Sirkhúsfíllinn fúsi.

Ég er búin að kaupa mér tíu metra stóran ósýnilegan fíl sem ber heitið Fúsi. Fúsi er óþreifanlegur í alla staði og skilur engin spor eftir sig, hvert sem hann fer. Ólíkt venjulegum fílum heyrist ekki múkk í honum og er hann ekki til neinna vandræða í samskiptum við mannfólk. Þar að leiðandi er hann eigulegri heldur en flest gæludýr sem sem skilja skítaslóðina eftir sig hvert sem er farið. Reyndar getur Fúsi verið ansi stríðin en ég get staðfest að hann ræðst aldrei á fólk af fyrra bragði. Ef þú hefur nógu sterkt ímyndunarafl getur þú fundið fyrir návist hans en ef þú ert farin að sjá hann með berum augum, þá legg ég til að þú leitir þér hjálpar.

 

Fúsi að leik við Lækjatorg 

Ósýnilegi fíllinn Fúsi

 

 

 

Fúsi er nefnilega framliðin sirkhúsfíll og hefur ekki verið á lífi svo árum skiptir.  Til þess að Fúsi myndi ekki flýja ólaði ég hann fastan við héraðsdómshúsið við lækjatorg og getur fólk séð hann óljóst sitja ofan á jeppanum sem er hér á myndinnni. Þó Fúsi sé sauðmeinlaus þá legg ég samt til að fólk fari samt með gát þegar það gengur fram hjá honum því hann er gjarn á að sparka frá sér og er það einmitt ástæðan fyrir þessum girðingum fyrir utan Héraðsdómshúsið. Ef einhver kaupandi hefur áhuga á að fjárfesta í þessu skemtilega gæludýri er fyrsta verð að eins ein og hálf milljón ásamt vörubíl sem kostar að flytja hann burt. 


mbl.is Ósýnilegur Skodi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Mér sýnist hann una hag sínum vel þarna. Af hverju er hann bleikur? Er þetta eitthvert séreinkenni eða er hann lasinn?

S. Lúther Gestsson, 4.5.2009 kl. 15:15

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Hann er ástfangin ... af bílnum

Brynjar Jóhannsson, 4.5.2009 kl. 17:51

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Sætur trefillinn sem hann er með

Jónína Dúadóttir, 5.5.2009 kl. 18:16

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já hann er með kvef

Brynjar Jóhannsson, 5.5.2009 kl. 18:53

5 Smámynd: Hlédís

Þegar komin tvö sem þurfa að leita hjálpar?!  Viss um að þau fíla sig alheilbrigð

Sirkhús er skemmtilegt orð.

Hlédís, 5.5.2009 kl. 20:18

6 identicon

óþreifanlegur er ennþá fyndnara orð

Halldór Carlsson (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 03:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 184868

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband