Syngjum í vinnunni..

Mikið væri skemmtilegra að vera til ef lífið væri EINN STÓR SÖNGLEIKUR eins og á Brodway. Á hverjum morgni færi fólk færi dansandi í vinnuna og það svaraði hvoru öðru í falsettum. Ef það slettist upp á milli karlmanna myndu þeir skora hvorn annan á hólm og mætast í húsasundi með rafmagnsgítar en sá sigraði sem tæki betra gítarsóló. Kvenfólkið færi upp á HÁA-CIР í orðsins fyllstu merkingu ef karlmaðurinn gleymdi að þrífa eftir sig og syngja börnin í svefn á hverju kvöldi. Rakarinn tæki á móti þér með steppdansi og Læknirinn væri alltaf með klassískan gítarleikara í horninu þegar þú kíktir til að láta gá að meinum þínum.  Þunglindisjúkingar og fýlupúkar væru alltaf með fiðlara með sér hvert sem þeir færu og sprelligosarnir væru með lúðrasveit í kringum sig þegar þeir "SLÆGU Á LÉTTA STRENGI". Allir hefðu sitt lagastef.. Ég til að mynda væri með james bond stefið og Indiana jones stefið í daglegu lífi Cool 

AFHVERJU DATT MÉR ÞETTA Í HUG ?  

Mér datt þetta í hug því ég hef undan farið verið með I-pot í vinnunni til að stytta mér stundir og stundum þegar ég heyri gott lag tek ég undir með tónlistarmönnunum. Það hefur komið fyrir að fólk taki eftir þessu og rekur það upp furðu augu við að sjá mig gaulandi með póstinn í hendinni. Hvort það álíti mig kleppshæfan mann eða hugsi með sér hvað það sé gaman hjá mér skal ósagt látið . Eitt er þó ljóst að ég sé ekkert athugavert við þetta atferli mitt sem ég geri til að stytta mér stundir.  Lífið á að vera skemmtilegt og laust við öll leiðindi. 

Ég mótmæli hér með grámyglu hversdagsins og legg til að allar dagar verði skemmtilegir hjá öllu fólki. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Tek undir það með þér

Jónína Dúadóttir, 6.12.2007 kl. 22:43

2 identicon

Ég syng alltaf með þegar ég er með iPod-inn minn.. að vísu í hljóði.. mæma aðalega bara með.. svona utandyra.. en það er samt glápt á mig.. og mér er andskotans sama! Maður á bara að gera daginn skemmtilegann!

Dexxa (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 11:35

3 Smámynd: Kristín Jakobsdóttir Richter

Er ekki lífið svona ?  Ég er e-ð að misskilja!  Haltu bara áfram að syngja !  Viss um að það lífgar upp á hverfið!

Kristín Jakobsdóttir Richter, 7.12.2007 kl. 11:50

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

 Dexa þá eigum við eitthvað sameiginlegt... að þenja raddböddin þegar við erum með ipodit á milli eyrnanna...

kristín... 

Það má nú deila um það hvort að þessi söngrausn lífgi upp tilveruna. En jú líklega.

Brynjar Jóhannsson, 7.12.2007 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband