VIð verðum Ólimpíumeistarar.

 Yndislegri upplifun er ekki hægt að hugsa sér þegar ég labbaði út af Hressó þegar íslenska handboltalandsliðið var búið að valta yfir Spánverja í fjórðungsúrslitunum. Ég ýki ekki eitt einasta orð. Fólk var stígandi sigurdans á Lækjargötunni þegar það gekk út af nærstöddum börum. Sumir voru syngjandi íslenska þjóðsönginn og engin réði ekki við sig af kæti.  ÉG hef aldrei á æfi minni séð neitt þessu líkt né nokkurn tíman verið jafn stoltur af því að vera Íslendingur. Ég var farin að hylma gleðitárin þegar ég horfði á lokasekúndur leiksins því ég réði ekki við tilfinningar mínar. Það var sannkölluð víkingastemmning í loftinu og engu líkara en hver einasti maður hafi verið á vellinum að hvetja liðið.

 

Sjáið

 

HÉR

 

 

Og sjáið

 

 
HÉR

 

Ég hef vitað það í langan tíma að íslenska handboltalandsliðið er með þeim bestu í heiminum. Það þarf ekki nema að hafa smjörþefsþekkingu á handbolta og vita hvernig byrjunarliðið okkar er mannað til þess að gera sér grein fyrir því að það er uppfullt af heimsklassaleikmönnum. Mér hefur alltaf fundist íslenska landsliðið vera örlítið undir getu nema þegar þeir komust í fjórðungs úrslit á EVRÓPUMÓTINU(man ekki hvenær). Á þessu móti með tilkomu Ingimars erum við allt í einu komnir með heimsklassa vörn sem hefur aldrei verið betri og því varð mér ljóst að við værum líklegir kadidantar til stórafreka á þessu móti þegar við unnum ríkjandi heimsmeistara frá Þýskalandi. það er ótrúlegt að geta hvílt menn eins og Sigfús öðru hvoru sem nýtur gríðarlegrar virðingar út um allan heim fyrir styrk sinn. Þó við séum aðeins 300 þúsund hræður sem búum í nánd við Svalbarða höfum við haft efnivið til að ná svona langt í handbolta í mjög langan tíma .

Ísland ER EINFALDLEGA MEÐ EITT BESTA HANDBOLTA LIÐ Í HEIMI.

 

Ég er alveg sammála Óla Stef... þegar hann sagði .. bara hreint út að við værum með betra lið en Spánverjar fyrir leikin og ég þykist viss um að hann telji okkur svipaða og Frakka og erum ekki síðri kadidantar í þeim leik í keppni um gullið. Ekki gleyma því að við unnum Frakka með 10 mörkum ekki fyrir löngu á stórmóti svo afhverju ættum við ekki að getað gert það aftur ?  

 

Ég segi það og skrifa.

VIÐ VERÐUM ÓLIMPÍUMEISTARAR i HANDBOLTA ÁRIÐ "2008".

 


mbl.is Íslenska þjóðin fagnar sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Áfram Ísland

Jónína Dúadóttir, 22.8.2008 kl. 19:56

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

SAMMÁLA SÍÐASTA RÆÐUMANNI

Brynjar Jóhannsson, 22.8.2008 kl. 19:57

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Áframmm ÍslaaaaandVið erum stærstust og bestust

Jónína Dúadóttir, 23.8.2008 kl. 00:05

4 Smámynd: Halla Rut

Þú ert virkilega sannspár. Getur þú gefið mér tölur í næsta Lotto?

Halla Rut , 23.8.2008 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband