22.9.2008 | 18:59
Afhverju vonast ég að keflavík verði ÍSLANDSMEISTARAR.
Ég fór með tveimur æskufélögum mínum Lárusi Guðmundsyni, glerblástursmeistara og Henningi Emili, barnaskólakennara, til, að sjá Keflavík og FH í boltanum. Eins og flestir hefði Keflavík orðið íslandsmeistari ef þeir hefðu gert jafntefli í leiknum. Henning Emil er mikill húmoristi að eðlisfari og vissi að bæði ég og Lárus Guðmundson vorum gamlir Haukamenn í fótboltanum og höfðum því megnustu fyrirlitningu á FH sem fótboltaliði enda fornir erkifjendur okkar. Hann sá því leik á borði og dró okkur á til að horfa á leikinn því hann vissi að ekkert myndi gera okkur glaðara í geði en sjá FH tapa.
FH komst 2-0 yfir í leiknum og var mörgum hætt að lítast á blikuna. Keflvíkingar sýndu sannkallaða seiglu eins og þeir gerðu í allt sumar og komust aftur inn í leikin með því að gera mark. Við að sjá markaskorara þessa stórglæsilega fótboltaliðs, gera markið kemur gamli baráttuhundurinn upp í sjálfum mér. Ég gjörsamlega ærist af fögnuði og rek upp sannkallað stríðsöskur. Mér til mikillar furðu virtist markaskorari Keflvíkinga taka eftir þessu því ég sá að hann horfði til mín og fór að öskra til mín rétt eins og ég gerði. Keflvíkingar fögnuðu markinu annars ekki mikið og hlupu beint yfir á sinn vallahelming. Skömmu síðar skorar sami leikmaðurinn aftur og þá missum við félagarnir okkur algjörlega af kæti. Ég gjörsamlega trylltist af fögnuði og rek upp enn þá meira öskur og andlitið mitt var sem á víkingi til sjóoristu reiðubúinn.
Einhver ótrúlegasti atburður æfi minnar gerist í kjölfarið og er ég ekki að ljúga hverju einasta orði þegar ég segi það.
Markaskoraranum varð aftur litið til mín og kemur hlaupandi til mín og faðmar bæði mig og félaga mína. Ekki nóg með það kemur allt keflavíkurliðið öskrandi brjálað stekkur í faðm okkar. Það birtust myndir af mér fagnandi þeim í sjónvarpinu og verð ég að viðurkenna að mér leið hálf illa því mér fannst eins og "sannur" keflavíkuraðdáandi hefði átt að vera faðmaður en ekki ég sem er "með Haukahjarta". Þar að auki kannast margir við mig úr Hafnarfirðinum og var ég farin að fá þá tilfinningu að ég yrði hreinlega tekin og lamin eftir leikin því á þessari stundu leit allt út fyrir það að Keflavík væru búnir að gulltryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Eftir markið færði Keflavík sig aftur á völlinn og eins gefur að skilja vonaðist ég af öllu mínu hjarta að þeir myndu halda hreinu eða pota einu í lokin til að gulltryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
Það varð mér mjög mikið svekkelsi þegar FH skoraði að lokum og unnu leikinn.
Vegna þessa stórfurðulega atburðs er ég náttúrulega orðin KEFLVÍKINGUR Í HÚÐ OG HÁR. í fótboltanum og mun alltaf halda með þeim á meðan við HAUKAMENN eru ekki í úrvalsdeild.
Áfram Keflavík
Þið verðið íslandsmeistar í ár.
OG BERJAST SVO
Heimir Guðjónsson: Á löngum köflum miklu betra liðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Halla Rut
- Anna Einarsdóttir
- Kristinn Theódórsson
- Signý
- Kreppumaður
- Fríða Eyland
- Heiða Þórðar
- Bara Steini
- Marta B Helgadóttir
- halkatla
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sema Erla Serdar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Björgvin
- Bjarki Tryggvason
- Jón Þór Ólafsson
- Brissó B. Johannsson
- Tinna Jónsdóttir
- Sigurlaug Kristjánsdóttir
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Ásgerður
- Brattur
- Jóna Á. Gísladóttir
- Bergur Thorberg
- Viktor Einarsson
- Agný
- Lady Elín
- Guðfríður Lilja
- Gunnar Axel Axelsson
- Óskar Helgi Helgason
- Sigurður Viktor Úlfarsson
- Baldur Fjölnisson
- Matti sax
- Ingunn Jóna Gísladóttir
- kiza
- Huld S. Ringsted
- www.zordis.com
- Brjánn Guðjónsson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Geir Bjarnason
- Sigríður Hafsteinsdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Jón Steinar Ragnarsson
- Stríða
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Georg P Sveinbjörnsson
- S. Lúther Gestsson
- Markús frá Djúpalæk
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Ólöf Anna Brynjarsdóttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sævar Einarsson
- Gullvagninn
- Kolgrima
- Óskar Þorkelsson
- Helga Dóra
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Óskar Arnórsson
- Kristín Jakobsdóttir Richter
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldóra Rán
- Helga Magnúsdóttir
- Guðrún Lilja
- Mía litla
- Íris Arnardóttir....vitringur
- Þórhildur Daðadóttir
- polly82
- Andrea
- Hdora
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Brynja skordal
- SeeingRed
- Benna
- Villi Asgeirsson
- Svartagall
- Alfreð Símonarson
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Skattborgari
- Aprílrós
- Mál 214
- Bwahahaha...
- Isis
- persóna
- Vilhjálmur Árnason
- Þráinn Jökull Elísson
- Vefritid
- Guðmundur Óli Scheving
- Hlédís
- Aldís Gunnarsdóttir
- Eva
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- brahim
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góður.
Baldur Fjölnisson, 22.9.2008 kl. 19:58
Já ábyggilega góður... held ég
Jónína Dúadóttir, 22.9.2008 kl. 21:15
Heldur þú það ? .......
Brynjar Jóhannsson, 22.9.2008 kl. 21:36
BRYLLI!!!! Þetta má ekki gerast fyrir þig, þú ert allt of góður strákur, þú ert heiðarlegur í gegn. Keflavík eru svindlarar í gegn, þeir spila óþolandi bolta. Ég hef séð þá á velli, helvítis grenjuskjóður sem hanga í treyju dómarans og ljúga upp á menn.
Stuðningsmenn þeirra eru hræðilegir, þeir hafa gengið að mótherjum eftir leik og lamið þá.
Brylli þú átt allt betra skilið!!
S. Lúther Gestsson, 23.9.2008 kl. 00:33
Verr og miður SAINT LUTHER....
Þegar markaskorari þakkar mér sérstaklega fyrir stuðningin með því að hlaupa til mín og faðma mig þegar þeir eru örfáum hænufetum frá því að verða Íslandsmeistarar er eitthvað sem ég efast um að nokkurt fótboltalið getur toppað.
Ég kalla slíkt þakklæti og er því skildur til að halda með Þessu fótboltaliði
ÁFRAM KEFLAVÍK ...
En engar áhyggjur... Ég er prúður sem ástfangin brúður þó ég sé nú oftast trúður með múður.
Brynjar Jóhannsson, 23.9.2008 kl. 11:13
Brynjar: Heyrðu, það var ég sem þeir hlupu til. Þú varst bara þarna
ÁFRAM KEFLAVÍK !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Lárus Gabríel Guðmundsson, 23.9.2008 kl. 17:54
Já eða það Lárus .....
Brynjar Jóhannsson, 23.9.2008 kl. 18:15
Sællllllll, þú berð sem sagt enþá skaða af höfuðhögginu sem þú fékst um daginn og engin sagði þér frá.
Taktur þér tak frændi, hvað næst Arsenal ??? eða eitthvað þaðan af verra, gerðu öllum greiða og hentu þessari bloggfærslu þinni strax.
Kv. úr annari deild.
kv, Jón Örn (nr 13 af bráðum 100 afkomenda Jóns á Skaganum)
Jón Örn (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 21:19
Brynjólfur minn áður en þú heldur áfram með ruglið, þá máttu vita það að við sem vitum betur fyrir gefum þér að sjálfsögðu þetta yfirskot hjá þér, þannig að þú getur óhræddur hent gaman af þessari stórfurðulegu lífsreynslu sem þú hefur orðið fyrir, þegar þú vaknar.
Maður svíkur ekki sjálfan sig og aðra svona, jafnvel þótt Haukar hafi aldrei unnið eitt eða neitt í þessari úrvalsdeild.
Kv,Einu sinni gulur alltaf glaður alveg sama hvað gengur á.
Jón Örn (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 21:34
Haukar?? Er það verktakafyrirtæki? Er ekki verið að ræða knattspyrnu?
Þó þið séuð greinilega allir haldnir greinilega það mikilli minnimáttarkennd að þið haldið að þið getið ekki mætt á hvaða völl sem er, þá er ykkur alveg óhætt að koma í Stórveldið Frostaskjólið.
S. Lúther Gestsson, 23.9.2008 kl. 21:48
Brylli minn. Vertu ekkert að ergja þig yfir skrifum Lúlla, Hann sér allt í svarthvítu og vill sjálfsagt hafa 3 liða deild eins og í denn, þá var nefnilega hægt að vinna nokkuð reglulega titla, titla sem svo gera þá að stórveldi !!!! eða þannig.
Þú verður að gera greinamun á að halda með liði og styðja við lið. Þú heldur með Haukum og Liverpool svo það sé á hreinu og styður Reykjanesbæ í slagnum um titilinn í ár.
Vona að þú losnir sem fyrst við hausverkinn.
kv, GogG
Jón Örn (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 22:19
Jón ..Örn..
Ég er ekki maður minn orða..
KEFLÍK er það og verður
SAint Luther
Ef Haukar eru verktakafyrir tæki.. hvað er þá KR ???
KRÓNAN Í VESTURBÆNUM...
EN ÁFRAM KEFLAVÍK:
Brynjar Jóhannsson, 23.9.2008 kl. 22:51
Ég er ekki frægur fyrir annað en að vera maður minna orða
ætlaði ég að segja
Brynjar Jóhannsson, 23.9.2008 kl. 22:51
Ég hélt þú héldir með þeim útaf mér ???'
Eysteinn Skarphéðinsson, 25.9.2008 kl. 10:59
Afram FH!
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 26.9.2008 kl. 12:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.