Krúttmundur Kisulóra sykursætuson mætir í útvarpsviðtal

 

Spyrill-JáWink  komið þið sæl og velkomin í þáttinn,Kynlegur kvistur. Hjá mér er maður sem heitir því einkennilega nafni Krúttmundur Kisulóra Sykursætuson, en Krúttmundur lét skýra sig þessu einkennilega nafni, gegn vilja mannanafnanefndar og stendur nú í hatrammri deilu við nefndina um hvort sú gjörð hafi verið lögmæt. Komdu sæll Krúttmundur

 

KrúttmundurNinja - komdu sæll

 

spyrill Woundering  -Nú krefst þú þess að mannanfanfanefnd samþykki þetta nýnefni þitt- ellega munt þú beita ofbeldisfullum aðgerðum, svo sem hryðjuverkum og fara í heilagt stríð við nefndina…. finnst þér það ekki full hastarleg viðbrögð ?

 

Krúttmundur  Ninja- Þú ert sem sagt að halda því fram að það er eitthvað athugavert að vera í skoðannaágreiningi við fólk og vilja taka þann sem er ósammála þér og slá hann hressilega í framan . Sér í lagi ef hann á það skilið..Og svo…

 

Spyrill (grípur fram í ) Gasp ?Bíddu bíddu bíddu… sérð þú ekkert athugavert við að beita hnefalögmálum í skoðannaágreiningi ?

 

Krúttmundur -Ninja Sko… Ekki hnefalögmálum - heldur kynhestum og smá glóðuraugastympingum

 

Spyrill -FootinMouth En víkjum að öðru. Nú myndu fáir segja að þetta nýnefni þitt" Krúttmundur Kisulóra Sykursætuson" Eigi við þig þar sem þú ert velþekktur skapmaður sem hikar ekki við að beita hnefanum við minnstu ástæðu.

 

Krúttmundur Ninja? Ég er baráttumaður réttlætis og hef aldrei nokkurn tíman slegið frá mér að firra bragði…. nema í þau skipti sem ég hef verið að skemmta mér eða langað til þess.

 

SpyrillGasp ? HA ???

 

Krúttmundur Ninja- Ég get lofað þér því að ef þú skoðar feril minn - þá sérðu að ég er fyrst og fremst fórnarlmab óréttlætis í samfélaginu.

 

SpyrillErrm. Nú hefur þú þegar verið kærður fyrir að - Hlaupa inn á fótboltavöll og löðrunga sóknarmann vegna þess að hann klúðraði á dauðafæri - og þegar leikmenn liðsins brugðust honum til varnar átt þú að hafa gengið bersesgang og látið högginn dynja á liðinu með þeim afleiðingum að fjórir lágu rotaðir eftir þig og tveir af þeim handleggsbrottnir. 

 

 


krúttmundur - Ninja Ég er bara fórnarlamb minna sterku skoðanna. Eins og í þessu tilfelli var ég aðeins að leggja áheyrlu á orð mín og varð sjálfur fyrir miklu verri barsmíðum af þeirra hálfu.
 

 

 SpyrillAngry -  já svo ertu líka orðin landsfrægur fyrir að leika þig fórnarlamb .Eins og í þessu tilfelli er þú réðst inn á fótboltavöllinn, þá léstu byrta mynd af þér á netheimum með glóðurauga og hélst því fram að þú hefðir orðið fyrir barðinu á ranglæti.

 

KrúttmundurNinja - Heyrðu ...það má ekki taka þessu sem ofbeldi. Ég var aðeins að gagnrína hann.

 

Spyrill -Angry Ætlar þú að kalla það gagnríni að berja sóknarmann svo það stórsjái á honum og steinrota fjóra liðsfélaga hans ?

 

Krúttmundur Ninja- Þetta var sjálfsvörn. þeir ráðast á mig þegar ég er að tala við þennan sóknarmann og ég átti mér ekki neinna annarra kosta völ en að bregðast til varnar.

 

SpyrillFootinMouth - En nú sé ég að þetta glóðurauga er málað á þig og það vantar ekki neinar framtennur í þig eins og þú hefur haldið fram á netheimum. Hvernig má það vera þar sem þessi áflog áttu sér stað fyrir minna heldur en fyrir viku síðan að þú byrtir þessa mynd af þér fyrir tveimur dögum síðan

 

 


   Krúttmundur Ninja- Heyrðu nú gekkstu skrefinu of langt ....ertu að væna mig um lygar (Kýlir spyrilinn í framan )
 

 

SpyrillCrying - ÁÁÁÁÁÁÁÁ kýldir þú mig í framan ?

 

KrúttmundurNinja (talar á sama tíma og og hann kýlir spyrilinn reglulega)- Nei ég er ekki að lemja þig.. heldur að leggja áheyrslu á orð mín - það er alltaf sama sagan með ykkur vinnstri öfgamennina. Ég mæti hérna í einlægt útvarpsviðtal og þið endið á því að reyna að nauðga æru minni - já hafðu þetta - búmb - Og þetta búmb - (hann endar á að rota spyrilinn)

 

 


Tæknimaður- (kemur hlaupandi innGasp- hvað er ekki í lagi með þig ? Þú ert búinn að steinrota hann ?
 

 

 

Krúttmundur - NinjaHa ég ? NEI ÞETTA var bara smá skoðannaágreiningur.

 


Hvernig lýtur eiginlega "fullkomin" Bruggverksmiðja út ?

Hin fullkomna bruggverksmiðja verkar rauðvín á fimm mínútum og bruggar eðal-landa á augabragði. Hún er í laginu eins og svissneskur vasahnífur og það er einnig hægt að nota hana sem sportbíl.  Hún er á stærð við eldspýtstokk en annar meiri eftirspurn en Koka Kolaverksmiðjan og drykkir hennar gefa fimm mínútna langa raðfullnægingu.

Og svo getur hún líka breytt sér í skemmtiferðaskip að hætti Títaniks - Crying fullyrti sérfræðingur í samtali við mig, grátklökkur yfir þessu óaðfinnanlega tækniundri.

AÐ lögreglan hafi fundið -FULLKOMNA- Bruggversmiðju þykir mér því vera stórtíðindi og má líkja þeim við þegar Leifur heppni fann Ameríku. Íslendingar hafa nú eignast menningararf sem mætti líkja við píramíta Egiptalands eða frelsisstyttuna í New York. Við erum laus úr kreppunni og getum nú farið að lifa að hætti Saudi Arbíska fursta.

 


HIPP HIPP

 

 

HÚRRRRRRA 


mbl.is Runnu á brugglyktina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt ljóð sem ég var að leira saman með fallegum orðum.

Elliheimila rómantík

 

Hver einasti morgunn er ánægjustund

ef eyði ég honum með þér

Því návist þín gerir mig léttan í lund 

og lifandi innan í mér


Vek þig með dúnmjúkum kossi á kinn

uns kvenlegu augun þín sé 

Faðma þá fallegan líkama þinn

og færi þér nýlagað te


Við áttum vonir 

og vorljúfa drauma

sem rættust er við hittumst fyrst

Brosið þitt breytti

þá bölinu í dún 

og sál minni í laufgaðan kvist 


Hrörnandi ellin er alls ekkert slæm

og uppfull af gleði með þér 

Því þú ert svo opin og andlega næm

og alltaf jafn heilluð af mér 


Ég breytist í gleði þíns taktfasta tifs

og trúð sem að færir þér bros

og þú verður tindur míns hjartnæma hrifs

og mitt - háfleiga sköpunar gos

Sefandi og frjó sem kvos

 


 


Það er regnbogi í rökrinu.

 


Það er - Regnbogi í rökkrinu

Rósir úr fágæddu gulli

Múlbundnir munnar og

Máni sem inn í sér skín

Hjörtu úr hlýju

Sem heimurinn vill ekki elska

Vammlausar vofur

og verðlaus en unaðsleg skrín

 

Viðlag &

þarna ert þú – með þín dulrænu ugluaugu

þarna ert þú -sem heiminn í húminu sérð

Þarna ert þú- sem kemur úr annarri veröld

Þarna ert þú- sem frelsandi engill á ferð

 

Þar er tími án tilgangs

 Og tal sem er uppfullt af engu

Vængbrotnar vonir

Og vindur sem endalaust hvín

Þar sjást ekki söngfuglar

Syngja af einlagnri gleði

Því húminu hryllir

Við hlýrri og flekklausri sýn

 

& viðlag

  

Ég var -engill í álögum

 Orðinn að rykugu grjóti

Innan í örlagahlekkjum

Og öskri míns brjáls

Uns þú- Byggðir mér brú

Úr blíðum og róandi þokka

og huggaðir harm minn

með- hlýju þíns astríðubáls

 

& viðlag

 


Martraðaprinsinn kominn í bókabúðir.

 

 

Martraðaprinsinn -

 

Skáldsaga og mp3 hljóðbók í bland við 13 lög.

Fæst í öllum fínni bókabúðum.

 Útgefandi - Sarasvati.

 

Þið getið pantað eintak með því að hafa samband í gegnum alfa@this.is eða hringt í síma 8255444 í Alfheiði Eymarsdóttur eða talað við mig Brynjar Jóhannsson í síma 8227192.

 

Hérna getið þið meðal annars .....

 

 1- Lesið kafla úr skáldsögunni minni. Hér

 2- Hlustað á nokkur lög - Hér og eitt hér að neðan og svo getið þið hlustað á nokkur lög í spilaranum sem er hér til hliðar en þessi lög eru að finna í mp3 geisladisk sem fylgir bókinni. 

3- Þetta lag hér að neðan heitir Martraðaprinsinn- og er titillag þessa verks. En heildarverkið er skáldsaga og hljóðbók í bland við þrettán lög sem eru sungin til hálfs af mér og til hálfs af Þórunni Pálínu jónsdóttur sem hefur getið sér gott orð sem djasssöngkona. 

 

 

Ekki vera feimin við að biðja um Fésbókarvináttu mína.

Kveðja- Brynjar Jóhannsson.

 

 


Allt þessari helvítis kerlingu að kenna

Það getur fokið ansi mikið í vetradrottninguna. framferði hennar getur verið með hvassasta móti og þegar krafturinn er hvað mestur þá rífur hún heilu húsin upp frá rótum.

%&/()=#$%&/()=$%&/ Angry 

 Enginn lifandi máttur getur barist gegn aflraunum hennar þegar hún er í hvað pirruðust og þá er bara best að halda sér heima fyrir. 

 


Þetta lag er að finna á Martraðaprinsinum- sem er skáldsaga og mp3 hljóðbók í bland við 13 lög.
  Upplýsingar um skáldsöguna og geisladiskinn er hægt að finna í bókatíðindum. 

 

 


mbl.is Þakið á Eden að losna, flotbryggja í sundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kafli úr skáldsögunni minni,Martraðaprinsinn sem kemur út núna fyrir jólin.


Ég var beðinn um að sýna kafla úr Skáldsögunni minni  og varð ég góðfúslega við þeirri beiðni. 

  

Kær jólakveðja Brynjar Jóhannsson

 

ps. Ekki vera feimin að bjóða mér facebook vináttu ykkar ef þið viljið vita meira um mig.

 

 

II kafli

 Venjulegur helgardagur í lífi martraðaprins

Félagi minn vakti mig upp með hringingu á laugardagsmorgni og spurði mig hvort ég vildi hitta hann á Austurvelli. Ég var ennþá í draumalandinu er ég svaraði honum játandi og sagðist vera á leiðinni. Svefndrukkinn skreið ég fram úr rúminu og staulaðist inn á klósett. Ég horfði framan í spegilinn með þokumettum augum og kreisti síðustu leifarnar úr tannkremstúpunni til að bursta  tennurnar.

    - Næsta kona sem þú nærð í verður gyðja drauma þinna - sagði ég hughreystandi við manninn í speglinum sem samsinnti með væntumþykjulegu brosi. Ég klæddi mig í fatalarfana og labbaði niður í bæ.

            Á leiðinni til Austurvallar kom ég við á kaffihúsi og keypti mér Caffé Latte í pappírsbolla. Ég krunkaði fyrir hressingunni með því að grafa ofan í klinknámu buxnavasans.

    - Uuuu ... það vantar tuttugu krónur uppá - sagði ég skömmustulega við afgreiðsludömuna að lokinni mynttalningu og gróf eftir krumpuðum fimmþúsundkalli.

    - Ekkert mál þú borgar bara næst - sagði afgreiðsludaman og brosti til mín.

Ég þakkaði kurteislega fyrir mig og hélt mína leið. 

 

Skelfileg mistök

Þennan sólríka dag á Austurvelli var Amor enn og aftur utan við sig og var farinn í kaffipásu þegar lærlingurinn mundaði bogann. Aðalverkefni dagsins var að láta snobbsvínku falla fyrir höfðingja.

            Snobbsvínkan var nýkomin á svæðið og labbaði áfram með frekjulegan svip. Hún gekk um eins og drottning á rauðum dregli og geislandi af sjálfumglöðu yfirlæti. Kvenfólk horfði til sjálfskipaðrar hátignarinnar ýmist uppfullt af öfund eða  af  mikilli aðdáun. Karlmenn góndu dáleiddir á gullfallegt andlitið eða störðu rangeygir á risastór brjóstin.

            Höfðinginn sem snobbsvínkan átti að falla fyrir sat á grasinu fyrir aftan styttu þjóðhöfðingjans og var umkringdur vinum sínum. Ég, martraðaprinsinn, gekk þreytulega áfram með stírur í augum og leitaði félaga míns með sjóðheitan pappírskaffibolla í hendinni. Eins og venjulega var ég ekki með hugann við stað og stund er ég reyndi að finna slóð í gegnum mannmergðina. Með hausinn upp í draumkenndum skýjum starði ég út í loftið, rak tána í grasið og féll fram fyrir mig á jörðina. Það skvettist úr kaffibollanum framan í andlit höfðingjans sem veinaði og rauk á fætur.

            Snobbsvínkan snéri sér við er hún heyrði hávaðaganginn og leit beint í augu mín. Lærlingur Amors þandi bogann og skaut ástarörinni í hjartastað snobbsvínkunnar.

Hún fann fyrir rafmögnuðum losta. Endorfínið magnaði upp draumkennda sæluvímu og eggjastokkarnir klingdu hærra en kirkjubjöllur Hallgrímskirkju. Þúsund fiðrildi flögruðu um í maganum og augun störðu dáleidd á mig án þess að skilja hvers vegna. Hún horfði á áhyggjulaust bros mitt og villimannlegt fas

            Þar sem ég var ekki rammaður inn í heildarmynd væntinganna mótmælti hún kröftuglega. Ef ég væri höfðingi sem ljómaði af ríkmannlegum glæsileika hefði hún laðast að mér líkt og kráka að gulli og látið segul sinna innri langana draga sig að mér án nokkurs viðnáms. En ég var martraðaprins og þess vegna þráaðist hún á móti.

 

...Á augabragði varð efasemdarspurningarlistinn til. 

 

Efasemdarspurningalisti snobbsvínkunnar

1.      Hvernig dettur honum í hug að láta sjá sig í  götóttum sokkum og óreimuðum skóm og það á Austurvelli ? Mínus

2.      Er hann nývaknaður upp eftir fyllerí ? Mínus

3.      Af hverju finnst mér hann kynferðislega aðlaðandi ? Fráhrindandi plús

4.      Gæti þessi maður séð fyrir mér og orðið faðir barna minna ? Nei

5.      Hvers vegna er hann svona sjálfsöruggur ? Fráhrindandi plús

6.      Má vera að þessi ósiðsamlegivillimaður sé láglaunamaður eða jafnvel á atvinnuleysisbótum? Mínus

7.      Hvað er svona dulrænt og spennandi við hann ? Fráhrindandi plús

8.      Yrði hann samþykktur af mínum vinkvennahópi eða fjölskyldu ? Nei

9.      Get ég náð í betri mann en hann ?

10.  Eigum við eitthvað sameiginlegt ? Nei

11.  Gæti ég breytt honum til betri vegar ? Nei, hann er óalandi

 

Martraðarkennd togstreita myndaðist á milli skynsemishyggju og ástríðu.

Dópamínflæðið var komið á hættulegt stig og óþægilega góð vellíðunartilfinning streymdi um líkama hennar. Daman var komin í þversagnakennda flækju, hún vildi ekki það sem hún vildi. Hana langaði að líta undan en gat það ekki og varð að vita hvað væri svona heillandi við mig. Hún lagði aftur fyrir sig spurningalistann en fékk sömu svör.

 

    - Hvað átti hún að gera?

 

Vinahópi höfðingjans brá er ég hellti kaffibollanum yfir hann en þegar þeim var litið á mig glottu þeir út í annað. Ég baðst innilega afsökunar. Eins og sönnum höfðingja sæmir tók hann afsökunarbeiðninni vel, raunar þakkaði hann mér fyrir að bjarga deginum.

            Er ég staulaðist á fætur góndu nærstaddir á mig með hláturmild bros á vör. Allir nema snobbsvínkan sem horfði dolfallin á mig er ég settist hjá félaga mínum í  grasið við Austurvöll.


Englarnir glottu

 

Englarnir glottu og drottinn hló með

er boginn hjá Amori brást

við brunnum af gagnkvæmri ást

 í  morgunsárið

Heillaðist af þér er hafði þig séð

klæddan í fráleitum fötum

í forljótum sokkum með götum

og ógreitt hárið

Voru örlögin ráðin því engu ég réð

því augun og eitthvað við þig

alfarið heillaði mig

 upp úr skónum

Við Austurvöll sá þig sitja við beð

virkaðir tómur og tregur

svo trúðslega hallærislegur

frá allra sjónum

 

Og ég sem var snobbaður fagurgali

og háskólamenntuð dama

Féll dolfallin fyrir þér horfði á þig hreyfilama

klæddur í fötum úr Kolaportinu á tali við ribbaldalýð

 

Og mig sem að langaði í velgefinn mann

en féll fyrir fífli eins og þér

svo fjarri því hvernig ég er

inn við beinið

En frá þeirri stundu þig elskaði og ann

samt þyki ég erfið og efins

og alls engum karlmönnum gefin

þó allt þeir reyni

Mig langaði í einhvern sem ýmislegt kann

sem er öfugt við það sem þú ert

sem ekkert í raun getur gert

sem er einhvers virði

Ég sá það í hillingum- á mér það fann

að sameinuð höldumst í hendur

og við hlið mér við altarið stendur

og gefin þér yrði

 

Textinn er við lag sem er að finna í hljóðbókinni sem fylgir geisladisknum.


 

 

 

 


Nei -Ég sá þetta ekki fyrir mér.

Ég samdi þetta ljóð árið 2007 og sé ekki betur en ég hafi verið ágætlega meðvitaður um það sem var í gangi í samfélaginu á þeim tíma.
 
 
Trúum á heillandi loforð sem leiðtoginn strengir
Lofum hans ræður um sjálfbæra peningalind
Upphefjum óheilladísir og glópagulldrengi
gráðuga úlfa sem klífa upp metorðatind

Hann vill við vitum helst minnst
og ákveða hvað fólkinu finnst

Trúum í blindni að leiðtoginn loforðin efni
Lifum í fallegri draumaborg hugmynda hans
Vanvirðum gagnrína hugsuði og göngum í svefni
Gargandi stígum- við gullkálfinn darraðadans
 

Söngtexti við lag sem ég lauk við nýverið.

 
Ef –hugsa til þín heillin mín
Þá heyri inn í mér
Bomb be di bomb- Tikk – ki – ti – ku - aaaaaaaaaaaaaa
Sem þýðir víst á Íslensku “ó ég elska þig”

Ég heyri’ Sídynjandi hamarshögg
Og Hástemmt lagakver
Bomb be di bomb- Tikk – ki – ti – ku - aaaaaaaaaaaaaa
 sem kallast víst á íslensku  “ó ég elska þig”.

Nú veist að ég er örlagaklaufi
Og einhverskonar kvennafífl

Bomb-be-de –bomb
Sem að elskar þig

Finnst þú vera máttugri en hundrað manna her
hjartað mitt með tif-máli- það sífellt segi mér
 
Bomb bedí bomb
Þú ert draumagyðjan
Bombedí bomb
þú ert ástin mín
fröken endorfín
 
Einn í mykru morgunsári
Með þig lýmda á heilanum
Týni mér í dagsins amstri
Er að fara yfir um

Upp á fjalli og alfarið einn og sér.
Úti á túni – fjarri sjálfum mér
 
á Himnu augna minna - ert veikgeðja vonarblys
er Vindur alls sem iðrast- blæs mér andspænis.
það- eina sem mín býður - er tilveran tregastillt
og tímavinnan óuppfyllt.

byrtist mér sem vonarljós og huggun harmi gegn
hlý sem sunnan vorgola og blíðleg gleðifregn.
Bomb be di bomb
þú ert draumagyðjan
bomb be di bomb
þú ert ástin mín
fröken endorfín.
 
Einn í mykru morgunsári
Með þig lýmda á heilanum
Týni mér í dagsins amstri
Er að fara yfir um

Upp á fjalli og alfarið einn og sér
Úti á túni fjarri sjálfum mér

Líf mitt enn og aftur- er nöturlegt hér og nú
hið- nýstingakalda morgunsár-fer sem og da sja vo
Finnst ég vera draugur - Enn og aftur einn
álitin sem ekki neinn.
 
Uppi á fjalli – alfarið einn og sér
Úti á túni fjarri sjálfum mér


Staðreyndir hundana

Ég hef fundið ótrúlegustu furðuhluti í ruslinu heima hjá mér. Um daginn fann ég rússneskan kafbát og þrjá sænska landgönguliða, þrjátíu og fjórar klaustursnunnur og tvo frystitogara. 


GEIRFINNUR ERT ÞETTA ÞÚ Gasp

Spurði ég furðuveru sem líktist  gömlum manni  sem sat að bjórþambi undir eldhúsvaskinum.

Hættu þessum svívirðingum ég er íslenska fjallkonan Devil

Svaraði þessi furðuvera sem var orðin fúlskeggjuð og gráhærð, geðstirð og hundleiðinleg í hátterni.


Ó þú meinar. Gasp

Svaraði ég og sá fram á að það væri ekki lengur líft þarna inni nema ég færi að......... hoppa og síðan þá hef ég stundað þá iðju oft og iðurlega með mjög góðum árangri. Ég hef áhveðið að eyða því sem eftir er að æfi minni í að dansa... 


ÓJE 

 

 


mbl.is Fannst eftir tvö ár í skolpinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 184869

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband