Laun kvenna ættu að vera helmingi hærri en hjá karlmönnum

Ég á mér draum! Ég sé fyrir mér í hyllingum að ég eignist mér kvonfang sem væri fyrirvinna mín og mitt hlutverk innan veggja heimilisins væri fyrst og fremst að segja lélega aulabrandara. Ég þyrfti ekki að lyfta einu búsáhaldi í heimilsstyrjöldinni á milli kynjanna því það væri sérlegur heimilis-tiltektar-sérfræðingur tekin á leigu í það verkefni, hvern mánuð, í boði konunnar. Á meðan ég gegndi hlutverki heimavinnandi heimilisfíflsins ynni kvonfang mitt myrkranna á milli og finni sér ekki ró í leit af sínum starfsframa. Ekki veit ég hvort börn mín og þessarar draumakonu minnar yrðu vel upp alin en ég get fullvissað að þau yrðu skemmtilegri en tíðgast í þessu samfélagi. Ég myndi kenna krökkum okkar dásamlegar dyggðir eins og að liggja í leti og nauðsinlega borðsiði eins og sjarmerandi kjaftbrúk.

Af gefnu tilefni er ég andsnúinn launamismuni kynjanna. Almennt séð þykir mér sjálfsögð krafa að konur séu á helmingi hærri launum en karlmenn svo náungar mér líkir geti sest í helgan stein. Einkennilegra ástæða vegna fellur þessi stuðningur minn við kvennabaráttuna í gríttan jarðveg og vilja sumar konur meina að ég sé baráttu þeirra lítið annað en steinn í götu. Í stað þess að bjarga þeim frá peningalegri mismunun sé ég að gera þær að launaþrælum svo ég geti legið heima fyrir í semískri leti. 

 

Gerir þú þér grein fyrir því að innlegg þitt í kvennabaráttunna er gjörsamlega út í hött ?Angry

Væru feministar vísir til að æpa á mig.

 

Já en ég er er karlmaður! Karlmenn fæddust til að vera kvenfólki til ama og leiðinda. Gasp

 

Já en villtu ekki vera eitthvað annað en steinn í götu kvennabaráttunnar.  Angry

Gætu kvendýrin hvæst þá gegn mér. 

 

Það er þó allaveganna skárra að vera steinn í götu en Bjarg á herðum ykkar. Cool

útskýri ég fyrir þeim hreikin af sjálfum mér og bið þau vinsamlega að setja upp polliönnu gleraugun því meira segja ég get verið verri maður en ég lýt út fyrir að vera.  

 

 


mbl.is Óútskýrður launamunur 7%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er það þannig að hávaxnir fá umþað bil 20% hærri laun en lágvaxnir.

Konur eru að meðaltali töluvert lávaxnari en karlar.  Ef tekið er tillit til þessarar breytu þá hafa konur í raun hærri laun en karlar.

Jafnréttisbarátta kynjanna er ekkert annað en dulbúin barátta lágvaxina til þess að réttur þeirra sé meiri en hæð þeirra segir til um. 

Bragi (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 16:38

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þú ert óborganlegur

Jónína Dúadóttir, 20.2.2009 kl. 17:26

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Bragi..

ef þessi kenning þín gengur eftir þá ættu körfuboltakvendi að vera á hærri launum að staðaldri en fimleikastelpur :)

Jónina..

Óborganlegur ??? .. ég er ekkert miklu ódýrari í rekstri en venjuleg kona 

Brynjar Jóhannsson, 20.2.2009 kl. 18:25

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Gunnar..

þetta var meira bara draumur

Tinna

ÉG flyt náttturulega INN á konunna. 

Brynjar Jóhannsson, 24.2.2009 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband