MIKIÐ ROSALEGA ER ÉG HEPPINN

Bestu mistök ævi minnar voru að taka aldrei bílpróf. Þökk sé þessum dásamlegu afglöpum mínum hef ég það ágætt í dag og get gott betur en skrimmtað á mínum lúsarlaunum. Meðan aðrir sortna um augun þegar þeir sjá budduna tæmast í agleymi óðaverbólgu sigli ég lygnan sjó og lifi sældarlífi. Það hefur alltaf staðið til að taka prófið fyrr eða síðar en sem betur fer hefur ekkert orðið enn að því. Fyrir vikið er ég í grannari kantinum þó svo að ég borði meira en fíll og þarf lítið að spá í aukakíloinn því ég fer allar mínar leiðir fótgangandi.

Eftir nokkur ár verð ég orðin ráðsettur maður og búin að eignast nokkur börn. Tilvonandi eiginkonan mín verður væntanlega kröfuhörð frekja eins og allar íslenskar konur eru í hjarta sínu. Ég geri ráð fyrir því að hún muni krefja mig um farartæki til að fara með krakkaormanna í skólan og skutla sér upp á spítala þegar hún er ólétt. Maður eins og ég deyr ekki ráðalaus enda hef ég ráð undir rifi hverju. Ég sendi nátturulega krakkanna á hjóli í skólann sinn en ef konugreið verður ólétt..... uuuu þá tek ég hana bara með mér í strætó. Errm  Eða reiði hana á böglaberanum á Fæðingadeildina. 

"AFHVERJU TÓKSTU EKKI BÍLPRÓF BJÁNINN ÞINN" Angry öskrar konugarmurinn og lemur í mig. 

"HALLTU KJAFTI KELLING EÐA ÉG LÆT ÞIG LABBA". Cool mun ég svara henni um hæl. Set síðan í rallgírinn og kem henni heillri á fæðingadeildina. 

 


mbl.is Olíuverð í nýjum hæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Signý

Það er nú alveg hægt að vera með bílpróf þó maður eigi ekki bíl... svona svipað og maður getur átt bíl án þess að vera með bílpróf

Ég veit ekki alveg hvar ég væri ef ég hefði ekki tekið bílpróf... líklegast bara á kleppi í einangruðum klefa... í spennitreyju..

Signý, 7.6.2008 kl. 01:02

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

á bögglabera er barnshafandi kona

móðir bæði dætra hans og sona

hann lætur hana varla labba mikið svona

í leigubíl hann splæsir, ég ætla að vona

Brjánn Guðjónsson, 7.6.2008 kl. 01:57

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Signy...

Þú værir miðbæjarrotta eins og ég .. ef þú værir ekki með bílpróf.

Brájnn

Konu mína keyri ég

kasólétta á hjóli

þannig ferðumst farin veg

þó festist oft og spóli

Brynjar Jóhannsson, 7.6.2008 kl. 13:19

4 Smámynd: kiza

Sammála fyrsta ræðumanni! Bílpróf = PFFFFFT .

Labba og hjóla allar mínar ferðir, hvort séu langar eða stuttar. Maður þarf bara að skipuleggja tímann aðeins öðruvísi

kiza, 7.6.2008 kl. 14:15

5 Smámynd: Signý

Já, ég hef nú reyndar verið miðbæjarrotta en samt með bílpróf og stefni á að verða miðbæjarrotta aftur áður en fram líða stundir... þá líka með bílpróf

Ég algjörlega gjörsamlega hata að labba, nema það sé upp á fjöll eða eitthvað.

Nei... ég er ekkert furðuleg!...

Signý, 7.6.2008 kl. 14:54

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Enda verð ég alltaf með meiri tekjur en þú stærstur hluti króna þinna fer í að fjármagna blýbeljuna þína

Brynjar Jóhannsson, 8.6.2008 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 184895

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband