29.4.2012 | 17:58
Krúttmundur Kisulóra sykursætuson mætir í útvarpsviðtal
Spyrill-Já komið þið sæl og velkomin í þáttinn,Kynlegur kvistur. Hjá mér er maður sem heitir því einkennilega nafni Krúttmundur Kisulóra Sykursætuson, en Krúttmundur lét skýra sig þessu einkennilega nafni, gegn vilja mannanafnanefndar og stendur nú í hatrammri deilu við nefndina um hvort sú gjörð hafi verið lögmæt. Komdu sæll Krúttmundur
Krúttmundur - komdu sæll
spyrill -Nú krefst þú þess að mannanfanfanefnd samþykki þetta nýnefni þitt- ellega munt þú beita ofbeldisfullum aðgerðum, svo sem hryðjuverkum og fara í heilagt stríð við nefndina
. finnst þér það ekki full hastarleg viðbrögð ?
Krúttmundur - Þú ert sem sagt að halda því fram að það er eitthvað athugavert að vera í skoðannaágreiningi við fólk og vilja taka þann sem er ósammála þér og slá hann hressilega í framan . Sér í lagi ef hann á það skilið..Og svo
Spyrill (grípur fram í ) ?Bíddu bíddu bíddu
sérð þú ekkert athugavert við að beita hnefalögmálum í skoðannaágreiningi ?
Krúttmundur - Sko
Ekki hnefalögmálum - heldur kynhestum og smá glóðuraugastympingum
Spyrill - En víkjum að öðru. Nú myndu fáir segja að þetta nýnefni þitt" Krúttmundur Kisulóra Sykursætuson" Eigi við þig þar sem þú ert velþekktur skapmaður sem hikar ekki við að beita hnefanum við minnstu ástæðu.
Krúttmundur ? Ég er baráttumaður réttlætis og hef aldrei nokkurn tíman slegið frá mér að firra bragði
. nema í þau skipti sem ég hef verið að skemmta mér eða langað til þess.
Spyrill ? HA ???
Krúttmundur - Ég get lofað þér því að ef þú skoðar feril minn - þá sérðu að ég er fyrst og fremst fórnarlmab óréttlætis í samfélaginu.
Spyrill. Nú hefur þú þegar verið kærður fyrir að - Hlaupa inn á fótboltavöll og löðrunga sóknarmann vegna þess að hann klúðraði á dauðafæri - og þegar leikmenn liðsins brugðust honum til varnar átt þú að hafa gengið bersesgang og látið högginn dynja á liðinu með þeim afleiðingum að fjórir lágu rotaðir eftir þig og tveir af þeim handleggsbrottnir.

Spyrill - já svo ertu líka orðin landsfrægur fyrir að leika þig fórnarlamb .Eins og í þessu tilfelli er þú réðst inn á fótboltavöllinn, þá léstu byrta mynd af þér á netheimum með glóðurauga og hélst því fram að þú hefðir orðið fyrir barðinu á ranglæti.
Krúttmundur - Heyrðu ...það má ekki taka þessu sem ofbeldi. Ég var aðeins að gagnrína hann.
Spyrill - Ætlar þú að kalla það gagnríni að berja sóknarmann svo það stórsjái á honum og steinrota fjóra liðsfélaga hans ?
Krúttmundur - Þetta var sjálfsvörn. þeir ráðast á mig þegar ég er að tala við þennan sóknarmann og ég átti mér ekki neinna annarra kosta völ en að bregðast til varnar.
Spyrill - En nú sé ég að þetta glóðurauga er málað á þig og það vantar ekki neinar framtennur í þig eins og þú hefur haldið fram á netheimum. Hvernig má það vera þar sem þessi áflog áttu sér stað fyrir minna heldur en fyrir viku síðan að þú byrtir þessa mynd af þér fyrir tveimur dögum síðan

Spyrill - ÁÁÁÁÁÁÁÁ kýldir þú mig í framan ?
Krúttmundur (talar á sama tíma og og hann kýlir spyrilinn reglulega)- Nei ég er ekki að lemja þig.. heldur að leggja áheyrslu á orð mín - það er alltaf sama sagan með ykkur vinnstri öfgamennina. Ég mæti hérna í einlægt útvarpsviðtal og þið endið á því að reyna að nauðga æru minni - já hafðu þetta - búmb - Og þetta búmb - (hann endar á að rota spyrilinn)

Krúttmundur -

Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2011 | 14:19
Hvernig lýtur eiginlega "fullkomin" Bruggverksmiðja út ?
Hin fullkomna bruggverksmiðja verkar rauðvín á fimm mínútum og bruggar eðal-landa á augabragði. Hún er í laginu eins og svissneskur vasahnífur og það er einnig hægt að nota hana sem sportbíl. Hún er á stærð við eldspýtstokk en annar meiri eftirspurn en Koka Kolaverksmiðjan og drykkir hennar gefa fimm mínútna langa raðfullnægingu.
Og svo getur hún líka breytt sér í skemmtiferðaskip að hætti Títaniks - fullyrti sérfræðingur í samtali við mig, grátklökkur yfir þessu óaðfinnanlega tækniundri.
AÐ lögreglan hafi fundið -FULLKOMNA- Bruggversmiðju þykir mér því vera stórtíðindi og má líkja þeim við þegar Leifur heppni fann Ameríku. Íslendingar hafa nú eignast menningararf sem mætti líkja við píramíta Egiptalands eða frelsisstyttuna í New York. Við erum laus úr kreppunni og getum nú farið að lifa að hætti Saudi Arbíska fursta.
HIPP HIPP
HÚRRRRRRA
![]() |
Runnu á brugglyktina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2011 | 22:35
Eitt ljóð sem ég var að leira saman með fallegum orðum.
Elliheimila rómantík
Hver einasti morgunn er ánægjustund
ef eyði ég honum með þér
Því návist þín gerir mig léttan í lund
og lifandi innan í mér
Vek þig með dúnmjúkum kossi á kinn
uns kvenlegu augun þín sé
Faðma þá fallegan líkama þinn
og færi þér nýlagað te
Við áttum vonir
og vorljúfa drauma
sem rættust er við hittumst fyrst
Brosið þitt breytti
þá bölinu í dún
og sál minni í laufgaðan kvist
Hrörnandi ellin er alls ekkert slæm
og uppfull af gleði með þér
Því þú ert svo opin og andlega næm
og alltaf jafn heilluð af mér
Ég breytist í gleði þíns taktfasta tifs
og trúð sem að færir þér bros
og þú verður tindur míns hjartnæma hrifs
og mitt - háfleiga sköpunar gos
Sefandi og frjó sem kvos
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.2.2011 | 22:03
Það er regnbogi í rökrinu.
Það er - Regnbogi í rökkrinu
Rósir úr fágæddu gulli
Múlbundnir munnar og
Máni sem inn í sér skín
Hjörtu úr hlýju
Sem heimurinn vill ekki elska
Vammlausar vofur
og verðlaus en unaðsleg skrín
Viðlag &
þarna ert þú með þín dulrænu ugluaugu
þarna ert þú -sem heiminn í húminu sérð
Þarna ert þú- sem kemur úr annarri veröld
Þarna ert þú- sem frelsandi engill á ferð
Og tal sem er uppfullt af engu
Vængbrotnar vonir
Og vindur sem endalaust hvín
Þar sjást ekki söngfuglar
Syngja af einlagnri gleði
Því húminu hryllir
Við hlýrri og flekklausri sýn
& viðlag
Orðinn að rykugu grjóti
Innan í örlagahlekkjum
Og öskri míns brjáls
Uns þú- Byggðir mér brú
Úr blíðum og róandi þokka
og huggaðir harm minn
með- hlýju þíns astríðubáls
& viðlag
Bloggar | Breytt 20.2.2011 kl. 01:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.12.2010 | 23:53
Martraðaprinsinn kominn í bókabúðir.
Martraðaprinsinn -
Skáldsaga og mp3 hljóðbók í bland við 13 lög.
Fæst í öllum fínni bókabúðum.
Útgefandi - Sarasvati.
Þið getið pantað eintak með því að hafa samband í gegnum alfa@this.is eða hringt í síma 8255444 í Alfheiði Eymarsdóttur eða talað við mig Brynjar Jóhannsson í síma 8227192.
Hérna getið þið meðal annars .....
1- Lesið kafla úr skáldsögunni minni. Hér
2- Hlustað á nokkur lög - Hér og eitt hér að neðan og svo getið þið hlustað á nokkur lög í spilaranum sem er hér til hliðar en þessi lög eru að finna í mp3 geisladisk sem fylgir bókinni.
3- Þetta lag hér að neðan heitir Martraðaprinsinn- og er titillag þessa verks. En heildarverkið er skáldsaga og hljóðbók í bland við þrettán lög sem eru sungin til hálfs af mér og til hálfs af Þórunni Pálínu jónsdóttur sem hefur getið sér gott orð sem djasssöngkona.
Ekki vera feimin við að biðja um Fésbókarvináttu mína.
Kveðja- Brynjar Jóhannsson.
Bloggar | Breytt 24.12.2010 kl. 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.12.2010 | 19:04
Allt þessari helvítis kerlingu að kenna
Það getur fokið ansi mikið í vetradrottninguna. framferði hennar getur verið með hvassasta móti og þegar krafturinn er hvað mestur þá rífur hún heilu húsin upp frá rótum.
%&/()=#$%&/()=$%&/
Enginn lifandi máttur getur barist gegn aflraunum hennar þegar hún er í hvað pirruðust og þá er bara best að halda sér heima fyrir.
Þetta lag er að finna á Martraðaprinsinum- sem er skáldsaga og mp3 hljóðbók í bland við 13 lög. Upplýsingar um skáldsöguna og geisladiskinn er hægt að finna í bókatíðindum.
![]() |
Þakið á Eden að losna, flotbryggja í sundur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2010 | 19:42
Kafli úr skáldsögunni minni,Martraðaprinsinn sem kemur út núna fyrir jólin.
Ég var beðinn um að sýna kafla úr Skáldsögunni minni og varð ég góðfúslega við þeirri beiðni.
Kær jólakveðja Brynjar Jóhannsson
ps. Ekki vera feimin að bjóða mér facebook vináttu ykkar ef þið viljið vita meira um mig.
II kafli
Venjulegur helgardagur í lífi martraðaprins
Félagi minn vakti mig upp með hringingu á laugardagsmorgni og spurði mig hvort ég vildi hitta hann á Austurvelli. Ég var ennþá í draumalandinu er ég svaraði honum játandi og sagðist vera á leiðinni. Svefndrukkinn skreið ég fram úr rúminu og staulaðist inn á klósett. Ég horfði framan í spegilinn með þokumettum augum og kreisti síðustu leifarnar úr tannkremstúpunni til að bursta tennurnar.
- Næsta kona sem þú nærð í verður gyðja drauma þinna - sagði ég hughreystandi við manninn í speglinum sem samsinnti með væntumþykjulegu brosi. Ég klæddi mig í fatalarfana og labbaði niður í bæ.
Á leiðinni til Austurvallar kom ég við á kaffihúsi og keypti mér Caffé Latte í pappírsbolla. Ég krunkaði fyrir hressingunni með því að grafa ofan í klinknámu buxnavasans.
- Uuuu ... það vantar tuttugu krónur uppá - sagði ég skömmustulega við afgreiðsludömuna að lokinni mynttalningu og gróf eftir krumpuðum fimmþúsundkalli.
- Ekkert mál þú borgar bara næst - sagði afgreiðsludaman og brosti til mín.
Ég þakkaði kurteislega fyrir mig og hélt mína leið.
Skelfileg mistök
Þennan sólríka dag á Austurvelli var Amor enn og aftur utan við sig og var farinn í kaffipásu þegar lærlingurinn mundaði bogann. Aðalverkefni dagsins var að láta snobbsvínku falla fyrir höfðingja.
Snobbsvínkan var nýkomin á svæðið og labbaði áfram með frekjulegan svip. Hún gekk um eins og drottning á rauðum dregli og geislandi af sjálfumglöðu yfirlæti. Kvenfólk horfði til sjálfskipaðrar hátignarinnar ýmist uppfullt af öfund eða af mikilli aðdáun. Karlmenn góndu dáleiddir á gullfallegt andlitið eða störðu rangeygir á risastór brjóstin.
Höfðinginn sem snobbsvínkan átti að falla fyrir sat á grasinu fyrir aftan styttu þjóðhöfðingjans og var umkringdur vinum sínum. Ég, martraðaprinsinn, gekk þreytulega áfram með stírur í augum og leitaði félaga míns með sjóðheitan pappírskaffibolla í hendinni. Eins og venjulega var ég ekki með hugann við stað og stund er ég reyndi að finna slóð í gegnum mannmergðina. Með hausinn upp í draumkenndum skýjum starði ég út í loftið, rak tána í grasið og féll fram fyrir mig á jörðina. Það skvettist úr kaffibollanum framan í andlit höfðingjans sem veinaði og rauk á fætur.
Snobbsvínkan snéri sér við er hún heyrði hávaðaganginn og leit beint í augu mín. Lærlingur Amors þandi bogann og skaut ástarörinni í hjartastað snobbsvínkunnar.
Hún fann fyrir rafmögnuðum losta. Endorfínið magnaði upp draumkennda sæluvímu og eggjastokkarnir klingdu hærra en kirkjubjöllur Hallgrímskirkju. Þúsund fiðrildi flögruðu um í maganum og augun störðu dáleidd á mig án þess að skilja hvers vegna. Hún horfði á áhyggjulaust bros mitt og villimannlegt fas
Þar sem ég var ekki rammaður inn í heildarmynd væntinganna mótmælti hún kröftuglega. Ef ég væri höfðingi sem ljómaði af ríkmannlegum glæsileika hefði hún laðast að mér líkt og kráka að gulli og látið segul sinna innri langana draga sig að mér án nokkurs viðnáms. En ég var martraðaprins og þess vegna þráaðist hún á móti.
...Á augabragði varð efasemdarspurningarlistinn til.
Efasemdarspurningalisti snobbsvínkunnar
1. Hvernig dettur honum í hug að láta sjá sig í götóttum sokkum og óreimuðum skóm og það á Austurvelli ? Mínus
2. Er hann nývaknaður upp eftir fyllerí ? Mínus
3. Af hverju finnst mér hann kynferðislega aðlaðandi ? Fráhrindandi plús
4. Gæti þessi maður séð fyrir mér og orðið faðir barna minna ? Nei
5. Hvers vegna er hann svona sjálfsöruggur ? Fráhrindandi plús
6. Má vera að þessi ósiðsamlegivillimaður sé láglaunamaður eða jafnvel á atvinnuleysisbótum? Mínus
7. Hvað er svona dulrænt og spennandi við hann ? Fráhrindandi plús
8. Yrði hann samþykktur af mínum vinkvennahópi eða fjölskyldu ? Nei
9. Get ég náð í betri mann en hann ? Já
10. Eigum við eitthvað sameiginlegt ? Nei
11. Gæti ég breytt honum til betri vegar ? Nei, hann er óalandi
Martraðarkennd togstreita myndaðist á milli skynsemishyggju og ástríðu.
Dópamínflæðið var komið á hættulegt stig og óþægilega góð vellíðunartilfinning streymdi um líkama hennar. Daman var komin í þversagnakennda flækju, hún vildi ekki það sem hún vildi. Hana langaði að líta undan en gat það ekki og varð að vita hvað væri svona heillandi við mig. Hún lagði aftur fyrir sig spurningalistann en fékk sömu svör.
- Hvað átti hún að gera?
Vinahópi höfðingjans brá er ég hellti kaffibollanum yfir hann en þegar þeim var litið á mig glottu þeir út í annað. Ég baðst innilega afsökunar. Eins og sönnum höfðingja sæmir tók hann afsökunarbeiðninni vel, raunar þakkaði hann mér fyrir að bjarga deginum.
Er ég staulaðist á fætur góndu nærstaddir á mig með hláturmild bros á vör. Allir nema snobbsvínkan sem horfði dolfallin á mig er ég settist hjá félaga mínum í grasið við Austurvöll.
Englarnir glottu
Englarnir glottu og drottinn hló með
er boginn hjá Amori brást
við brunnum af gagnkvæmri ást
í morgunsárið
Heillaðist af þér er hafði þig séð
klæddan í fráleitum fötum
í forljótum sokkum með götum
og ógreitt hárið
Voru örlögin ráðin því engu ég réð
því augun og eitthvað við þig
alfarið heillaði mig
upp úr skónum
Við Austurvöll sá þig sitja við beð
virkaðir tómur og tregur
svo trúðslega hallærislegur
frá allra sjónum
Og ég sem var snobbaður fagurgali
og háskólamenntuð dama
Féll dolfallin fyrir þér horfði á þig hreyfilama
klæddur í fötum úr Kolaportinu á tali við ribbaldalýð
Og mig sem að langaði í velgefinn mann
en féll fyrir fífli eins og þér
svo fjarri því hvernig ég er
inn við beinið
En frá þeirri stundu þig elskaði og ann
samt þyki ég erfið og efins
og alls engum karlmönnum gefin
þó allt þeir reyni
Mig langaði í einhvern sem ýmislegt kann
sem er öfugt við það sem þú ert
sem ekkert í raun getur gert
sem er einhvers virði
Ég sá það í hillingum- á mér það fann
að sameinuð höldumst í hendur
og við hlið mér við altarið stendur
og gefin þér yrði
Textinn er við lag sem er að finna í hljóðbókinni sem fylgir geisladisknum.
Bækur | Breytt 21.12.2010 kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.12.2010 | 11:35
Nei -Ég sá þetta ekki fyrir mér.
Lofum hans ræður um sjálfbæra peningalind
Upphefjum óheilladísir og glópagulldrengi
gráðuga úlfa sem klífa upp metorðatind
Hann vill við vitum helst minnst
og ákveða hvað fólkinu finnst
Trúum í blindni að leiðtoginn loforðin efni
Lifum í fallegri draumaborg hugmynda hans
Vanvirðum gagnrína hugsuði og göngum í svefni
Bloggar | Breytt 27.11.2015 kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2010 | 10:28
Söngtexti við lag sem ég lauk við nýverið.
Þá heyri inn í mér
Bomb be di bomb- Tikk ki ti ku - aaaaaaaaaaaaaa
Sem þýðir víst á Íslensku ó ég elska þig
Ég heyri Sídynjandi hamarshögg
Og Hástemmt lagakver
Bomb be di bomb- Tikk ki ti ku - aaaaaaaaaaaaaa
sem kallast víst á íslensku ó ég elska þig.
Nú veist að ég er örlagaklaufi
Og einhverskonar kvennafífl
Bomb-be-de bomb
Sem að elskar þig
Finnst þú vera máttugri en hundrað manna her
hjartað mitt með tif-máli- það sífellt segi mér
Þú ert draumagyðjan
Bombedí bomb
þú ert ástin mín
fröken endorfín
Með þig lýmda á heilanum
Týni mér í dagsins amstri
Er að fara yfir um
Upp á fjalli og alfarið einn og sér.
Úti á túni fjarri sjálfum mér
er Vindur alls sem iðrast- blæs mér andspænis.
það- eina sem mín býður - er tilveran tregastillt
og tímavinnan óuppfyllt.
byrtist mér sem vonarljós og huggun harmi gegn
hlý sem sunnan vorgola og blíðleg gleðifregn.
Bomb be di bomb
þú ert draumagyðjan
bomb be di bomb
þú ert ástin mín
fröken endorfín.
Með þig lýmda á heilanum
Er að fara yfir um
Upp á fjalli og alfarið einn og sér
Úti á túni fjarri sjálfum mér
Líf mitt enn og aftur- er nöturlegt hér og nú
hið- nýstingakalda morgunsár-fer sem og da sja vo
Finnst ég vera draugur - Enn og aftur einn
álitin sem ekki neinn.
Úti á túni fjarri sjálfum mér
Bloggar | Breytt 10.12.2010 kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2010 | 10:31
Staðreyndir hundana
Ég hef fundið ótrúlegustu furðuhluti í ruslinu heima hjá mér. Um daginn fann ég rússneskan kafbát og þrjá sænska landgönguliða, þrjátíu og fjórar klaustursnunnur og tvo frystitogara.
GEIRFINNUR ERT ÞETTA ÞÚ
Spurði ég furðuveru sem líktist gömlum manni sem sat að bjórþambi undir eldhúsvaskinum.
Hættu þessum svívirðingum ég er íslenska fjallkonan
Svaraði þessi furðuvera sem var orðin fúlskeggjuð og gráhærð, geðstirð og hundleiðinleg í hátterni.
Ó þú meinar.
Svaraði ég og sá fram á að það væri ekki lengur líft þarna inni nema ég færi að......... hoppa og síðan þá hef ég stundað þá iðju oft og iðurlega með mjög góðum árangri. Ég hef áhveðið að eyða því sem eftir er að æfi minni í að dansa...
ÓJE
![]() |
Fannst eftir tvö ár í skolpinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Halla Rut
-
Anna Einarsdóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Signý
-
Kreppumaður
-
Fríða Eyland
-
Heiða Þórðar
-
Bara Steini
-
Marta B Helgadóttir
-
halkatla
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sema Erla Serdar
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Björgvin
-
Bjarki Tryggvason
-
Jón Þór Ólafsson
-
Brissó B. Johannsson
-
Tinna Jónsdóttir
-
Sigurlaug Kristjánsdóttir
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Aðalheiður Ámundadóttir
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Ásgerður
-
Brattur
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Bergur Thorberg
-
Viktor Einarsson
-
Agný
-
Lady Elín
-
Guðfríður Lilja
-
Gunnar Axel Axelsson
-
Óskar Helgi Helgason
-
Sigurður Viktor Úlfarsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Matti sax
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
kiza
-
Huld S. Ringsted
-
www.zordis.com
-
Brjánn Guðjónsson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Jónína Dúadóttir
-
Páll Geir Bjarnason
-
Sigríður Hafsteinsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Stríða
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
S. Lúther Gestsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Ólöf Anna Brynjarsdóttir
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Sævar Einarsson
-
Gullvagninn
-
Kolgrima
-
Óskar Þorkelsson
-
Helga Dóra
-
Guðrún Birna le Sage de Fontenay
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Óskar Arnórsson
-
Kristín Jakobsdóttir Richter
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldóra Rán
-
Helga Magnúsdóttir
-
Guðrún Lilja
-
Mía litla
-
Íris Arnardóttir....vitringur
-
Þórhildur Daðadóttir
-
polly82
-
Andrea
-
Hdora
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Brynja skordal
-
SeeingRed
-
Benna
-
Villi Asgeirsson
-
Svartagall
-
Alfreð Símonarson
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Skattborgari
-
Aprílrós
-
Mál 214
-
Bwahahaha...
-
Isis
-
persóna
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Vefritid
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Hlédís
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Eva
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
brahim
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar