Upptök jarðskjálftans í Grímsey voru á Reykjavíkursvæðinu og tengjast þrasi á Mbl.is

Í gær mældist mikill jarðskjálfti á norðurlandi og var virkni hans mest í Grímsey. Mín "einkennilegu jarðvísindi" hafa uppgvötað hvar upptök skjálftans áttu rætur sínar að rekja. Þó titringurinn hafi fundist aðallega í Grímseyjum sýna stórskrítnar vísindarannsóknir mínar að upptökin náðu alla leið til Reykjavíkur.Líklega kemur það mörgum á óvart að ég hef komist að þeirri niðurstöðu að skjálftavirknin hafi byrjað hér inn á bloggsíðunni minni á mbl.is.

Hvernig lýsa upptök Grímseyjarskjálftans sér ? 

Undanfarið hef ég staðið í blóðugum þrasræðum við manneskju og verður ekki annað sagt en að þvaðrið sé orðið ansi langdregið. Allt er á reiðiskjálfi innan bloggsvæðisins í augnablikinu og er færslan á góðri leið með að verða ein allsherjar langloka. Ég hef poppað ítrekað inná heitustu umræður vegna þrefsins og ná upptökin á þessum samræðum tvær bloggfærslur aftur í tíman. Ekki verður séð í augnablikinu að hristingurinn sé í rénum. Titringur þrassins hefur mælst alloft upp á miklu meira heldur en 8 á ritker en hingað til þess eðlis að hann mælist ekki á skjálftamæli heldur meira sem andlegur titringur. Ég sé mér því ekki annað fært en að senda Grímseyingum þessa fréttartilkynningu í von um að þeir fari nú ekki að blanda sér líka inn í þessa bloggfærslu, því nægur er þegar skaðinn orðin. 

"Ágætir landsmenn og þá sér í lagi Grímseyingar" Crying

"Það var aldrei tilgangur minn að blanda ykkur eyjaskeggjum inn í bloggsamræður mínar með þessum hætti og er ég afar leiður yfir þessari skjálftavirkni fyrir norðan. Ég vona að afsökunarbeiðni mín sé tekin góð og gild  og þið sýnið mér skilning í þessu erfiðleikamáli. Það er nú ekki auðvelt að eiga sér bloggóvini sem hata mig út af lífinu og fá raðfullnægingu ef þeim tekst að espa mig upp og standa í þrasi við mig."

Með fullri virðingu 

Brylli. 

Umræðan er orðin að einum allsherjar umræðu-blóðpolli og hefur dregið marga menn inn í þessar samræður. Guði sé lof hefur engin látist í þessum náttúruhamförum og vonandi munu allir komast lifandi undan þessum blóðuga vígvelli sem bloggsvæðið mitt er orðið þvert gegn mínum vilja. 

 

 

 

 


mbl.is „Mikill titringur í dag"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skattborgari

Hahahahaha langt síðan ég hef hlegið eins mikið af einni bloggfærslu. Virkilega fyndið. Nú vita Grímseyingar hvert þeir eiga að senda reikningin fyrir skemdunum sem skjálftinn olli ef þær eru einhverjar. Verður næsti kannski 8,4á richter eða verður kannski loftárás í staðin?

Skattborgari, 24.7.2008 kl. 02:49

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Aldrei að vita Skattborgari ...

Eina loftárásin sem mér er í huga í augnablikinu er "það viðrar vel til loftárasa með Sigurrrós" svo það er nokkuð ljóst að ekki verður það mjög blóðug loftárás

Brynjar Jóhannsson, 24.7.2008 kl. 02:56

3 Smámynd: Signý

Þú ert svo vondur... I like it! 

Signý, 24.7.2008 kl. 03:25

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

ÞEINKS BIEBÍ

Brynjar Jóhannsson, 24.7.2008 kl. 03:45

5 Smámynd: Lilja Kjerúlf

Ég held að þetta sé ein af þínum betri færslum

Lilja Kjerúlf, 24.7.2008 kl. 22:02

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Takk fyrir það.... Lilja.... :)

Brynjar Jóhannsson, 24.7.2008 kl. 22:14

7 Smámynd: Skattborgari

Góður leikur að loka bara færslunni til að binda endi á rifrildið. Vonandi dugar það.

Kveðja Skattborgari 

Skattborgari, 25.7.2008 kl. 02:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 184874

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband