatið. Ef við virkilega viljum heimsendi verðum ivð að vonast næst efir einhverju alvöru eins og t.d Sólsprenginu í stað sólgoss.
![]() |
Ekki meiri gammageislun við sólgosið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.7.2010 | 23:54
Frumvarp á hinu Íslenska alþingi.

Framí kall úr þingsal- -HEI TIL ER ÉG

-Æi Þegiðu Árni! Þér ætti að vera ljóst að ég var bara að grínast.

![]() |
Þingmenn vopnaðir skóm og blómapottum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2010 | 12:57
Ég get ekki verið í tíma lengur.
Mér er minnisstætt atvik sem átti sér stað í Flensborg, nánar tiltekið í enskutíma. Sú sem kenndi í þessum tíma var í geðstyrð járngribba og hún stjórnaði nemandaskrílnum með rafmögnum gaddavírsaga. hún var gjörn á að refsa nemendum fyrir óæskilega hegðun og lagði mikla áherslu á að við lærðum það sem fyrir okkur var lagt.
Í þessum tíma sat maður sem átti síðar meir eftir að verða þjóðkunnur leikari. Hann var hrekkjusvín að eðlisfari og allt í einu tók hann upp á því að senda mér bréf.
Þú færð fimm stig ef þú segir við kennarann að þú getir ekki verið lengur í tíma því þú ert búinn að skíta í buxunar. - Stóð í bréfinu.
Verðandi leikarinn hélt niðri í sér hlátrinum á meðan ég las pappírsstrimilinn. Hann beið fullur tilhlökkunar og var ekki alveg viss;hvort ég myndi gugna eða láta slag standa.
Heyrðu ég get ekki verið í tímanum lengur
Sagði ég skyndilega með vælukenndum rómi.
Nú gætir þú útskýrt fyrir mér út af hverju
Spurði kennarinn alvörugefinn leiðindarsvip framan í smettinu.
Vegna þess að ég er búinn að kúka í buxurnar.
Hver einasti einstaklingur sem var þarna inni trylltist úr hlátri- allir nema kennarinn sem fanst þetta athæfi eins fjarri því að vera hlægilegt og hugsast getur. Hann refsaði bekknum með því að hleypa ekki neinum á klósettið það sem eftir lifði tímans og var einn nærri búinn að míg á sig vegna þess- því hann var þegar komin í spreng og nú með hláturskrampa í ofan á lag.
Endir.
![]() |
Kærð fyrir að teikna kanínur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.7.2010 | 06:53
Bylgja Pálsdóttir- Skapofsakerling.
Bylgja- skapheita- Pálsdóttir tók upp upp á því að ganga yfir þvera og endilanga Evrópu og breyta brúðkaupsferðinni sinni í bakpokaferðalag. Hún hefur verið eld-örg í skapi frá því að hún lenti í orðaskaki við sinn heitt hataða eiginmann og hefur ekki náð sér síðan þá. Þau voru stödd á brúnum Toyjota bílaleigubíl við eitt af óteljandi torgum Rómar, þegar þau keyrðu framhjá óvenju rassastórri styttu og hvu maðurinn hennar þá hafa sagt.
- Svona verður þú elskan ef þú ætlar að leggjast í að japla ís alla ferðina.
Við þennan saklausa aulahúmor- hitnaði Bylgju mjög í hamsi og hefur ekki náð sér niður síðan þá. Hún skipaði manninum sínum að stöðva bílinn og strunsaði út. Meira að segja blóðheitustu Ítalarnir eru eins og fermingadrengir í samanburði við þennan íslenska kerlingaskörung enda er þessi púðurtunna sem kjarnorkusprengja um þessar mundir og virðist fjarri því að róast niður.
![]() |
Hitabylgja í Róm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Halla Rut
-
Anna Einarsdóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Signý
-
Kreppumaður
-
Fríða Eyland
-
Heiða Þórðar
-
Bara Steini
-
Marta B Helgadóttir
-
halkatla
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sema Erla Serdar
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Björgvin
-
Bjarki Tryggvason
-
Jón Þór Ólafsson
-
Brissó B. Johannsson
-
Tinna Jónsdóttir
-
Sigurlaug Kristjánsdóttir
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Aðalheiður Ámundadóttir
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Ásgerður
-
Brattur
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Bergur Thorberg
-
Viktor Einarsson
-
Agný
-
Lady Elín
-
Guðfríður Lilja
-
Gunnar Axel Axelsson
-
Óskar Helgi Helgason
-
Sigurður Viktor Úlfarsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Matti sax
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
kiza
-
Huld S. Ringsted
-
www.zordis.com
-
Brjánn Guðjónsson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Jónína Dúadóttir
-
Páll Geir Bjarnason
-
Sigríður Hafsteinsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Stríða
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
S. Lúther Gestsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Ólöf Anna Brynjarsdóttir
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Sævar Einarsson
-
Gullvagninn
-
Kolgrima
-
Óskar Þorkelsson
-
Helga Dóra
-
Guðrún Birna le Sage de Fontenay
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Óskar Arnórsson
-
Kristín Jakobsdóttir Richter
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldóra Rán
-
Helga Magnúsdóttir
-
Guðrún Lilja
-
Mía litla
-
Íris Arnardóttir....vitringur
-
Þórhildur Daðadóttir
-
polly82
-
Andrea
-
Hdora
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Brynja skordal
-
SeeingRed
-
Benna
-
Villi Asgeirsson
-
Svartagall
-
Alfreð Símonarson
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Skattborgari
-
Aprílrós
-
Mál 214
-
Bwahahaha...
-
Isis
-
persóna
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Vefritid
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Hlédís
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Eva
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
brahim
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar