eitt kvæði

....sem ég samdi í dag á milli anna

Á bak við þinn dulræna blæ og óljósu orð
ofan í dós þinnar djúpu og háfleigu speki
situr þú ofan á stóli á bak við þitt borð
hjá bunka af óleystum syndum og óunnu spreki

Titrar af lamandi ótta og óskar þess eins
að engin í kringum þig - sjái hið rétta og sanna
og skilji að tilurð þíns hrjúfa og holaða steins
er hræðslan- að þú verður álitin fífl meðal manna


Töskuhrunið mikla og ástæður þess.

Töskuhrun átti sér stað á kaffihúsi. Atburðinn bar fljótt að en guði sé lof tókst mér að bregða fæti fyrir þennan glæsilega fylgilhut og dempa þannig fallið. Innanstokksmunum töskunar var bjargað frá óþarfa hnaski og laptoptalva mín er ósködduð. Allt annað dót töskunnar er á sínum stað og finn ég því fyrir miklum létti.

 

 Neita ábyrgð

 

Ég þverneita ábygð á þessu töskuhruni en vísa ábyrð til allra annarra sem komu nálægt þessu sakarmali. Það er ekki mín sök að umrætt kaffihús hanni ekki húsgögn sín með þeim hætti að þau geri ekki ráð fyrir fallvöltum töskum. Það er ámælisvert að hið "óstofnaða töskueftirlit" hafi ekki varað mig við þessu hruni. Einnig er það óskiljanlegt að hver einasti kaffihúsagestur steinþagði yfir þessari komandi vá.

 

 Allt ykkur að kenna 

 

Ég tel því um ofsóknir sé hér um að ræða af undirmáls-frethólkum. Þeir halda röklausum ærumeiðindum á lofti um að ég beri sök í þessu máli. Ég hef því ákveðið að stefna þeim öllum- fyrir að hafa ekki réttar skoðanir. Auk þess kæri ég kaffihúsaeigandanum og starfsmönnum hans fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir þetta skakkafall. Íslenskum almenningi verður stefnt fyrir að hafa sofið að feigðarósi og þér sem lest þetta blogg fyrir að hafa ekki varað sérstaklega við mér.

Eða með öðrum orðum... Þetta var allt ykkur að kenna en ekki mér

 

Angry Skammist ykkarAngry 


Punktar...

Púnktar ...........

 

  • Við nutum tungulipurðar hvors annars en í sitthvorri merkingu orðsins.
  • Þú dáðist að minni vitrænu dýpt- en ég að brjóstunum þínum.
  • Ég vildi fullnægingu en þú vinskap minn.
  • Þú elskaðir mig sem mannveru en ég þig sem kjötskrokk.
  • Þér þótti ég vera vel innrætt mannvera en mér fanst þú vera falleg
  • Ég hlustaði á kornflekspakkaheimspeki þína af miklum áhuga... ekki til að heyra -heldur til að horfa á kyssulegar varir þínar hreifast.
  • þegar mér var ljóst að ég fengi aldrei að ríða þér... þá vildi ég ekkert með þig hafa.




Herra Eyjafjalla-Jökull sendir frá sér yfirlýsingu.

Ég Herra Eyjafjallajökull- Hef hér með sett hryðjuverkabann á Bretland,Holland og allar þær þjóðir sem hafa reynst okkur óhliðhollar í samningaviðræðum varðandi icesave. Kröfur mínar eru ofur skýrar og krefst ég þess að þeim sé fyllgt út í ystu æsar

 

  • Að íslendingar fái lán frá norðurlöndunum án þess að við þurfum að borga af Icesave.
  • Englendingar og Hollendingar láti skuldir vegna Icesave niðurfalla
  • Að evrópusambandið sýni okkur samningsvilja og sanngirni. 
  •  Að við fáum öll þau gögn sem við þurfum til þess að senda þá raunverulegu menn sem ullu bankahruninu í fangelsi og að þið hjálpið okkur að hneppa þá í bönd
  • Að Bretland greiði okkur eyjaskeggjum til baka með 6.7% vöxtum- Allan þann skaða sem hlaust af hryðjuverkalögum.
 
Ef þessum skilyrðum verður ekki fylgt  - mun ég vekja hana Kötlu systur mína og sú kraftakelling er ekkert lamb að leika sér við. Við getum einnig kveikt í Stóra frænda mínum - og hálfnafna mínum honum Vatna- Jökli.


Dont mess with us you stupit Bastards Angry

 Með eldheitri kveðju- Herra Eyjafjalla-Jökull


mbl.is Miðað við að það gjósi áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

nýja Icesavenefndin lofar góðu.

............  samninganefnd icesave hefur borist liðsauki.

Þessi liðsmaður icsesavenefndarinnar hefur nákvæmlega ekkert með stjórnarandstöðuna að gera eða hvað þá Indefensehópinn. Eins og þið væntanlega vitið öll þá er þessi liðsauki icsavenefndarinnar umræddur samningarmaður Herra "Eyjafjallajökull" og verður ekki annað sagt en að honum sé heitt í hamsi.

 

 -Ef þið eruð eitthvað að rífa ykkur þá vek ég "Kötlu" systur mína og þá fyrst fáið þið að finna til tevatnsins - bannsettu skítableyðurnar ykkar Angry

 

Hvíslaði Herra Eyjafjallajökull að bresku samninganefndinni núna í síðustu viku og bölvaði henni í "sand og ösku". Þegar ljóst var að samninganefndin lét sér fátt um hótanir "Jökuls" finnast, lét "eldhuginn" kné fylgja kviði og setti farfluttningsbann á Bretland og einnig Noreig-fyrir að að vera ekki bræður okkar á ögurstundu. Hann stöðvaði flug til og frá þessum samfélögum og ef þau fara ekki að bæta ráð sitt mun hann sjá til þess að koma þessum samfélögum á hausinn. Hann er bara rétt að byrja og hefur nú í hyggju að gera slíkt hið sama við alla evrópu. 

 Hann er byrjaður að vekja Kötlu systur sína og er hún þegar farin að rumska við sér. Þegar Katla verður loksins komin á lappir - þá má heimurinn fara að að vara sig..

 


mbl.is Hlaup rauf varnargarða í Fljótshlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má vera að þetta sé svokallaður froðusnakkur ?

 Í frétt mbl.is  stendur

"Bandaríski vísindamaðurinn Gary Hufford sem starfar hjá veðurstofu Bandaríkjanna í Alaska  segir í samtali við AP fréttastofuna að þegar Katla gaus árið 1755 hafi íbúar Bandaríkjanna þurft að þola mikinn frostavetur. Til að mynda hafi Mississippi verið ísi lagt allt að New Orleans auk þess sem sérlega kalt hafi verið á austurströndinni"


Ef Bandaríkjamönnum stafar svona mikil ógn af íslenskum eldfjöllum- afhverju gerðust þá ekki miklir frostavetrar í kjölfar hinna gríðurlega nátturuhamfara sem gerðust undir Vatnajökli árið 1996 ? Og þó svo að frostavetur hafi átt sér stað í Bandraíkjunum árið 1775- hvernig í ósköpunum er þá hægt að tengja þær frosthamfarir við þetta kötlugos með óyggjandi sönnunum ?

í það minnsta er ég stórlega efins um að vísindamenn séu einhuga um þessa kenningu Gary Hufford og finnst mér hún bera bragð hræðsluaróðurs sem takmarkaður fótur er fyrir. Mér þykir verra ef verið að gera frétta mat um ísland af líkindum og hefði viljað að svona dylgjum væri svarað eins og skot.

Það er líkast til hægara sagt en gert-því fjölmiðlastöðvum eins og Fox er skítsama um sannleikan.

Miðað við hvað vísindamenn virka almennt varkárir í yfirlýsingum sínum þá þykir mér þessi bandaríski kauði ansi digubarkalegur og full mikið staddur með hausinn uppi í rassgatinu á sjálfum sér. 


mbl.is Umheimurinn hræðist Kötlugos
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vil fá alvöru nátturuhamfarir

Áhugi minn fyrir gosinu í Eyjafjallajökli er mikill. Raunar svo mikill að eg óska mér "eldgosheitast" af öllu að fjölmiðlar sendi einhvern snarbilaðan myndatökumann sem næst spúandi gígnum. Mér finnst  myndefnið verið hálf píslalegt sem er af þessum nátturuhamfarastað og mig kitlar í að sjá eitthvað meira krassandi en myndatökur sem eru úr órafjarlægð.

Nóg er nú til af blaðamönnum sem eru til í að leggja það á sig að fanga augnablik eldgoss og því ekki að senda einn myndatökubrjálæðing sem næst gígnum til þess að svala forvitni okkar hinna sem fylgjumst spennt með hverri frétt sem birtist á netinu ? 

Allavega býð ég spenntur og ef satt skal segja ... þá vonast ég til þess að það fari að gjósa í Kötlu á sama tíma og landið fari gjörsamlega "hamförum". Ég er nátturulega ekki að biðja fyrir einhverjum manndrápskveðjum af hálfu móður nátturu en verð að viðurkenna að mér þætti mikilföngulegt að sjá eitthvað sem gerðist í anda Vatnajökuls fyrir meira en áratugi síðar.

það er langt um skemmtilegra að fylgjast með þessu... heldur en þessari bandsettu lýðbrumarapólitík á íslandi


mbl.is Tilkomumikið og stórfenglegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljósmyndasýning á Mokka.

Þetta eru nokkur ljóð sem ég var með við Ljósmyndir Veru Pálsdóttur... sem er núna með sýningu á mokka.

 

 

Bý inní himnesku hugmyndaríki

Í heimi sem veitir mér daglega skjól

Heilun sem verndar gegn sálrænni sýki

Og sefar hin hamslausu klukknanna hjól

 

Lifi í jarðneskum heimi til hálfs

Og hinn partinn innan í tilvist míns sjálfs

Ofan í djúpi sem aðeins er til

Innan í bólu míns tónlistarspils

Hljóms sem ég skynja við skil

Í skapandi miðju míns hugmyndabyls

 

Vinn þar sem hönnuður dynjandi drauma

Dansa sem breytast úr órum í raun

Skapari eldheitra ástríðuflauma

Sem enda að lokum sem fastmótað hraun

 

Lifi í jarðneskum heimi til hálfs

Og hinn partinn innan í verund míns sjálfs

Ofan í huglægu djúpi míns draums

Og dynjandi fljóti hins skapandi straums

Punkti míns glaðlynda gaums

Sem gefur sig allan til líðandi glaums

 

Innra með sjálfri mér hlust’eftir hljóði

Er heyri í orðum úr draumkenndu ljóði

Fiðlara leika á stóíska strengi

Og stórhljómsveit spila af frjóu listfengi…

Til

mín frá mér simfóníu

- Mér til mín Útópíu

 

 

- Ljóðfuran óx

- kringum dauðvona tré

- í grámyglulegum skógi.

- Þar sem andrúmsloftið var hugmyndasnautt

- og haustið eina árstíðin.

- Jarðvegurinn var grýttur og ástin geislavirk.

-Hún var upphafið á grænni tíma og endalok anddeyðunar.

-Hún dúxaði í prófraunum nátturunnar og var því komin til að vera

 

Stödd inni í heimi - hins sturlaða manns

Stíg við mig sjálfa - þar darraðardans

Rétt eins og bandalaus flugdreki flýg

Í foki - við steingrýttan - ógæfustíg

Finnst eins og húsin þau hlæi að mér

Himinninn glotti - er götuna fer

Golan hún flytji mér - vitfirrtan vals

Er Væntingarborgin - hún riðar til falls

 

                                                                                                        

Alls staðar- hún eltir mig

Eins og - gömul vofa

Gegnum - bláköld breiddarstig

Bergrunnin - af dofa

 

Undir - eyðimerkursól

Yfir - þurra sanda

Inn um - niðdimm næturból

Napurra - draumalanda

 

Man ég - hitti hana fyrst

Í- hjarta - næturglaumsins

Sauðdrukkin - og sopaþyrst

Í sælu - mannhafsstraumsins

 

Nóttin - hún var niðurlút

Náðarlaus - í lundi

Er ég - elti hana út

Inn að - húsasundi

 

Angaði - sem ilmvatnslögg

Er ég - horfði á hana

Veitti - síðan viðarhögg

Varð - henni að bana

 

Og svo er hérna lag... við eina myndina að lokum .

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Lag á ljósmyndasýningu.

 

 

 

Þetta lag má finna á ljósmyndasýningu Veru Pálsdóttur.

 

 Birna Einarsdóttir annaðist grafíska hönnun sýningarinnar

 

en ég- Brynjar Jóhannsson sá um textagerð hennar.

 

 

 

 


Herra núll og nix


 

Hvernig myndi þér lýða ef þú kæmist að þeirri staðreynd, að þú ert einhver annar en þú ert ?Þú værir staddur í bankanum þegar þetta sannleiksljós rynni upp fyrir þér, er gjaldkerinn neitar að afgreiða þig.

 

 -Því miður en þetta skilríki er ekki af þér Angry

 

- ha hvað áttu við ?Errm

 

- Já og Samkvæmt kennutölunni ertu ekki einu sinni til.Angry

 

- Já en ég er búinn að nota þetta skilríki í fjölda mörg ár...þetta getur ekki verið Gasp

 

 Þú ferð inn á Hagstofuna til þess að komast að hinu rétta og þá fyrst færðu taugaáfall. Þú gerir þér grein fyrir því að þú ert í raun og veru ekki til og hefur aldrei verið það. Samkvæmt Hagstofunni fæddist þú aldrei og hafðir því aldrei gengið í skóla. Þú útskrifaðist ekki sem stúdent frá Menntaskólanum í Hamrahlíð né starfaðir sem endurskoðandi í öll þín ljúfu fjölskyldu ár. Börnin þín eiga í raun og veru engan föður og konan þín hefur verið einstæð í allan þann tíma sem þið hafið verið saman.

 

-Þitt rétta nafn væri ekki Guðmundur Pálsson bókari- heldur Herra Núll og nix. 

 

Þökk sé athugulum starfsmanni Hagstofunnar, komst hann að því að þú hafir aldrei fæðst né lifað. Öll þín tilvist væri einn tröllvaxin misskilningur og þú yrðir því vinsamlega að gangast við þessari leiðréttingu. Þú yrðir að útskýra fyrir konunni þinni að börnin þeirra hafi orðið til úr "engu" og tjá vinum þínum að þú sést í raun og veru ímyndun þeirra.

Loksins loksins lokins.... Hefðir þú fundið tilgang lífs þín og það sem þig hafði alltaf langað til að vera. Þér langaði aldrei menntast né eignast börn og taka við fyrirtæki föður þíns. þér langaði alltaf að vera það sem Hagstofan álítur þig.- Ekki neitt...

Loksins loksins loksins...  Upplifðir þú vinnuframtak þitt eftir raunverulegum verðleikum og sæir hvað þú ert í augum barna þinna.

En verr og miður. Sökum ákveðni eiginkonu þinnar yrðir þú að fara aftur inn á Hagstofu og "leiðranga þessa leiðréttingu". Þú yrðir gangast við þínu fyrra lífi og börnum- ellega myndir þú svelta í hel.

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband