FERÐALANGURINN MIKLI..

Stórviðburður átti sér stað í lífi mínu í dag sem ég mun fagna til 11 ágúst. Hátíðarhöld verða víðsvegar um bæinn á þessu tímabili mér til heiðurs. Fólk tekur þátt í fögnuðinum með því að labba ekki yfir mig á förnum vegi og forsetisráðherra heiðrar mig með nærveru sinni þegar ég geng fram hjá stjórnarráðinu. Búðardömur verslanna færa mér hinar ýmsustu gjafir sem ég kaupi á sjálfan mig og gengilbeinur kaffihúsanna munu vera í fullu starfi við að hella mig "fullan" af kaffi. Ég er nefnilega komin í sumarfrí og  er það einlægur ásettningur minn að njóta þess til ystu æsar.

 

FERÐALANGURINN OG LANDKÖNNUÐURINN MIKLI

DR BRYLL

 

Ég Miðbæjarrottan mun verða víðförull í þessu sumarfríi og kem til með að ferðast bæði um nes og dali. För minni verður heitið á Laugar og ég geri ráð fyrir að það verði hin fjörugasta svaðilför. Til þess að fyrirbyggja misskilning þá er ég ekki að tala um Laugar úti á landi heldur líkamsræktarstöðina Laugar sem er í Laugadal. Þar mun ég hamast eins og óður maður bæði á morgni sem og kvöldi því meginþema sumarfrísins er að hrista af sér spikið og safna vöðvum. Nesið sem ég kem til með að sækja er Seltjarnanes en sú sveit hvu vera rétt fyrir utan Reykjavíkurhrepp. Ástæða fyrir fyrir för minn þangað er að World Class er þar einnig með líkamsræktarstöð og þar sem ég verði í fríi á sama tíma og Kári félagi minn þá munum við einnig fara þangað í líkamsræktar því Seltjarnarnes er nær honum. 

Líkamsræktin er eingöngu umgjörðin um daganna til að halda hausnum skýrum allan tíman..Á milli áreynslunar mun ég gera eingöngu tvenna hluti.

 

LIGGJA Í LETI OG GERA EITTHVAÐ UPPBYGGJANDI OG SKEMMTILEGT..

GLEÐILEGT SUMARFRÍ.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Ég hélt að það yrði útgáfuteiti hjá þér og sá mína sæng útbreidda að fagna með þér!  En til hamingju með að vera komin í frí og taktu á því kappi!

Samt eru karlmenn alltaf flottir rúmir um sig.

www.zordis.com, 4.7.2008 kl. 18:24

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Nei.. en  stefnan er sett á að ljúka upptökum í þessum mánuði. Svona er að standa einn í þessu þá tekur allt lengri tíma.

takk fyrir innlitið

kæra Zordís. 

Brynjar Jóhannsson, 4.7.2008 kl. 23:41

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góða ferð

Jónína Dúadóttir, 5.7.2008 kl. 10:05

4 Smámynd: Helga Dóra

Skemmtu þér vel í fríinu... Vonandi fáum við svo að sjá árangurinn úr ræktinni með myndarlegum fyrir og eftir myndum að hætti EAS......

Helga Dóra, 6.7.2008 kl. 02:04

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Jónína.. takk fyrir það...

Elísabet... já sjáumst í ræktinni

Helga... hmmm .. ég veit nú ekki neitt um það.... skemmtu þér vel líka. 

Brynjar Jóhannsson, 6.7.2008 kl. 10:31

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Njóttu þín í botn í þessu athafnamikla sumarfríi. Er eins og þú, fer helst ekki upp fyrir Elliðaárbrekku.

Helga Magnúsdóttir, 6.7.2008 kl. 17:11

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég vil sjá jafn mikinn mun á þér FYRIR og EFTIR og ég sé á bakgarðinum mínum.

Njóttu þess að chilla. (vó... ég tala eins og gelgja )

Anna Einarsdóttir, 7.7.2008 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 184946

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband