Guði sé lof! þá var daman ekki með síma

Ég átti samtal við unga og velgefna dömu um helgina, þegar ég sat að svamli á Ölstofunni. Er hún bað mig um að persónugreina sig sagði ég að hún væri, kvenleg, blíð og mjög manngóð. Hún væri hugsandi og mætti ekkert aumt sjá. 

        -Ég fell ekki fyrir svona klisjum-Angry

sagði hún og var ekki sátt við þessa sálgreiningu mína.

UUu ha Gasp

      -það sem þú ert að segja getur átt við allar konur.Angry

útskýrði hún fyrir mér. 

 

Flestar konur sem ég þekki eru eins og tilfinningakaldir ísklumpar og engu minni hörkutól en harðgerðir sjómenn og því var ég að segja dagsatt er ég tjáði henni að hún væri kvenleg. Í framkomu sinni var hún bersýnlega manngóð og kom það meðal annars fram í því hve kurteis hún var í allri sinni hegðun. Manneskjan gat augljóslega ekkert aumt séð því hún var að tala vandræðagrip eins og mig og því var ekkert rangt af því sem ég var að segja. Ég tel því nokkuð ljóst að allt sem ég hafi sagt hafi verið klisja því að þetta elskulega og gullfallega kvenblóm var klisja sjálf.

 

bíddu nú við.. flestar konur sem ég þekki eru kuldalegri  en Hallgerður langbrók-Angry

 

Sagði ég og dæsti mig eins og ég geri oft í rökræðum við félaga mína en okkur þykir ekkert skemmtilegra en að rífast heimspekilega um tilveruna eins og hundar og kettir.

Er daman virti mig fyrir sér varð hún smeyk því hún þekkti mig ekki neitt. Ég er sannfærður um að hún hefði hringt á neiðarlínuna ef hún hefði síma því henni þótti ég full æstur er ég lét þessi orð út úr mér. Þá hefðu gerst atburðir sem væru dæmigerðir fyrir mig í hvert skipti þegar ég tala við fallega konu. 

Vöðvastæltir slökkvuliðsmenn hefðu mætt á svæðið og bjargað þessari dömu frá þrasræðum með því að skvetta framan í mig kaldri vatnsgusu. Víkingarsveitin hefði stokkið á mig úr öllum áttum og knésett mig niður á jörðina og lögreglan hefði síðan komið og hjálpað víkinga sveitinni með því að berja mig til óbóta.

 

RÓAÐU ÞIG NIÐUR ÞRASHAUSINN ÞINN Ninja

 

Hefði lögregluhópurinn æpt á mig og notað mig sem tilraunadýr fyrir bareflin sín.  

Mér hefði verið hent út í sjúkra bíl með þeim rökum að ég væri með of háan blóðþrísting og í öllum múgæsingnum hefði ég endað inni á Gjörgæslu.

 

Já en ég var bara að reyna að skemmta mér Errm 

 

Væri það eina sem kæmi upp úr mér í lögregluskýrslum er ég væri færður niður á hverfissteininn vegna þessa grafalvarlega máls og látin dúsa þar í heila viku. Þá hefði komið upp nýtt geirfinns mál og mér væri kennt um öll óupplýst glæpamál samtímans og kennt meðal annars um Icesavedeiluna.  

Ég segi því og skrifa að um síðustu helgi hafi heppnin verið mér. Ég væri nefnilega örugglega á bak við lás og slá þessa stundina ef þessi stúlka hefði haft síma um hönd.

 

 

 


mbl.is Óskað eftir neyðaraðstoð vegna hláturkasts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 9.4.2009 kl. 07:04

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

he he góður að vanda :)

Óskar Þorkelsson, 9.4.2009 kl. 08:05

3 identicon

Kona sem er ekki með síma?... Heldur að þetta geti átt við allar konur..... Hrædd við þig.... búin að tala lengi við þig.

Ok.  Þetta er samskiptafælin kona með kynbundna fordóma og með paranoju.  Þjáist af uppgerðar almennilegheitum.

Þetta er rétt greining á konunni.... en Brynjar minn.  Hún hefði orðið jafn reið ef þú hefðir sagt henni satt. Stundum er bara ekki hægt að gera konum til geðs.

Bragi (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 22:05

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Fjarri því bragi og þess þá heldur að gera því EKKI til geðs.

Brynjar Jóhannsson, 11.4.2009 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 184894

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband