Ég er að lesa bók

sem heitir " Hvernig stendur á  því að karlar hlusta aldrei og konur geta ekki bakkað í stæði". Í þessari bók er  fjallað um mismun kynjanna og fullyrt að það sé farið eftir vísindalegum rannsóknum. Ég er sammála mörgu sem stendur í þessari skruddu en það  er margt sem fer dálítið í taugarnar á mér sem er haldið þar fram, því ég veit að það er rangt. Til dæmis er það fullyrt að karlmenn geti ekki gert tvo hluti í einu eins og að keyra bíl og vera í samræðum við annað fólk í bílnum !

hmmmmm HALLLLLLLLÓ ... BANK BANK BANK ER EINHVER HEIMA

þessir vísindamenn hafa greinilega aldrei tekið bílferð með íslenskum leigubílsstjóra eftir helgadjamm. Íslenskir leigubílsstjórar eru sígasprandi við alla í bílnum á meðan bílferðinni stendur. Aldrei nokkurn tíman hef ég lent í karlbílstjóra sem hvartað hefur yfir gaspri annarra í bílnum því hann þurfi að einbeita sér við að keyra. Annar hlutur sem ég rak augun í en það var að karlmenn þurftu alltaf að lækka í tónlist þegar þeir tala í síman. Jú reyndar þarf ég að lækka í tónlist ef hún er svo há að ég heyri ekki í þeim sem talar en oftast er það samt allt í lagi. Samt voru hlutir í bókinni sem ég var sammála eins og sjóndeildarhringur kynjanna er misjafn. Það er víst staðreynd að karlmenn eiga erfiðara að sjá hluti sem eru inni í ískáp en eiga auðveldara með að greina hluti sem eru á lengra svæði. Jú jú mjög athyglisvert allt saman .. en ég er farin að hallast að því að þetta sé nú samt persónubundið og ekki hægt að fullyrða svona um eitt eða neitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Jakobsdóttir Richter

hmmm! svo mikið rekið á eftir manni að manni fallast hendur!  En er mikið sammála um að þetta sé mjöög persónubundið! Ég t.d. hef aldrei lent í vandræðum með að bakka!  En ég er að bíða eftir restinni af bókinni!

Kristín Jakobsdóttir Richter, 27.11.2007 kl. 20:00

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Nei það er það sem ég held  Kristín sjö á ricther að þetta er svo persónubundið að það er ekki hægt að alhæfa neitt um þetta...

Brynjar Jóhannsson, 27.11.2007 kl. 20:39

3 Smámynd: Kristín Jakobsdóttir Richter

HEY!!!!! ekki sjö heldur sex á Richter! Bara hafa það rétt!

Kristín Jakobsdóttir Richter, 27.11.2007 kl. 20:42

4 identicon

Kynin eru kannski ólík að mörgu leyti.. ein eitthvað svona er ekki hægt að alhæfa um.. þetta er allt persónubundið

Dexxa (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 20:50

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

RICHARD scopy.. Já það er tekið gillt...

Dexxa.. jamm einss og ég sem dæmi og talað í síman á sama tíma án þess að pissa á setuna 

Brynjar Jóhannsson, 27.11.2007 kl. 21:54

6 Smámynd: Helga Dóra

 Langaði að óska þér til lukku með daginn um daginn. Er ennþá að vinna upp netleysi helgarinnar og var að sjá fyrst núna að þú áttir ammæli. Allavegana til hamingju

Helga Dóra, 28.11.2007 kl. 00:42

7 Smámynd: Helga Dóra

p.s. Ég er meiri kall en þú eða kannski þú meiri kona en ég...... Ég á rosalega erfitt með að gera tvennt í einu. Nánast sama hvað það er.

Helga Dóra, 28.11.2007 kl. 00:43

8 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

já.. takk fyrir það Helga Dóra...

já ég held að þetta sé nefnilega ótrúlega persónubundið.. hvernig fólk er. 

Brynjar Jóhannsson, 28.11.2007 kl. 07:42

9 Smámynd: Guðrún Birna le Sage de Fontenay

Ég var að svara áhugaverðri könnun á hi-mailinu áðan frá nemendum á Bifröst þar sem spurt var um áhuga á pólitík og svo var fjöldinn allur af spurningum í þessum dúr. Hvort ég gæti lesið á landakort, talað í síma og horft á sjónvarp, bakkað í stæði ofl. Væri áhugavert að sjá niðurstöðuna þegar hún verður ljós

Guðrún Birna le Sage de Fontenay, 28.11.2007 kl. 14:26

10 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já guðrún .. það væri mjög fróðlegt...

Auðvitað eru heilahvel karla og kvenna mismunandi um það ætla ég ekki að deila.... En ég er samt á þeirri skoðun persónueinkenni fólks er svo ótrúlega misjafn og landfræðilegur að það er með eindæmum... Það sé erfit að að taka einhvern meðalstaðal og setja fram og segja... KARLMENN ERU SVONA og KONA ER SVONA.. það er of mikið litróf að persónum til í þessum heim til þess.

Brynjar Jóhannsson, 28.11.2007 kl. 16:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 185769

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband