urrrrrrrrrrrrrrr og hvæs

Samkvæmt óskráðum reglum samfélagsins er ekki leyfilegt að lýta glaðan Mánudag. sá sem býður morgunúrillum svefngenglum góðan daginn er í stórhættu sem barn inni í ljóna búri og á þessum degi úríslkunar er stranglega bannað að brosa. Ef einhverjum dirfist að segja  brandara  á í hættu að vera lögsóttur eða beittur líkamlegu ofbeldi. það er ekki vel liðið að hefja skemmtilegar samræður og er hver sá sem byrjar á slíku komin sem belja á hálan ís. Venjulega er ég frekar vel stefndur á mánudögum en í morgun var ég eitthvað illa fyrir kallaður. Ég minnti á uppvakning eða blóðþyrsta vampíru með bithvassar vígtennur þegar ég mætti í vinnuna og hvæsti á alla í kringum mig sem styggur hreysisköttur. Ég hafði allt á hornum mér og lét allt fara í taugarnar á mér. Í miðri vinnunni þegar ég  var að reyna að skilja hvað olli þessari geðshræringu minni, uppgvötaði ég að ég væri orðin slappur. Í hvert einasta skipti, rétt áður enn ég veikist brettist ég í URRANDI LJÓN með þyrni í augunum.

HVÆS HVÆS SEGI ÉG ÞÁ og afhausa liðið í kringum mig eða skítt það niður með ímyndaðri hagla byssu

HVÆS HVÆS  segi ég og er búin að taka tuttugu karatespörk í huganum á þeim sem fara í taugarnar á mér með slíkum tilþrifum að þau fá bruse lee til að snúa sér í gröfinni og steven Seigal lýta út sem pissudúkku í návist minni. 

En jákvæða við daginn í dag er að vinnudeginum er lokið og því get ég safnað orku fyrir morgun daginn og mætt galvaskur í vinnuna með brosi á vör.  en á meðan ætla ég að URRRRRRRRRRRRRA ..

Eigið góðar stundir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Lilja

vona að þú hættir að URRRRRRRRA fljótlega  

Guðrún Lilja, 19.11.2007 kl. 16:33

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

já .... urrið búið eftir góðan og heilandi svefn

Brynjar Jóhannsson, 19.11.2007 kl. 22:00

3 Smámynd: Guðrún Lilja

Það er nú gott þá getur mér farið að líða betur

Guðrún Lilja, 19.11.2007 kl. 22:12

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já... tími afhausunar er afstaðin litli köttur og þú getur nú gengið frjáls um götunar án þess að kenna þér nokkurs mein

Brynjar Jóhannsson, 19.11.2007 kl. 22:18

5 Smámynd: Guðrún Lilja

já það er alveg rétt  mjááá

Guðrún Lilja, 19.11.2007 kl. 22:24

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

það ætti að setja herlög á íslandi þegar ég er í pirruðu skapi

Brynjar Jóhannsson, 19.11.2007 kl. 22:32

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

 Bjössa músarafa ? hver er það .. ?

Brynjar Jóhannsson, 19.11.2007 kl. 22:43

8 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já... SÁ Íhaldsúlfur væri nú vís til að siga víkingasveitinni á mig í mánudagsmorgunúrílsku minni

Brynjar Jóhannsson, 19.11.2007 kl. 22:54

9 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Þetta eru fyrstu einkenni sem ungarnir mínar hafa, helv... skapstyggð og illska, þá er best að vera ekki mjög nálægt þeim Flensudruslan er að læðast aftan að mörgum þessa dagana Farðu vel með þig, svo að þú lendir ekki í steininum, ef þú ert að því komin að missa þig á almanna færi Kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 19.11.2007 kl. 23:05

10 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Þakka þér fyrir það Ingunn .... ég skal passa mig á því að lenda ekki á bak við lás og slá vegna úrilsku minar..... Ég lenti í riflildi við konuna á efri hæðinni út af gjörsamlega engu fyrir viku. Tveimur dögum síðar hringdi hún í mig forveik og baðst afsökunar á því hvernig hún kom fram við mig. Ég held að það segi það sem segja þarf

Brynjar Jóhannsson, 19.11.2007 kl. 23:42

11 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Brynjar: Jón Höskuldsson sagði mér eitt sinn í óspurðum fréttum að þegar hann kenndi ama og úrillsku hafi hann iðullega soðið vatn. Að því loknu setti hann góðan skammt af valmúa í pappír og lét liggja í seyðinu í tíu mínútur eða svo. Þetta soð sagði hann svarið heilaga við öllum pirring. Ég hef ekki enn farið að þessum ráðum enda skipti ég sjaldan skapi þannig lagað. Ef marka má sannleik annara ráða sem Jón Höskuldsson hefur látið frá sér fara myndi mig þó ekki undra ef þetta húsráð hans væri þjóðráð hið mesta.

Lárus Gabríel Guðmundsson, 20.11.2007 kl. 00:41

12 Smámynd: Halla Rut

Vertu ljúfur, það fer þér betur.

Halla Rut , 20.11.2007 kl. 10:59

13 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Lárus..

Jamm

Halla..

Hmmm jú jú svo sem... en það er nú alltaf leyfilegt að urra þegar maður er að verða veikur..... 

Brynjar Jóhannsson, 20.11.2007 kl. 15:17

14 Smámynd: Guðrún Lilja

já það er sko leyfilegt  ég urrrra á næstum því alla í dag

Guðrún Lilja, 20.11.2007 kl. 15:23

15 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já þú ert bara eins og HUNDUR OG KÖTTUR KOMIN SAMAN Í EITT... Síurrandi..

Brynjar Jóhannsson, 20.11.2007 kl. 15:54

16 Smámynd: Guðrún Lilja

já ég get líka stundum verið svona eins og villiköttur

Guðrún Lilja, 20.11.2007 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband