ÉG SAGÐI NEI VIÐ TILTEKTARPÚKANN

Ef ég hefði sömu ástríðuna fyrir því að taka til og að semja tónlist og skrifa þá væri ég án efa mesti snyrtipinni veraldarinnar. Gleðin sem ég fæ út úr þrifum er  í smæð öreindarinnar í samanburði við tónlistar og textaástríðu mína og kemur það oft niður á mér. Stundum er íbúðin í slíku ástandi að vinkonur mína beita oft og iðulega "ALLT Í DRASLI GRÝLUNNI Á MIG" Crying. Ég veit ekki hve oft besta vinkona mín hefur predikað hreingerningaráróðri án árangurs. 

BRYNJAR HORFÐU Á MIG ..... ÞETTA ER EKKERT MÁL .. ÞÚ SÝNIR ÞÉR SMÁ HÖRKU OG TEKUR TIL ÁN ÞESS AÐ PÆLA MEIRA Í ÞVÍ... sagði vinkonan við mig í gær þegar við vorum að fara yfir söguna mína og var helmingi ákveðnari en tiltektargribban í húsmæðraskólanum.

  Í daglegu lífi lýsir tiltektin lýsir sér þannig að ég kem galvaskur heim að loknum vinnudegi og hyggst gera íbúðina spegil gljáandi en oftar en ekki þá er ég sestur annað hvort við orgelið eða gítarinn eftir fimm mínútur. Farin á kaffihús til þess að skrifa eða byrjaður að hlusta á tónlist eða tek upp frumsamda tónlist á tölvuna mína. jafnvel þó svo að ég ætli að halda afmælisfyllirí þetta laugadagskvöld eftir á daginn í dag er ég eitthvað latur til. Ég úr búin að setjast þrisvar sinnum við orgelið og á þessu augnabliki er ég byrjaður að blogga. Ég er búin að segja tiltektarpúkanum ítrekað að steinhalda kjafti og segja honum að ég sé húsbóndinn á þessu heimili.  Samt trú ég ekki öðru en íbúðin verði útlítandi eins og tilkippileg GLÆSIBEYGLA eftir nokkra klukkutíma því að minn helsti eiginleiki er sá að ég er bestur þegar á reynir.

Ég farin að taka til..

EIGIÐ GÓÐAR STUNDIR .

Hinn verðandi snyrtipinni.

DR BRYLL Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

það má bæta því við að AUÐVITAÐ kláraðist tiltektin í tæka tíð

Brynjar Jóhannsson, 24.11.2007 kl. 20:00

2 Smámynd: Halla Rut

Íslendingar gera alltof mikið úr tiltekt.

Halla Rut , 24.11.2007 kl. 21:26

3 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Brynjar: Hver nennir að hugsa um kusk híbýla þegar sálin er hrein og skínandi :)

Komst ekki í kvöld en njóttu dagsins.

Lárus Gabríel Guðmundsson, 24.11.2007 kl. 22:44

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Halla...

ÉG ER ÞÉR INNILEGA SAMMMÁLA...

Lárus.....

JÁ sálin er svo sannarlega hrein og skínandi.... Ég er bara að dansa eftir því sem HÖFUÐ SAMFÉLAGSINS SEGIR ..... annars verð ég lamin af vinkonum mínum... JÁ njóttu kvöldsins til hins ítrasta sjálfur.. kæri vin.. 

Brynjar Jóhannsson, 24.11.2007 kl. 23:05

5 identicon

Smá drasl hefur aldrei drepið neinn.. ja, nema það verði svo slæmt að draslið yfirtakið alla stofuna svo ekki er hægt að komast að sófanum, draslið myndar þröngar gönguleiðir í gegn um íbúðina, ekki hægt að komst inn í eldhús nema klífa fjall og faðma ísskápinn, helmingur rúmsins er horfinn, og þúsundfætlur sjást skríðandi um gólfið.. Ég þekkti einn svona.. [fær hroll] Þetta er væg lýsing!

Dexxa (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 11:49

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

hahahahhaha Dexxa .... ég er nú ekki svona slæmur

Brynjar Jóhannsson, 25.11.2007 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband