Var ég þá morðljótt gerpi eftir allt saman.

Ég tel sjálfan mig vera myndalegan karlmann með mikla persónutöfra. Samkvæmt nýjustu vísindarannsóknum bendir flest til þess að ég sé einkar ófrítt gerpi sem er ámóta sjarmerandi og riðguð blýdolla. Í það minnsta kemur fram í þeirri rannsókn sem ég vitna til að karlmenn"hafa meiri tilhneigingu til að ofmeta útlit sitt og persónutöfra en konur" . Þar að leiðandi geng ég að því gefnu að þá hljóti það að vera svo um mig líka.

 

Kvenfólk lífs míns eru helvítis lygarar. Angry

 Það er nokkuð ljóst að allar þær konur sem hafa gert hosur sínar grænar fyrir mér í gegnum tíðina voru í einhverskonar "klíuþolskeppni" eða með slæman útlitssmekk. Í einfeldni minni fékk ég þær fráleiddu hugmyndaflugur í hausinn að þær voru að dást að útliti mínu og að þær brostu til mín sökum þess að þeim þætti ég skemmtilegur.

 

-MÚAHHAHAHAHAHH MÚAHAHHAHAHAHHA LoL -

"hann er svo hundeiðinlegur að ég get ekki annað en hlegið að þessum asna og hann er svo ófríður að ég get ekki annað en gefið útliti þessa fílamanns gaum". Voru þá dömurnar að hugsa með sér á meðan ég taldi ástæðuna andhverfa.

 

-Ég sem hélt að ég væri svo skemmtilegur Crying

Grátbölvaðar kvennalygarnar fylltu mig af geigvænlegum ranghugmyndum. Ég fékk þá hugmynd í kollinn á mér að ég gæti náð mér í fríðar konur og enn þann dag í dag geng ég með þær grátbroslegu grillur.

 

- ÚJE úúúúúúúúúje Cool

sagði ég alltaf við sjálfan mig þegar ég horfði framan í spegilinn. Stundum kom fyrir að ég stóð uppi með glæsigærur en geri mér núna grein fyrir að mér tókst að ná í þær því þetta var grín af þeirra hálfu.

- Hvernig gátuð þið gert mér þetta ? Angry

Afleiðingarnar urðu þess valdandi að ég sætti mig ekki við hvað sem er.  Ég er einmitt einn af þeim sem geri vissar útlitskröfur til kvenna sem ég vil komast á fast með og hef þá fáránlegu tilhneigingu að dást frekar að "fallegum" dömulegum konum frekar en "frjálslega" vöxnum spikpokaferlíkjum sem minna á skeggjaða rússneska kúluvarpara. Í ofmati mínu segi ég nei við konur sem minna fullvaxta rostunga og kýs frekar að gera mér dælt við kvenlegar gyðjur. 

Allt vegna þess að ég er

með ranghugmyndir um sjálfan mig.

Cool újeeeeeeee újeee jeeee


mbl.is Karlar ofmeta persónutöfra sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Æi greyið mitt, þetta er alveg rosalegt

Jónína Dúadóttir, 19.9.2008 kl. 15:33

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já sjáðu Jónína .....

Núna ertu að brosa yfir því hvað þér þykir þessi pistill persónuleikalaus og leiðinlegur . Dæmigert fyrir konur.. PIFF OG AFTUR PIFF:..

Brynjar Jóhannsson, 19.9.2008 kl. 15:55

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já er að að því ?

Jónína Dúadóttir, 19.9.2008 kl. 16:13

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ja...

samkvæmt þessari vísindalegu rannsókn bendir flest til þes já

Brynjar Jóhannsson, 19.9.2008 kl. 20:47

5 Smámynd: Eysteinn Skarphéðinsson

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:


Bíddu hvaðan kom þetta????????????????????

Desperate Housewives.

Eysteinn Skarphéðinsson, 19.9.2008 kl. 22:47

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

hahah... Eisteinn... já... Mér finnst það vel skrifaður þáttur.. kvika ekki frá því..

Berglind ...

það er nú heiðanlegt að þér að kunngera mér það :) .....  verri heldur en versta gerð af tannpínum :)  

Brynjar Jóhannsson, 19.9.2008 kl. 23:07

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

 uuuu ..

ef kvennmenn eru verstu gerðir af STANDPÍNUM ?????

Þá hljóta þeir að vera  SHEMALE 

múahahhahahahah

Brynjar Jóhannsson, 19.9.2008 kl. 23:56

8 Smámynd: Agný

Kæri vinur...held að það hafi gleymst að koma því á framfæri um leið og þessum vísindalegu niðurstöðum um karlpeninginn að þetta á víst um bæði kynin...allavega sagði vinur minn sem ákvað að prófa einkamal.is að hann hefði oftar en ekki lent í því að þegar að hittingnum kom að þá gat konu kindin ekki einu sinni verið fjarskyldur ættingi þeirrar sem hann hafði spjallað við....

ja og lúkkið var alveg í engu samræmi við uppgefnar upplysingar..Ef ekki hefði verið fyrir fyrirfram ákveðin kennilieiti þá sagðist hann aldrei hafa fattað að þssi kona væri sú sama og hann hefði átt í netheima sambandi...þannig...

" Oft er flagð undir fögru skinni" =  Fagurt skinn felur oft flárátt sinni"...

Þannig ekki  örvænta

Agný, 20.9.2008 kl. 07:46

9 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

hahahaha....

og svo getur líka erið flagð undir spikuðu skynni.

Brynjar Jóhannsson, 20.9.2008 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 184887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband