28.7.2008 | 14:48
Fígúrur lífsgæðakapphlaupsins...
Minni íbúð-
ódýrt vískí-
lítil innkaup
og hippakonur
Mig langar að votta skuldunautum vors lands samúð mína, með einlægri von um að þeir drukkni ekki ofan í skuldafeninu. Helst vildi ég að þeir nái að sigla milli skels á og báru í þessum ólgusjó íslensks efnahagslífs og að veski þeirra verði ekki tæmt í einni af ránsferðum verðbólgudraugsins.
-búúúúúúúú komdu með peninganna þína eða þú færð ekkert að borða -
Gamanið væri orðið einum of grátt ef skuldunautarnir eiga ekki fyrir innborgun á íbúðinni sinni og geta ekki leyft sér mikið meira en að bora í nefið.
Ég skal halda inni í mér hlátrinum
og láta naumhyggju-skoðun mína sem minnst í ljós.
Lagið er hér...Veldu hlustið og ýttu á lagnúmer 4 á geislaspilaranum
Fígúrur lífsgæðakapphlaupsins
Er klappstýra lífsgæða kapphlaupsins hvetjandi styður
sinn kappa sem bíður í rúmi að vekjarinn flauti
Þá Barbí er barinn en Ken hann er urðaður niður
með bókhaldareikningum lögmanns og gjaldkera tauti
grasasni tískunnar gulrætur sölumanns bryður
sem gráðugan Mammon í bæn sinni þrálátt tilbiður
og bjallan hún glymur og Súpermann setur skikkjuna
sem svífur af stað fellur strax ofan í valinn
og kúrekar viðskiptalífsins þeir berja í bikkjuna
sem ber þá af stað eins og eimreið um táradalinn
og konungur hégómans fellur í hengingarlykkjuna
og hrókur alls fagnaðar sekkur í alkahóldrykkjuna
steinrunnar verkalýðshetjunnar vakna úr dvala
sem vonast um bættari lífskjör í tvístraðri einingu
og karlinn í kotinu hleypur að verðbréfa sala
og kaupir sér hlut í íslenskri erfðargreiningu
snobbhænur lyfta upp nefi og lofthanar gala
er um lífsgæðakapphlaupsins ávinning byrja að tala
og lýðurinn glottir og kóngurinn vandar ei kveðjurnar
er karlinn í brekkunni skrattanum skemmtir með söngvum
og riddarar íhaldsins taka úr slíðrunum sveðjunnar
sem slá mót lágstéttar hermaurum hnöktandi í öngum
er skjaldbaka hversdagsins sporar nær spektlaus um leðjuna
einn sparigrís bætir við hlekkjum í verslunarkeðjuna
mig langar að þakka ákveðnum aðilum fyrir innblástur í þetta
fallega ljóð sem er ort til yfirborðskenndar íslenskrar þjóðarsálar en viðkomandi einstaklingar eru.
Barbí dúkkur með aflitað hár
prinsinn á hvíta porsinum
jakkaklæddir hvítflippar
tískufrík og barmellur
súkkulaðibrenndir líkamsræktartrukkar
módel með anoerexiu
íhaldið í öllum flokkum
menntahyskið aura púkar
snobbpíkur gáfnarembingspakk
og forstjórinn á flotta jeppanum
að lokum langar mér að segja eitt mikilvægt sannleikskorn,
en það er: fegurðin skiptir ekki máli heldur peningarnir
taka lán kaupa bíl kaupa hús vera í tísku veisla föt veisla meira meira meira
innrætið skiptir ekki máli heldur innrætið útlitið leikföngin og lífsstíllinn
Erfiðleikar hjá húskaupendum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Halla Rut
- Anna Einarsdóttir
- Kristinn Theódórsson
- Signý
- Kreppumaður
- Fríða Eyland
- Heiða Þórðar
- Bara Steini
- Marta B Helgadóttir
- halkatla
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sema Erla Serdar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Björgvin
- Bjarki Tryggvason
- Jón Þór Ólafsson
- Brissó B. Johannsson
- Tinna Jónsdóttir
- Sigurlaug Kristjánsdóttir
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Ásgerður
- Brattur
- Jóna Á. Gísladóttir
- Bergur Thorberg
- Viktor Einarsson
- Agný
- Lady Elín
- Guðfríður Lilja
- Gunnar Axel Axelsson
- Óskar Helgi Helgason
- Sigurður Viktor Úlfarsson
- Baldur Fjölnisson
- Matti sax
- Ingunn Jóna Gísladóttir
- kiza
- Huld S. Ringsted
- www.zordis.com
- Brjánn Guðjónsson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Geir Bjarnason
- Sigríður Hafsteinsdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Jón Steinar Ragnarsson
- Stríða
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Georg P Sveinbjörnsson
- S. Lúther Gestsson
- Markús frá Djúpalæk
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Ólöf Anna Brynjarsdóttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sævar Einarsson
- Gullvagninn
- Kolgrima
- Óskar Þorkelsson
- Helga Dóra
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Óskar Arnórsson
- Kristín Jakobsdóttir Richter
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldóra Rán
- Helga Magnúsdóttir
- Guðrún Lilja
- Mía litla
- Íris Arnardóttir....vitringur
- Þórhildur Daðadóttir
- polly82
- Andrea
- Hdora
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Brynja skordal
- SeeingRed
- Benna
- Villi Asgeirsson
- Svartagall
- Alfreð Símonarson
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Skattborgari
- Aprílrós
- Mál 214
- Bwahahaha...
- Isis
- persóna
- Vilhjálmur Árnason
- Þráinn Jökull Elísson
- Vefritid
- Guðmundur Óli Scheving
- Hlédís
- Aldís Gunnarsdóttir
- Eva
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- brahim
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hvernig væri að þú myndir semja áramótaskaupið í ár.
Johnny Bravo, 28.7.2008 kl. 15:34
Já hvernig væri það Johnny ...
Það væru viðbrigði.. uuu fyir mig allaveganna.
Brynjar Jóhannsson, 28.7.2008 kl. 15:42
Þetta væri fyndið ef þetta væri ekki svona sorglega satt. Fólk nær stöðugt verr endum saman og ungt barnafólk sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið stefnir beina leið til helvítis út af þessari verðbólgu og okurvöxtum.
Helga Magnúsdóttir, 29.7.2008 kl. 12:27
Varðandi það að fólk eigi ekki hús yfir höfuðið Helga þá þykir mér það einkar sorglegt. Verr og miður fengu bankanir að keppa við íbúðarlánarsjóð á sínum tíma sem varð þess valdandi að íbúðarverð rauk upp úr öllu valdi. Sorgleg staðreynd en sönn.
Brynjar Jóhannsson, 29.7.2008 kl. 14:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.