Rassinn á mér er farin að reyna við stelpur í leyfisleisi

Í dag snaraðist ég í með bréfin í gegnum hverfið mitt á þann hátt að Indiana Jónes hefði litið út eins og skólakrakki í sandkassaleik í návist minni. Eins og alltaf slapp ég með naumindum frá leiðindum þrasanda með stakri lipurð og á köflum hljóp ég hraðar en neðanjarðarlest er ég smaug leynileiðir í gegnum garða til þess að stytta mér leið til kúnnans. Í sannleika sagt var ég sannfærður að ég væri búin að vinna Þrekvirki sem væri sambærilegt á við að byggja píramídanna í Egyptalandi þar til að síminn hringdi.

HÆ VARSTU AÐ HRINGJA Í MIG ? ..... þetta var vinkona mín og ég vissi ekki hvaðan stóð á mig veðrið..

Nei....rassinn á mér hlýtur að hafa hringt í þig  svaraði ég 

Ha rassinn á þér ?

JÁ sko ég hef verið með síman í rassvasanum í dag þegar ég sat við grófflokkun og ég hef gleymt að setja læsinguna á ...

HAHAHA já en hvað segir þú annars ??? spurði vinkona mín hlæjandi

Ja þó svo að rassinn minn hringdi í þig get ég fullvissað þig um að ég var ekki að gefa skít í þig...Svaraði ég henni með minni sönnu AULAKÍMNI.

Samtalinu lauk skömmu síðar án nokkurra vandamála...

Þegar ég leit á síman sá ég að ég hafði fengið SMS frá einhverri konu sem ég hafði einhverra hluta vegna sett inn á smsið mitt. Líkast til á fylliríi en ég er annars ekki viss.

Hvað meinarðu 1

Hver í fjandanum ertu ?

stóð í smsinu.

Helvítis rassinn á mér hafði þá skrifað 1 í SMS og sent til þessarar konu án þess að segja mér frá því. Ég fékk nett sjokk og sendi sms þar sem ég skýrði fyrir henni að ég hafi sent smsið óvart til hennar og baðst afsökunar á framferði mínu.  Ekki var konan sátt og krafðist þess að fá að vita hver ég væri og neyddist ég til að senda henni linkinn af heimasíðunni minni. Mér til mikillar lukku þá kannaðist hún við mig og hún fyrirgaf mér skilaboðin sem rassinn hafði sent henni.

Nú er ég allur.... Ef þetta eru ekki skilaboð um að ég eigi að fara á veiðar um helgina þá veit ég ekki hvað... Woundering Meira segja rassinn á mér tiltækari en ég í kvennamálum núorðið. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Jáhá! Mér sýnist að þetta séu skilaboð til þín um að fara að gera eitthvað í kvennamálunum  Góða veiði

Katrín Ósk Adamsdóttir, 29.11.2007 kl. 19:32

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

hahaha.. já takk fyrir það

Brynjar Jóhannsson, 29.11.2007 kl. 19:48

3 Smámynd: Guðrún Lilja

hey hélt að þú ætlaðir að koma á deit með mér?

Guðrún Lilja, 29.11.2007 kl. 23:41

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já...... hvenær ? Þú skrópaðir... svo þitt er að ákveða .

Brynjar Jóhannsson, 29.11.2007 kl. 23:52

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ha ha ha ha það verður greinilega einhver að hjálpa þér og rassinn á þér virðist hafa tekið það að sér

Jónína Dúadóttir, 30.11.2007 kl. 07:18

6 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Það eru nú meiri rassaköstin á þeir, afturendinn á þér er að sparka í þig Eigðu góða og fjöruga helgi. Kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 30.11.2007 kl. 10:17

7 Smámynd: Guðrún Lilja

hvað segiru um eftir helgi ?

Guðrún Lilja, 30.11.2007 kl. 10:55

8 identicon

Hehehe.. happy hunting!!

Dexxa (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 14:41

9 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Jónína

Já...  Það er ekki hægt að segja annað en ég hafi fengið óvæntan aðstoðarmann í formi "AFTURHALDSSEKKS"

Ingun...
Sömuleiðis góða helgi..

Guðrún Lilja..

Já eftir næstu helgi hljómar ágætlega 

Arna...
Rassinn minn virðist ekki dansa eftir höfðinu í mínu tilfelli

DIXXA..

já ég skal standa mig í veiðunum þessa helgi...

Góða Helgi öll sömul 

Brynjar Jóhannsson, 30.11.2007 kl. 15:19

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góða helgi

Jónína Dúadóttir, 30.11.2007 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband