16.1.2010 | 19:53
Nú er mér öllum lokið! !"#$%&/()=
Er Börgólfur Thor Björgólfsson ekki einn af fyrrum eigendum Landbankans?
Er þessi fjármálaóreiðumaður því ekki þess valdandi að skuldarklafi sé í fremsta hlunn að falla á íslenska samfélagsþegna ?
Hversvegna í ósköpunum eru eigur hans ekki gerðar upptækar og færðar Bretum og Hollendingum ?
Og afhverju í andskotanum fara ekki Bretar og Hollendingar- fyrst í kröfumál við Björgólf Thor Björgólfsson og rígja hann peningalega inn að skynni áður en þeir krefja íslendinga um pening ?
Hversvegna er þessum stórþjóðum svo mikið í mun að knésetja sauðsaklausan íslenskan almúgamanninn en siga ekki öllum sínum færustu skattböðlum á þennan mann
Það er eitthvað mjög... mjög... mjög... mjög... mjög... mjööööööööööög myglað mjöl ofan í skuggahornum viðskiptaheimsins og þá sérstaklega hja Bretum og Hollendingum ef þeir láta þennan mann leika lausum hala...En siga á íslensku þjóðina öllum sínum svívirðilegustu samningaúlfum.
Ég tel það skilyrðislausa heimtingu íslendinga að hver einasta króna þessa mans verður gerð UPPTÆK og í það snarasta. Sama á við alla þessa fjármálaóreiðumenn - Jón Ásgeir og alla hina.
Ég legg því til að við ráðum Vladimýr Pútín til þess að aðstoða Evu Joly við rannsókn á íslenska bankahruninu. Eva sér um lagalegu hliðina en pútin sér um að gera eigur þessara manna upptækar. Pútíni tókst nefnilega að hrifsa undir sig eigur olíugreifanna með ákaflega harkarlegum hætti á sínum tíma og er því óumdeilanlegt að hann sé manna hæfastur til starfans.
Þá gætum við þakkað honum fyrir Pútin fyrir vel unnin störf, selt síðan eigur þessara manna til kröfuhafa og látið þá sem þeim skulda að yfirtaka fyrirtækin þeirra.
![]() |
Björgólfur að missa Actavis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.1.2010 | 01:25
Njótið vel
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.1.2010 | 06:51
Lausn sem mætti nota hérlendis- að sekta fólk eftir tekjum.
Leið íslendinga út úr fjármálakreppunni er ofureinföld. Hún hefur ekkert með hvernig við borgum hinum enska skuldaguði æsseif- heldur felst hún í að búa til eineltisreglur um útrásavíkinga. Regluverkið væri ansi kræfið og snérist aðalega um að lögreglan hefði vald til þess að snúa upp á handleggin á þeim út af minnsta tilefni.
Björgólfur hér með ertu handtekin fyrir að vera í ósmekklegum fötum.
Já en það er ekkert sem bannar það
Samkvæmt 3 grein eineltislaga um klæðaburð islenskra frjármálaóreiðumanna- má útrásavíkingur ekki vera ósmekklegur
Já en ég er ekkert
ABB BABB BABB ÞEGIÐU FÍLFIÐ ÞITT ...í tukthúsið með þig
Fyrir héraðsdómi væri Björgólfur síðan færður í járnum og þar væri ekki tekið á þeim kauða með einhverjum vettlingartökum heldur þvert á móti. Reglur væru með þeim hætti að hann gæti sér enga mótvörn veitt og neyddist því að taka afleiðingum þessara fráleiddu en sanngjörnu laga.
Björgólfur- þú er hér með dæmdur til að borga fimmhundrað milljarða fyrir að vera í einkar ósmekklegum fötum og hafa gleymt að hafa reymt á þér skóna og þar að auki til 24 ára klósettþrifa á Hlemmi.
Myndi dómarinn segja við Björgólf og kýla hann algjörlega á óvart í "hreðjarnar."
Málið leyst og íslendingar lifðu í vesæld til æfiloka.
![]() |
Þarf að greiða 32 milljóna kr. umferðarsekt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.12.2009 | 21:52
Herra allt of hress
Betrum bætt útgáfa.......
Á mánudegi byrtist okkur herra allt of hress
sem hafði gleymt að klæða sig í vanabundið daglegt dress
á Adamsklæðum einum saman gangandi um Reykjavík
Sáum hann með stirnað bros að bíða í langri röð
í bíl sem var hans hugaróri fyrir framan þvottastöð
Á Adamsklæðum einum saman- algjörlega upp úr þurru
skellihló
misti sig af kæti
skellihló
sér kunni ekki hóf
skellihló
og mannorðið í götu sína gróf
Við- huldu fólk og framliðna- þar maðurinn munnhjóst
Missti stjórn á skapinu- og síðan við sig sjálfan slóst
Á Adamsklæðum einum saman- Kleppshæfur og fjarri sér
Ýmyndaði bíllinn hans var orðin bensínlaus
hann bölvaði því sjálfum sér- gjörsamlega virtfyrt raus
Á adamsklæðum einum saman
maðurinn á nokkurs viðnáms
skellihló
misti sig af kæti
skellihló
sér kunni ekki hóf
skellihló
og mannorðið í götu sína gróf
Bloggar | Breytt 11.2.2012 kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.12.2009 | 05:24
Dagur hinna forboðnu óhappa.
á fætur er vegghilla yfir mig hrundi
rúmið féll saman- ég rann niður á gólf
þar rankaði við mér -úr draumkenndum blundi
hrópaði því að ég- hnakkanum rak
harðlega á jörðina- trekktur á taugum
tognaði í læri- í tunguna beit
og tómlega starði -með pírur í augum
Vekjarinn hringdi -með hávaða um leið
með herkjum á skjálfandi - fætur ég skreið
og klukkan var 7-9-13
1-2-3
Ég gleymdi að krossa mig og berja í borðið
banka þrisvar segja leyniorðið
risti til blóðs og gargaði út tárum
Brenndist í sturtu á bakið ég féll
baðsápan sviðnaði nýopnum sárum
Saltaði kornfleks- með súrnaðri mjólk
er smakkaði af skeiðinni- yfir mig ældi
Lamdi í borðið- sem brotnaði um leið
og þá brákaðist höndin -og sárkvalin vældi
Rak mig í hillu og rann niður á gólf
er reyndi að hringja í 112
Ég gleymdi að krossa mig og berja í borðið
Bloggar | Breytt 20.12.2009 kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.12.2009 | 01:47
Ástæða þess að mér þykir BDSM FÁRANLEGT.
Mér hefur alltaf þótt ofbeldisfullir ástarleikir eins og Bdsm vafasamir. Raunar finnst mér leður-sadismi talandi dæmi um um að heimskan eigi sér engin takmörk. Fólk sem þennan leik stundar- klæðir sig upp í hallærislegan leðurklæðnað og fær ánægju út úr því að láta rassskella sig til blóðs og brenna sig með kertavaxi.
-Ég er meistarinn
-ha Meistari ... í hverju þá
- Þegiðu og hlíddu mér eða ég rassskelli þig með svipunni.
- uu nei.. ekki fyr en þú sýnir mér skirteini
- SKIRTEINI ! HEI ég þarf ekkert skirteini...ÉG ER MEISTARINN.
- áááááááááá þú slóst mig .. hættu þessu eða ég hringi á lögguna.
Þeir sem eru ráðandi í þessum ástarleikjum vilja oft láta kalla sig meistarann og spyr ég oft sjálfan mig þá í hverju þeir eru nákvæmlega meistarar! Kannski Rassskellingum og frekjugangi ?
Hér er ágætis myndlíkingardæmi
um þennan afkáralega fáranleika
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.12.2009 | 15:12
Er einhver að hlusta ?
Er einhver að hlusta ?
Hringdu í sjónvarpið- Dagblaðið Vísi og lögguna og lýstu eftir mér
Hef leitað af sjálfum mér - Árangurslaust og veit ekki hvar ég er
Frá og með því- að ég sjálfum mér gleymdi - Þá daganna dreymt hef ég burt
og dvalið í þoku- af því sem að var- og ekkert til mín hefur spurts
Ég sofnaði í fangelsi - einsemdarinnar-en vaknaði víðsfjarri mér
viðutan nútiman- ósýnilegur -og alls ekki þar sem ég fer
við sjálfan mig skildi- í daglegu lífi- ég leitaði en aldrei mig fann
og labbaði áfram- með hausin í skýjum og verkin af kæringi vann
Innan við draummúra- martraðarinnar- er geymdur í haldi sem gísl
með grátandi augu- án andlegrar rænu- að emja sem krossfestur písl
í speglinum er einhver- ókunnur maður- sem er ekki svipur af sjón
sem slapplega reynir -að herma mér eftir- og minnir á veikburða flón
Bloggar | Breytt 2.2.2010 kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
30.11.2009 | 04:22
ósamið lag og ljóð
Tif sem að slá ekki -einasta slag
Með sviplausum tilbrigðum- sorgmæddri lífsgleði
Syng ég nú til hennar- alls ekkert lag
flyt- óskrifað ljóð
syng- þögulan óð
gef- galtóman sjóð
og- útbrennda glóð
Með steinrunnri tjáningu- fágaðri framkomu
Flyt handa dömunni- ósamið lag.
orðlausa lífspeki- ómálga hugsanir
Ást sem er framliðin- núna í dag
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.11.2009 | 04:32
kolbiluð.

Hún virtist oft- vera af göflum gengin
gargaði af reiði- og virkaði sjúklega hrærð
Uns tók sig til- og hún stillti streng sinn
varð" stóísk sem engill- og brosti af himneskri værð
Hún átti til- með að tala tungum
Tárast án raka og rangtúlka það sem var sagt
og sverta mig- er hún sakar þungum
sökum um pretti sem ég hafði aldrei planlagt
í augum fólks- var hún algjört yndi
óvenju kurteis og viðkoman kvenlega hlý
Það var sem allt- saman lék í lindi
Líf hennar væri -sem bleiklitt og dúnbólstrað ský
Andsetin-kvendjöfull
illhvittinn- útsmoginn
baneitruð- villt naðra
en vel-leikin -óskhyggja.
og alsaklaus- ásýndar
Bloggar | Breytt 29.11.2009 kl. 04:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.11.2009 | 15:18
Ég barði jólasveininn í klessu.
Varúð- varúð- varúð
Vinsamlegast harðlæsið hurðum og opnanlegum gluggum. Takið upp haglabyssuna og verið með handsprengjuna til taks. Setjið tappa fyrir eyrun og hendið sjónvarpinu í ruslið. Aðgirðið húsin ykkar með 500wolta rafmagngirðingum og grafið ótal tundurduflum ofan í grasflötin. Ef einhverjum dirfist að heimsækja ykkur - spyrjið þá viðkomandi um skilríki og segið honum að hypja sig ef hann er fúlskeggjaður.
-Já en afhverju-nú jólasveinninn er að koma
Framundan er væmin útvarpsviðbjóður í formi hundleiðinlegra jólalaga og útvarpsauglýsinga. Það eitt er nægjanleg pinting útaf fyrir sig -en að bæta síðan þessum sískeggjuðu jólasauðum ofan á þessa hátíð "kaups og ófriðar"- er meira en ég get látið bjóða mér.
-KRAKKAR MÍNIR KOMIÐ ÞIÐ SÆL-ææi þegiðu viðbjóðurinn þinn.Sagði ég við síðasta jólasvein sem var að hóa ofan í eyrum mínum. Ég sló hann síðan þéttingsfast utan undir með þeim afleiðingum að kallinn fékk blóðnasir. Þar næst sparkaði ég hann í sköflungin og kýldi hann í magan.Já en ég er jólasveinninn - hvað hef ég gert þér ?Spurði jólasveinninn í þykistusakleysinu sínu og lá á jörðinni. Hann skildi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið og var í öngvum sínum.Já einmitt og þessvegna er ég að berja þig.Jólasveinninn er auglýsingabrella kaupmanna og er notaður sem barnagæla til þess að auka viðskipti sölumanna.-Mamma ég vil playmo-Pabbi mig langar í alveg eins leikföng og hann
æpa börnin í einni kös eftir að jólasauðurinn hefur espað upp í þeim kapitalískt kaupæði.Jólin eru nefnilega vertíð kaupmanna en ekki fögnuður ljós og friðar. Þetta er ein besta leið sem sölumenn getað fundið upp á til þess að auðnast peninga og þeirra helsta gróðavon til þess að græða á tá og fingri.Toppurinn á þessu heildarsamsæri er jólasveinninn sem er notaður til þess að láta börnin nuða meira í foreldrum sínum og með þeim hætti neiðast foreldranir að taka upp budduna sína að óþörfu til þess að friðþægja krakkakróanna sína.Allavega er ég búin að ákveða hvernig ég ætla að eyða jólunum. Með eyrnartappa og í ró og næði frá allri þessari kös leiðindanna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Halla Rut
-
Anna Einarsdóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Signý
-
Kreppumaður
-
Fríða Eyland
-
Heiða Þórðar
-
Bara Steini
-
Marta B Helgadóttir
-
halkatla
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sema Erla Serdar
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Björgvin
-
Bjarki Tryggvason
-
Jón Þór Ólafsson
-
Brissó B. Johannsson
-
Tinna Jónsdóttir
-
Sigurlaug Kristjánsdóttir
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Aðalheiður Ámundadóttir
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Ásgerður
-
Brattur
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Bergur Thorberg
-
Viktor Einarsson
-
Agný
-
Lady Elín
-
Guðfríður Lilja
-
Gunnar Axel Axelsson
-
Óskar Helgi Helgason
-
Sigurður Viktor Úlfarsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Matti sax
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
kiza
-
Huld S. Ringsted
-
www.zordis.com
-
Brjánn Guðjónsson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Jónína Dúadóttir
-
Páll Geir Bjarnason
-
Sigríður Hafsteinsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Stríða
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
S. Lúther Gestsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Ólöf Anna Brynjarsdóttir
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Sævar Einarsson
-
Gullvagninn
-
Kolgrima
-
Óskar Þorkelsson
-
Helga Dóra
-
Guðrún Birna le Sage de Fontenay
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Óskar Arnórsson
-
Kristín Jakobsdóttir Richter
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldóra Rán
-
Helga Magnúsdóttir
-
Guðrún Lilja
-
Mía litla
-
Íris Arnardóttir....vitringur
-
Þórhildur Daðadóttir
-
polly82
-
Andrea
-
Hdora
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Brynja skordal
-
SeeingRed
-
Benna
-
Villi Asgeirsson
-
Svartagall
-
Alfreð Símonarson
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Skattborgari
-
Aprílrós
-
Mál 214
-
Bwahahaha...
-
Isis
-
persóna
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Vefritid
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Hlédís
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Eva
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
brahim
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar