SORGIN MIKLA

 

JEMIN EINASTI 

Ég tárast og ríf af mér hárið yfir ranglæti tilverunar. Tilfinningarlegt umrót mitt er í geigvænlegu ástandi og ég veit ekkert til hvaða ráðs ég á að taka. Mig langar til að hakka í mig endalaust af róandi töflum og helst að vakna ekki aftur. Er ég las þessa frétt um bandarísku leikkonurnar Klera og Sienna vissi ég að að ég yrði ekki samur á eftir. Hárgreiðslustofur landsins eru væntanlega í uppnámi vegna þessa stórviðburðar í slúðurheimum og Séð og heyrt mun án nokkurs vafa fjalla um þennan stórviðburð í slúðurheimum með ítarlegri greinargerð.  Að þær stöllur eru ekki lengur góðir vinir eru hreinar og klárar nátturuhamfara fréttir. Hverjum er ekki sama um að fólk sé að svelta úr hungri um gjörvallan heim meðan slík vinaslit eru að gerast í Holliwood ? Afhverju ætti ég að syrgja stríð eða nauðganir á konum á meðan fréttir á slíku kemst ekki í námunda við þá kvalarangist sem fylgir þessari stærstu frétt aldarinnar. Ég legg til að kertum verði fleitt á Reykjavíkurtjörn vegna þessa voðaatuburðar og sameinuðu þjóðirnar reyni að ná sáttum í ágreiningsmálum vinkvenanna. Það má ekki gerast að það myndist FLEIRRI VINASLIT sem þessi í henni HOLLYWOOD.Við myndum þá öll deyja og það myndi skella á heimendir. 

Crying

 

 


mbl.is Ekki vinkonur lengur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Ég er svo fegin að þú ríður á vaðið, mig hafði langað að segja nokkur orð um þennan atburð en hér heima hefur allt verið í lamasessi vegna endaloka vináttunnar; börnin hamslaus vegna sorgar og ótta við framtíðina, og allt eftir því. Enn hitt er víst, hér verður flaggað í hálfa stöng eitthvað fram eftir vikunni.

Aðalheiður Ámundadóttir, 24.6.2008 kl. 02:34

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Sammála Aðalheiður.... Þetta eru geigvænleg tíðindi sem ristir djúpt inn í íslenska þjóðarsál og hún verður ekki söm á eftir.

Brynjar Jóhannsson, 24.6.2008 kl. 02:37

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Almáttugur hjálpi okkur öllum.... ef það er þá hægt.... 

Jónína Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 06:30

4 identicon

Hræðilegt þegar "slessist" svona upp á vinskap hjá fólki. Sammála ykkur fæ mér flaggstöng í hvelli og flagga í hálfa!

Ásta Kristín Svavarsdóttir (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 09:45

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

þetta er vissulega sorglegt og eiginlega falla allr fréttir í skuggan af þessum fréttum. Verður ekki að kalla heim alla þingmenn úr fríum og ræða málið? Senda samúðaróskir í ofboði með einkaþotu er algjört lágmark til að halda andliti íslensku þjóðarinnar..

Óskar Arnórsson, 24.6.2008 kl. 10:13

6 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Ég er bara að verða hálf histerísk af þessari sorg allri saman

Aðalheiður Ámundadóttir, 24.6.2008 kl. 10:20

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Það er bersýnilega samhugur meðal okkar og mikil sorg yfir þessum hörmungarfréttum.

Jónína Ég er efins að það sé ekkert til í dæminu til að bæta okkur upp þennan ómetanlega tilfinningarlega skaða.

Ásta kristín..
Alveg hárrétt hjá þér. Þetta er bagalegt. FLÖGGUM Í HÁLFA STÖNG.

Óskar...

Ég trúi nú ekki öðru en að þing verði kallað saman vegna þessara hörmungarfrétta og peningur verður tekin úr flóðasjóði til þess að veita þeim stöllum stuðning.

Aðalheiður.

ÞAÐ ER EKKI NEMA VON AÐ ÞÚ SÉST ORÐIN HÁLF HISTERÍSK.... Morð,nauðganir, misbeiting pólitísks vald falla algjörlega í skuggan á svona stórfréttum í slúðurheimum.

TAKK FYRIR KOMENTIN. 

Brynjar Jóhannsson, 24.6.2008 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 184946

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband