SPRENGJUM NIÐUR BANKASTOFNANIR.

"Ég er skapi næst að sprengja Banka minn í skjóli nætur " sagði ég við samstarfsfélaga í morgun þegar ég var í grófflokkun.  Ástæða pirringsins var að ég var að grófflokka einhverja ömurlega jólagjöf frá Glitni í morgun sem riðlaði allri starfseminni. Í hillingum sá ég mig henda bensínsprengju inn um glugga á næstu bankastofnun eða mæta með sprengivörpu eða jafnvel FJARSTÝRÐA Dc átta þotu og léti hana hrapa ofan á banka mínum.  Ástæða þess að ég vil að þetta sé gert í skjóli nætur er vegna þess að ég vill ekki valda neinum mannskaða.

"já afhverju gerir þú það ekki ?" spurði sá sem ég sagði þetta við og fanst þessi hugmynd mín greinilega einstaklega heilbrigð.

Já mér er spurn ??? afhverju sprengi ég ég ekki ÞESSAR HELVÍTIS BANKASTOFNANIR ?  Afhverju er engin búin að gera hryðjuverknað gegn bönkunum nú þegar ? Plebbar mega vera plebbar svo framarlega að þeir láti mig í friði en það er nú fjarri í lagi með þessa GRÁTBÖLVUÐU JAKKAKLÆDDU AUGLÝSINGA-GJALDKERA-BANKA-SKÍTA-PLEBBA Devil .... Gjaldkerinn spyr mig hvort að ég sé með viðbótalífeyrissparnað ? ... og þegar ég segi henni að ég hafi engan áhuga viðbótalíferyrissaparnaði eða auknum viðskiptum við banka verður hún hvumsa og reynir að telja mér trú um að hún sé að gera það sem er mér fyrir bestu... Það getur vel verið að hún telji svo vera en ég er nokkuð viss að það er henni fyrir bestu að HALDA KJAFTI. Þegar einhver reynir að pranga svona inn á mig langar mér mest að KÝLA HANN. Reyndar er ég með víðbótarlíferyrissparnað enn í sannleika sagt kemur gjaldkeranum það andskotanum ekkert við og  þar að auki  hef ég engan áhuga á að  auðga bankastofnanir meira en þurfa þykir. Ég er með mína greiðsluþjónustu sem mér þykir góð og passa mig sérstaklega í því að standa í skilum við hvern einasta reikning svo bankarnir fái ekki einhverja óþarfa vexti í gróða frá mér. 

Reyndar er þjónustan sem ég stunda mín viðskipti almennt mjög góð. Það breytir því ekki að ég er búin að fá ALGJÖRLEGA UPP Í KOK á BÖNKUM og peningamönnum og vil að þeir láti mig í friði. Þessir helvítis bjánar eru svo ósvífnir að þeir reyna meira að segja að troða sér upp á okkur í vinnunni og selja okkur lífeyrissparnað og það er ekki hægt að kveikja á sjónvarpinu öðruvísi en að bankarnir eru að reyna að auglýsa ágæti sitt. Eina jákvæða við auglýsinguna í morgun var að það er hægt að nota það sem drápstól og jafnvel að afhausa gjaldkera og annan ef ég fer einhvern tíman í hart við einhvern í bankakerfinu. Ég held að þessum helvítis DRULLUSOKKUM væri nær að bæta þjónustuna og minka þennan auglýsingaþvætting.

En fyrst þessir SÁLARLAUSU FÉGRÁÐUGU PENINGADJÖFLAR SKILJA EKKI nema að hart mætir hörðu... Vil ég í annað sinn hvetja til borgarauppreisnar gegn þeim og sprengja BANKASTOFNANIR í tætlur.

Wink Eins og þið sjáið er ég komin í BRÉFBERAJÓLASKAPIÐ og það fer bara versnandi ... þegar lýða fer að jólum.. sjáið bara til. 

Eigið góðar stundir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

og hver var þessi ööömurlega jólagjöf..

kannski dagatal?

jei, cant wait

Guðríður Pétursdóttir, 18.12.2007 kl. 23:00

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Æi þetta... var einhver jólasveinn.... í einhverjum járnmuni sem hægt er að setja upp í glugga.... Rétt eins og bankanir meira .. glys en gagn..

Brynjar Jóhannsson, 18.12.2007 kl. 23:07

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Þakka þér fyrir það Ólafur.... Furðulegt hvað fólk lætur yfir sig ganga.. varðandi þetta bankakerfi... Ég verð urrandi ef einhverjum dirfist að reyna að pranga inn á mig viðbótalífeyrissparnaði.. Langar helst að kíla þetta lið.. Afhverju getur þetta hyski ekki látið mig í friði  ?

Brynjar Jóhannsson, 18.12.2007 kl. 23:44

4 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Vá, þú ert greinilega komin í jólaskapið. Reyndu frekar að berjast fyrir því að fólk hætti að senda þessi bölvuðu jólakort, það hata allir að skrifa þau, en gera þetta af einhverri skildu. Reikna líka með að þau eru ekki í uppáhaldi hjá þér heldur. Varðandi Bankana, jamm ég er alveg sammála þér, þá má nú alveg gera smá uppreisn gegn því bákninu, ef ég heyri einhverjar fréttir um einhverjar árásir á bankana  á næstu dögum, þá skal ég þegja um það hver gerði það Hafðu það gott, kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 19.12.2007 kl. 00:41

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já .. þegar þú heyrir frétt um að banka útibúi hafi verið sprent til grunna á lækjagötu ummmm ég fæ sæluhroll við tilhugsunina..

Brynjar Jóhannsson, 19.12.2007 kl. 00:45

6 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

gott að ég vinn ekki hjá póstinum ......

Lárus Gabríel Guðmundsson, 19.12.2007 kl. 01:40

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Bréfberajólaskapið.... úps....

Jónína Dúadóttir, 19.12.2007 kl. 07:31

8 Smámynd: www.zordis.com

Elsku karlinn .... fáðu þér glögg fyrir útburð!  Yrðir skemmtilegastur, sá allra flottasti sveinn sem um getur!

www.zordis.com, 19.12.2007 kl. 10:41

9 identicon

Bankarnir eru ekki alltaf svo slæmir.. en þessar helvítis auglýsingar eru svoooooo pirrandi!!!!

Dexxa (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 11:52

10 Smámynd: Helga Dóra

Það er gott að finna einn í tilverunni annan en Gilzenegger sem er í eins jólastuði og ég. Gilz er sem sagt ekki hrifin að jólunum og eyðir þeim í ræktinni. Ég er bara í vinnunni.  En hey, frábærar jólasvínkurnar og ég bíð spennt eftir fleirum frá þér, Snobbhænan er góð líka sko, ég held að hún geri ekki neitt nema hafa heimskar skoðanir og greiða á sér hárið.  Gefur þér eitthvað úr Egg eða Habítat í skóinn. Eitthvað sem kostar 10.000 kall og hefur ekkert notagildi. Útlitsdýrkan, hún ælir og sveltur sig og þótt að hún sé með ljóst hár og sílíkon þá er ekkert gaman að fá hana uppí til sín því að hún hugsar svo mikið um að líta vel út að hún getur ekki hreyft sig. En þú færð örugglega rakakrem eða eitthvað Metró frá henni í skóinn.

Helga Dóra, 19.12.2007 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband