Mikilvægum erindargjörðum mínum er lokið.

Starfi mínu sem sendiherra (bréfberi) á vegum ríkisins er lokið í dag. Sérlegum erindabréfum hefur verið komið til skila ásamt öllum tilheyrandi glugga pósti sem fylgir þessari vinnu. í dag færði ég bókatíðindin til fólksins í hverfinu mínu, sama hvort fólkinu  líkaði það betur eða verr og vegna þunga þessa skeinibæklings var burðurinn óvenju erfiður. Á mínum vinnu stað ríkir mikill humor sem mér líkar ákaflega vel

           - BÍLSTJÓRINN ER Á LEIÐINNI ÚT BAKARÍ TIL AÐ KAUPA KRÆSINGAR HANDA OKKUR. æpti ein konan af sæluvímu. því alltaf þegar það eru erfiðir dagar er keypt handa okkur eitthvað bakelsi.

          - Hvað veist þú um það ? kannski var hann bara að fara að kaupa snúð fyrir sjálfan sig- svaraði annar stafsfélaginn um leið.  fólk fór að hlæja og tók vel í þetta skot.

Í fasta hverfinu sem ég tek mældist pappíssorinn heil 111 kílo sem verður að teljast þónokkuð þungt enda var ég þrefalt lengur að færa fólki pappírssneplanna í GLORSOLTIN GIN LÚGANNA en venjulega.

    Helgin er framundan og því get ég ekki kvartað yfir einu né neinu og er ég sannfærður að ég lífskúnsterinn muni njóta hennar til hins ítrasta. Ef ég fer út á lífið þá er ég með tilsvörin til reiðu ef einhver daman spyr mig hvað ég geri ?

                   " Ég er dreingastjóri hjá stóru fyrir tæki" mun ég svara dömunniCool

                   (sem er algjörlega satt ég vinn við það að dreifa bréfum) LoL

                   " og hvað ertu menntaður ?" myndi þá daman kannski spyrja á eftir. en þá mun ég vitna í ljóð mitt afródíta sem þiið getið fundið á heima síðunni minni.

                  LoL " Ég er nemandi að læra í háskóla lífsins og hinn meinlausi trúður af mennt"Happy             

                   Smile" og hef mest allan lærdómin dregið af því sem kaldlindið hefur mér kennt" Cool

síðan set ég upp svip af hætti perstley, þen út kassan og verð eins digurbarkalegur og ég mögulega get.

Staðreyndin er sú að þetta bréfberastarf mitt er ótrúlega mikil kvennafæla. Þegar ég bæti við að ég sé ómenntaður er ég úthýstur úr sjóndeildarhring kvenna á augabragði og hent út í hafsauga. Ég vil meina að þetta séu fordómar hjá konum, því að í raun er ég ekki mikið fyrir að auglýsa ágæti mitt þrátt fyrir að vera mikill monthani í mínum humor. Ég gæti réttilega titlað mig sem rithöfund,tónlistar og textahöfund,skáld, en ég geri það ekki því mér finnst það ekkert koma málinu við. Auðvitað hef ég minnst einhvern tíman á kunnáttu á listrænum sviðum en oftast nær þá sleppi ég því. Það breitir því ekki að ég er mjög meðvitaður um mína listræna kunnáttu er fjarri því að vera þykjustu -hóvær maður. Annars hvað sem gerist um helgina, þá er hún dæmd til að vera skemmtileg.

GÓÐA HELGI. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

segðu bara dömunum að þú sért bloggari af Guðs náð (skáld, rithöfundur...) annars jámm, mig langar svo að samhryggjast þér fyrir að þurfa að burðast með allan þennan aukapóst (ekki sko bókatíðindi því þau eru yndisleg) ég var einu sinni að bera út póst og það var hræðilegt, endalaus dreifibréf og bara vanlíðan (ég var svo aum að þetta tók mig alltaf miklu lengri tíma en átti að gera). Vinnan hefði verið svo ljúf ef fyrirtækin þyrftu að sjá um að koma þessu frá sér sjálf. Ríkið ætti bara að sjá um póstinn og banna öll dreifibréf

halkatla, 16.11.2007 kl. 16:50

2 Smámynd: halkatla

Já, og góða helgi

halkatla, 16.11.2007 kl. 16:50

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

hahahhaha ... ÖNNU KAREN Á ÞING.. Þú fengir ölll athvæði okkar bréfbera.. það er ljóst og líklega landans líka því ég veit ekki til þess að fólki sé almennt vel við þessa skeinibæklinga nema brókasóttatíðindin

Já eigðu góða helgi líka

Brynjar Jóhannsson, 16.11.2007 kl. 16:54

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

já góða helgi bryndís

Brynjar Jóhannsson, 16.11.2007 kl. 16:54

5 identicon

Sæll Brylli bréfberi!

 Hafðu himneska helgi, gangi þér geggjaðvel með gellurnar, en gagtu vel um gleðinnar dyr.

Kv, Lilja.

Lilja (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 19:06

6 identicon

Góða helgi Brylli bréfberi

alva (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 20:37

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Þakka ykkur kærlega krúttin mín tvö, Lilja og Alva og SÖMULEIÐIS... spegill

Brynjar Jóhannsson, 16.11.2007 kl. 20:47

8 Smámynd: Ólöf Anna

Ertu ekki að grínast skeinisbæklingur Ég hoppaði hæð mína (sem er ekki erfitt þar sem hún er ekkert rosaleg) þegar ég sá að bókatíðindin voru kominn. Búinn að liggja yfir henni í kvöld og merkja við það sem mig langar í. Svo verður henni skilað inn til jólagjafanefndarinnar með öllum sínum krossum og kossum og vonað það besta. En Brylli þakka þér fyrir vel unninn störf í þágu íslenska ríkisins og alls póstheimsins. Þótt að við gjaldkerarnir séum náttlega miklu mikilvægari

Ólöf Anna , 17.11.2007 kl. 00:57

9 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Frændi

þetta hljómar bæði fallega og freistandi   hver veit nema að ég taki þig á orðinu

Brynjar Jóhannsson, 17.11.2007 kl. 00:58

10 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

já.. ÓLÖF::

Á hverjum degi .. framkvæmi ég MISSION INPOSSIMBILE

Brynjar Jóhannsson, 17.11.2007 kl. 00:59

11 Smámynd: Ólöf Anna

Hey átt þú ekki að vera einhverstaðar á djamminu núna?? Þú veist helgi og allt það..

Ólöf Anna , 17.11.2007 kl. 01:02

12 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já... samkvæmt bókinni ætti ég að vera það... en mér lýður oft miklu betur með sjálfum mér, en að fara niður í bæ bara til að fara niður í bæ... BÆ JABB BÆ BÆ BÆ

Brynjar Jóhannsson, 17.11.2007 kl. 02:03

13 identicon

hvað ertu búin að vera lengi bréfberi hvað margir viðkomustaðir 50% VINNA EÐA

sibba BRÉFBERADÚFA (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 00:48

14 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

... sko það er eitt hverfi sem er 50 prosent vinna...  og svo er ég hálft núna sem hlaupari...

Brynjar Jóhannsson, 19.11.2007 kl. 01:27

15 identicon

hahahahahahahahahahahahahahahahahaha fyndnasti maður landsins 2007

sibba BRÉFBERADÚFA (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 20:08

16 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Brynjar Jóhannsson, 19.11.2007 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband