Það er bannað að gefa nasistum brauð

Þegar ég var á fylleríi í Þórsmörk aðeins 16 ára gamall, komst einn æskufélagi minn að merkilegri uppgvötun varðandi atferli máva. "þessi fuglskvikindi kvaka eins og hlæjandi fífl" sagði hann við mig þegar við sátum blindfullir inn í tjaldi en gátum vart heyrt í samtali okkar vegna hávaðagangs mávahóps sem var fyrir utan tjaldið. Í fyrstu fannst mér alhæfingin út í hött en þegar ég gaf hljóðum fuglskvikindanna betur gaum komst ég að því að þetta var hárrétt hjá drengnum. Sökum einkennilegs húmors fannst mér þetta drepfyndið og allar götur síðan þá hef ég skemmt mér konunglega við að hlusta á fíflahlátur mávanna. 

 

Útrýmingarbúðir nútímans 

 

Mávar minna mig útlitslega á nasista. Þeir eru grimmgerðir um augun og það er engu líkara en þeir séu með herhjálm um hausinn. Sundfitfæturnir líkjast hermannastígvélum og vængirnir á leðuryfirhöfn. Á tjörninni gera þeir atlögu að brauðmolum andarunganna eins og morðóðir orrustuflugmenn og hafa skapað sér andúð mannfólks vegna frekju og yfirgangs. Barátta þessara furðufugla fyrir bestu "brauðbitunum" hefur kallað reiðiöldu íslenska aríans yfir sig. Þeir eru ofsóttir eins og gyðingar á "tjörnum" úti og búið er að breyta Reykjarvíkurtjörn í útrýmingarbúð Mávafífla. Ég kenni í brjósti til mávanna og hef velt því fyrir mér að fara niður á tjörn til að gefa mávunum brauð. Ég er sannfærður um að ef ég myndi láta þá iðju mína verða að veruleika þá yrði ég fyrir ofsóknum líka. 

Vegfarandi- HVAÐ ERTU EIGINLEGA AÐ GERA?" Gasp

Ég- - ha ég ...uuuu ég er að gefa mávunum brauð" Errm

Vegfarandi"Ég held að þú ættir að leita þér hjálpar, þú ert eitthvað klikk drengur réttast væri að skjóta þig líka"  Angry Vegfarandinn tæki síðan upp haglabyssu og beinir henni að mér. 

Vegfarandi "Ég gef þér fimsekónda forskot"Devil segir hann við mig. Ég læt ekki segja mér skipunina tvisvar og tek á rás frá Reykjavíkur tjörn.Með kúkinn í buxunum og lamaður af ótta slepp undan haglabyssuskotunum með naumindum.

vegfarandi- múahahahahaha já hafðu þetta múhahahahah og þetta líka" segir vegfarandinn í hvert sinn og hann dritar úr haglabyssuna í átt að mér.  

Næst þegar þið farið út á tjörn hafið þá orð mín í huga. Ég er sannfærður um að þið komist að sömu niðurstöðu og ég. 

 

Mávar eru

 

keimlíkir

 

nasistum í útliti

 

og

 

hlæja eins og fífl.  


mbl.is Hetjuleg mávabjörgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Í sannleika sagt vissi ég ekkert hver þessi maður er. Ég gúglaði orðið nasisti og fanst þessi maður minna mig á máv. Því varð hann fyrir valinu.

Brynjar Jóhannsson, 19.7.2008 kl. 14:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 184948

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband