13.11.2007 | 15:51
Pólitíska rétttrúnaðarkirkjan.
Ég þekki manneskju sem er á móti því hve mikið er af innfluttu vinnuafli hérlendis og hún vill breita innflytjendalöggjöfinni. Þessi manneskja sagði mér einnig að hún sé oft og mörgu sinnum ásökuð fyrir að vera rasisti fyrir þessa skoðun sína. Ég þekki þessa manneskju mjög vel, enda er hún minn allra besti vinur og ég get staðfest að ég hef aldrei á ævi minni hitt meiri mannvin og fordómalausari einstakling.Pólitíska rétttrúnaðar kirkjan er samt alltaf tilbúin með kyndilinn og tjöruna til að brenna hana á nornabrennu og upphróparhana röklausum óyrðum fyrir að vera á þessari skoðun sinni. Þó ég sé ekki á sömu skoðun og ummrædd manneskja þá virði ég hennar sjónarmið og höfum við allloft átt rökræður um þessi mál.Mín tilfinning er að fólk þori ekki orðið að ræða orðið opinskátt um viðkvæm málefni nema að það segi JÁ OG AMEN við öllu því sem pólitíska réttrúnaðarkirkjan boðar af ótta við að verða fyrir ofsóknum. Ég er á því að slíkur tilfinningarhiti skapi sundrungu því oftast er ráðist á þann sem síst á sök á máli.
Ég hef tildæmis fengið fólk upp á móti mér fyrir að segja þá skoðun mína að það sé ekki nóg að refsa nauðgaranum heldur verði að hjálpa honum að bera ábyrð á gjörðum sínum. Að það sé engin lausn að herða alltaf á refsirammanum ef glæpamenn komi út úr fangavistinni eingöngu sem verri menn. Þá var sagt við mig að ég væri BARA TÍBÍSKUR KARLMAÐUR sem findi til samkendar með fórnalambinu en ekki þolandanum. Mér þótti þessi gífuryrði ekki manni eins og mér sæmandi, enda get ég sagt það stoltur að ég bjargaði konu frá 25 ára barsmíðum upp á hvern einasta dag og hún segir að ég hafi bjargað lífi sínu.
Í síðasta bloggi þar sem ég fjallaði rasista síðu Skaparinn.com þar sem ég fjallaði um hvað sú síða væri gjörsamlega út fyrir ölll siðferðismörk. Í annað sinn fæ ég skyndilega ofurvinsældir hér á bloggheimum og í þetta skipti var það EKKI vegna þess að ég fjallaði um þessa heimasíðu. Ástæðan var sú að ég missti það út úr mér að ég sjái ekkert athugavert að bókin tíu litlir negrastrákar sé gefin út. Pólitíska réttrúnaðarkirkjan fer þá að æpa og upphrópa mig ýmsum nöfnum og verð ég að viðurkenna mér þótti býsna óþægilegt sitja undir ýmsu sem ég fékk þá að heyra. Mér leið eins og ég væri gerður að málsvara kynþáttafordóma og allt í einu fara umræðunar að snúast um 10 litla negrastráka en ekki þessa heimasíðu. Ég er þeirrar skoðunar að slíkar upphrópanir sem ég þurfti að heyra skapi tvískynnungshátt. Raunverulegir kynþáttahatar kjósi sér penni orð og sigla á milli skels og báru á meðan fólk eins og ég sem er frekar á móti sjálfstæðismönnum en svertingjum ef eitthvað er fæ það óþvegið.
Ég tel brínt að það þurfi og eigi að ræða viðkvæm mál. Tilfinningarhiti og gífuryrði eru ekki til að leysa hlutina heldur málefnalegar umræður sem byggja á því að komast að réttri niðurstöðu.
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Halla Rut
-
Anna Einarsdóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Signý
-
Kreppumaður
-
Fríða Eyland
-
Heiða Þórðar
-
Bara Steini
-
Marta B Helgadóttir
-
halkatla
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sema Erla Serdar
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Björgvin
-
Bjarki Tryggvason
-
Jón Þór Ólafsson
-
Brissó B. Johannsson
-
Tinna Jónsdóttir
-
Sigurlaug Kristjánsdóttir
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Aðalheiður Ámundadóttir
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Ásgerður
-
Brattur
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Bergur Thorberg
-
Viktor Einarsson
-
Agný
-
Lady Elín
-
Guðfríður Lilja
-
Gunnar Axel Axelsson
-
Óskar Helgi Helgason
-
Sigurður Viktor Úlfarsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Matti sax
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
kiza
-
Huld S. Ringsted
-
www.zordis.com
-
Brjánn Guðjónsson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Jónína Dúadóttir
-
Páll Geir Bjarnason
-
Sigríður Hafsteinsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Stríða
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
S. Lúther Gestsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Ólöf Anna Brynjarsdóttir
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Sævar Einarsson
-
Gullvagninn
-
Kolgrima
-
Óskar Þorkelsson
-
Helga Dóra
-
Guðrún Birna le Sage de Fontenay
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Óskar Arnórsson
-
Kristín Jakobsdóttir Richter
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldóra Rán
-
Helga Magnúsdóttir
-
Guðrún Lilja
-
Mía litla
-
Íris Arnardóttir....vitringur
-
Þórhildur Daðadóttir
-
polly82
-
Andrea
-
Hdora
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Brynja skordal
-
SeeingRed
-
Benna
-
Villi Asgeirsson
-
Svartagall
-
Alfreð Símonarson
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Skattborgari
-
Aprílrós
-
Mál 214
-
Bwahahaha...
-
Isis
-
persóna
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Vefritid
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Hlédís
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Eva
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
brahim
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
100% sammála því að það þurfi að slappa aðeins af í innflytjendamálunum/rasistaköllum. Fólk verður að sjá að einsog málin standa núna þá hagnast hvorki innflytjendur né við sem hér erum fædd á núverandi ástandi. Hræðsla innflytjenda við kerfið og innfædda magnast sem og tortryggni okkar í garð þeirra.
Og ég skal sko segja það hér yfir allan gjörvallan bloggheim að ÞÚ ; minn kæri Brylli; ert sko alls ekki "týpískur samúðarlaus karlmaður"! Ef það hefði ekki verið fyrir tilvist þína á ákveðnum stað og ákveðnum tíma fyrir tæpum tíu árum þá veit ég ekki hvert ég hefði leitað annað en beinustu leið út í sjó! Og HANANÚ! Hef alltf viljað þakka þér almennilega fyrir að vera til staðar fyrir mig þó við þekktumst ekki mikið á þeim tíma, það skipti mig meira máli en þú veist.
Ekki hlusta á þessar gagnrýnisraddir, þú og ég og allir sem þig þekkja vita betur.
kiza, 13.11.2007 kl. 16:07
Æi já það jóna... Ég var búin að steingleyma því.
Takk fyrir hólið.
Brynjar Jóhannsson, 13.11.2007 kl. 16:34
En ég gleymi því ekki.
kiza, 13.11.2007 kl. 17:13
Hvaða væl er þetta yfir umræðunni um TLN ? Það eina sem gert var var að bera rök fyrir því hvers vegna það væri siðlaust að demba þessu sorpi yfir lítil börn sem enn eru ekki búinn að mynda sér skoðun eða þróa með sér dómgreind. Ertu með því að ræða viðkvæm mál ??? Hvað ertu það að væla yfir því að einhver hafi ekki sömu skoðun og þú og skjóti þig í kaf í rökræðum ???
Kæri kútur.......
Lárus Gabríel Guðmundsson, 13.11.2007 kl. 22:09
Góði Brylli minn uppáhalds blogg kamerrat ekki... eftir að hafa lesið þetta aftur þá skil ég ekki alveg hvað þú ert að tala um allavega gagnvart mér. Í tvígang tek ég það fram að þú sért janréttissinni og ekki rasisti, sem ég veit að að er rétt. Einnig sé ég að það var mér að kenna hvert umræðan fór og reyndi þarna í rúmlega 100 færslu að koma því til þín að mér þætti það leitt...En að ég tilheyri pólitískum rétttrúnað einhverjum kannast ég ekki við, ef þú vilt þá get ég verið úti ....en ég bara skil ekki ...hvorki upp né niður....
Með vinsemd og virðingu
Fríða Eyland, 13.11.2007 kl. 22:21
Lárus.. minn ég vísa þessu þvaðri þínu yfir til föðurhúsanna..staðreyndin er sú að þú varst með persónuleg níð í minn garð og varst byrjaður að vega að mér sem persónu. Það getur hver maður það séð sem yfir það les. Þú til að mynda ásakaðir mig um að vera gengin af göflununm og varst með annars konar níðskot sem voru með öllu óþarfar. Í fyrsta lagi voru þessar umræður um síiðuna skaparinn.com en ekki negra stráka og út af því að ég sagði sem satt er að ég væri ekki á móti þeirri bók... þá helltust yfir mig ásakanir úr öllum áttum og umræðan fór af réttum farvegi.
í það minsta myndi ég fara varðlega í að vera halda fram að þetta málaefnalausa og hrokafulla þvaður þitt séu rök. Ég einfaldlega hafði ekki orku né vilja til að troða þessau þvaðri upp í kokið á þér því fáfræðina er ekki hægt að rökræða.
Fríða Eyland.... Já þú varst öllu málefnalegri en Lárus það er rétt. mér líkar samt engan veginn þegar umræðunar fara að snúast um eitthvað annað en ég ætlaði að fjalla um í fyrstu. Ég marg oft og ítrekað bað um að umræðan færi ekki í þann farveg sem ég bað um enn beiðnin var alltaf hunsuð.
Brynjar Jóhannsson, 13.11.2007 kl. 22:54
Brynjar: Það að maður spyrji "Ertu búin að missa vitið" er ekki það sama og að segja blákalt að einstaklingur sé geðveikur. Þetta er frasi sem viðgengst í mannlegum samskiptum og er hverjum kunnugt að ekki ber að taka hann nærri sér en svo. Að ég hafi ásakað þig um eitthvað er kolrangt. Það getur hver læs maður séð. Fyrirgefðu, umræðan var um skapari.com. Ég lét fyllilega í ljós álit mitt á þeirri síðu ekki satt ??? Getur þú ekki séð að í umræðu um málefni eru fleiri en einn flötur ?
Málefnalausa þvaður ? Ég get staðið á bak við hvern bókstaf en því miður get ég ekki sagt að rökhyggjan hafi verið til staðar í skrifum þínum í gær og ....ja.....mér sýnist heldur ekki í dag.
Lárus Gabríel Guðmundsson, 13.11.2007 kl. 23:01
Úps, svo segir þú við Bryndísi að hún sé of hörundssár vegna þess að hún vill ekki bjóða börnunum sínum upp á að þessi umtalað bók sé höfð með í þeirra uppeldi ? Hver er hörundssár ?
Lárus Gabríel Guðmundsson, 13.11.2007 kl. 23:05
Lárus..
Það er fyrst og fremst þú sem verður hörundssár og byrjar með einhvern ástæðulausan ofsa sem engin ástæða er fyrir. Ég tíðnefndi að ég væri ekki að ræða um þessum heldur þessa heimasíðu. Samt var ég gerður að málsvara hennar þvert gegn mínum vilja. Ef þú hefðir verið með plastpoka fyrir munninum, ANDAÐ INN ANDAÐ ÚT og sparað gífuryrðin þá hefði verið hægt að ræða hlutina af viti.
Ég sagði það á sínum tíma við Bryndísi á síðu fríðu eyland þar sem ég var að benda henni á að flest fólk sem var ekki á móti þessum bókum væri ekki með fordóma. Að þegar fólk syngi þetta lag þá sé það ekki að meina neitt illt með því.
og þessvegna skaut hún þessu á mig. Hún baðst einnig fyrirgefningar á því að umræðan hafi farið í þessa átt.
Staðreyndin er sú að þú virtir ósk mína af vettugi aftur og ítrekað og því var ekki hægt að ræða nokkurn skapaðan hlut á málefnalegum nótum. Ég sagði líklega tíu sinnum þarna að ég væri ekki að ræða þessa barna bók heldur um síðu skaparans.
Hér að ofan koma helber dæmi sem sýna afhverju fólk þorir ekki að tala um svona mál m. Fólk nú á dögum þorir ekki að ræða mál eins og innflytjendamál af ótta við að það sé ásakað um fordóma. Þú hefur áður ásakað t.d um innflytjendanoju þegar ég fjallaði um þá staðreynd að grófustu nauðganir sem gerst hafa hérlendis hafa verið framkvæmdar af útlendingum. Bara því ég vildi ræða þessi mál þá bauð ég hættunni heim og það af manni sem veit það best sjálfur að ég er ekki haldin slíkri noju.
Brynjar Jóhannsson, 13.11.2007 kl. 23:32
Fríða mín..
Nei endilega.. vertu inni..
þú ert svo skemmtileg og eins og þú sagðir sjálf þá reyndir þú aftur og ítrekað að setja umræðuna í réttan farveg aftur...
Brynjar Jóhannsson, 13.11.2007 kl. 23:36
Brynjar: Ok...hmmm...ég er ekki ofsamaður og var það ekki heldur í gær. Ég held að það sé tóm bábilja að fólk þori ekki að ræða innflytjendamál. Ég heyri útundan mér í samfélaginu talað um innflytjendamál hvern einasta dag og stundum oft á dag. Rök takk !
Jú, grófustu nauðganir framdar af útlendingum ! HALLÓ !!!! RÖK TAKK !
Ég er ekkert á því að vera að kíta að ástæðulausu en það er ekkert að því að rökræða. Þar stendur hnífurinn í kúnni. Það var ekki ég sem byrjaði að tala um TLN eða afstöðu mína til TLN. Ég svaraði bara til baka þeim "rökum" sem þú settir fram.
Eitt ráð: Gerstu aldrei pólitíkus, þá þyrftir þú nefnilega að þola að fólk hefði aðra skoðun en þú
Lárus Gabríel Guðmundsson, 13.11.2007 kl. 23:40
Lárus..
Lárus..... Jú innflytjendamál eru rædd á hverjum degi,það er rétt en mjög margir forðast að ræða þau út af ótta við fordóma eins og ég sýndi hér að ofan varðandi með bestu vinkonu mína.
það eru rök að grófustu nauðganir eru framdar af útlendingum. Portugali fékk nýverið þriggja ára dóm og flúði úr landi og það var ekki ósvipuð nauðgun framin í vestmannaeyjum einnig af útlendingi.
Ég held að þú ættir að lýta í þinn eigin barm. Mér sýnist frekar þú eiga erfitt með að fólk sé með aðrar skoðanir.
og note bene... Jú þú ert víst ofsamaður og hef ekki þekkt þig öðruvísi....
T.d .. þegar þú gjörsamlega tryllstist af ástæðulausu þegar ég sagði gamansögu af félaga mínum.. Þá meðal annars titlaðir þú mig sem mesta rugludall íslands eða eitthvað ámóta.
Ég held að þér væri hollast að viðurkenna að þessar umræður hafi farið af réttum farvegi og gífuryrðin sem þú hafðir á lofti voru gjörsamlega óþörf.. ég er búin að sýna nokkrum það sem þú lest út úr þér varðandi fyllikall fyllikallanna og undantekningarlaust hristi fólk höfuðið og sagði að það hliti að vera eitthvað að hjá þér. Ég er þess sannfærður að hið sama gangi um þessa umræðu.
Brynjar Jóhannsson, 13.11.2007 kl. 23:54
Brynjar:
Já, það er sem ég segi. Það er erfitt fyrir suma að þola þegar allir aðrir eru ekki sammála. Brylli minn, það er allt í fína mín vegna, ég get alveg umborið það. Annað er það að taka dæmi um 2 nauðganir og segja: ÞARNA SJÁIÐ ÞIÐ BARA, GRÓFUSTU NAUÐGANIR Á ÍSLANDI ERU FRAMDAR AF ÚTLENDINGUM.
Frábær rökhyggja.
Annars hef ég nú bara verið að reyna að hrista aðeins upp í þér gamli vin og taldi þig nú alveg þola það, ef þér finnst ég hafa gengið aðeins yfir tærnar á þér í hörku svara minna, verð ég bara að segja að ég taldi þig meiri mann en svo að væla undan því.
Yfir og út...
Lárus Gabríel Guðmundsson, 14.11.2007 kl. 00:04
Arfa umræðan fór öfugt ofaní æskuvin þinn kæra, Lárus hann þolir ekki snobbhænur og fannst erfitt að horfa á eftir þér inní rökleysi ég hélt
svei mér þá að þetta væri tækni sem þið félagarnir væruð að æfa ykkur í pennaslagur....og eruð enn að 
Fríða Eyland, 14.11.2007 kl. 00:31
Lárus minn..
Mér þykir ákaflega vænt um þig og skammast mín ekkert að segja það.
Ég þekki ekki neinn og þar á meðal sjálfan þig sem sættir sig við að þurfa að vera gerður að málsvara einhvers sem hann stendur ekki fyrir. í tilefni bloggsins hér að neðan..
Ég skal koma með sjónarmið mín fram sem ég hefði svo gjarnan viljað ræða án hávaða og láta.
Mín skoðun er sú að annað hvort átti að gefa söguna nákvæmlega eins og hún er eða sleppa því að gefa hana út. Ástæðuna er sú að mynd og saga hanga saman og þó svo að það hefði verið skrifað blökkumenn eða svertingjar eða fmhnakkar.. þá hefði boðskapurinn verið sá sami.
Þessi bók er á bannlista í Bandaríkjunum yfir rasistaáróður og er geymd á bókasöfnum sem sýnibókadæmi um kynþáttahatur.Það er einmitt þessvegna sem ég tel þessa bók mjög merkilega því að í árafjöld var þessi bók lesin á hverju íslensku heimili án þess að nokkur spáði í því. Hún lýsir í hnotskurn hvað íslendingar voru bláeigir og staurblindir á það sem stendur þarna. Þegar ég las yfir þetta hjá Fríðu eyland þá gat ég ekki annað en hlegið því mér fanst hún svo gjörsamlega út í hött. Ég lít því á hana sem dæmi um fjósamenskuhátt íslendinga og hvað tímarnir hafa breist til betri vegar. Ef sögunni hefði verið breitt þá hefði verið um sögufölsun að ræða sem mér þætti algjörlega út í hött því að boðskapurinn á bak við hana er sá sami.
Mörg bókaforlög neituðu að gefa þessa bók út vegna ótta við að allt yrði brjálað út af henni. Áhyggjur forlaganna reyndust á rökum byggðar því það var allt brjálað út af henni.
Ég leit á þessa bók sem víti til varnaðar en ekki til að inprennta áróður í fólk. Þar sem ég er almennt fylgjandi prentfrelsi þá sá ég ekki ástæðu til þess að banna hana. Bókin dæmir sig sjálf.
Brynjar Jóhannsson, 14.11.2007 kl. 00:38
Fríða... Þegar ég átti við lesa yfir.. þá ég við það sem þú bloggaðir um og sýndir myndir úr henni.... en ekki það sem þú sagðir áðan
Brynjar Jóhannsson, 14.11.2007 kl. 00:42
Brynjar: Ojæja minn kæri, verum þá bara sammála um að vera ósammála um þetta tiltekna mál. Það þýðir ekki að þrátta meir enda rökræðan komin í þrot. Þakka rimmuna
Lárus Gabríel Guðmundsson, 14.11.2007 kl. 00:51
Sömuleiðis labbakútur..
Gangi þér vel að blása..
Brynjar Jóhannsson, 14.11.2007 kl. 00:53
Fannst þér verra að skoða bókina sællamynninga, Muggur menningar-arfaleið mæ as, eða að svara þú þarna snobbhænan þín ...
Blaðrar í kross eins og skoppararnir enda varðstu vængstýfður á endanum og ég bryllaði. Annars skil ég pontið, þessu hefur verið hvíslað að mér áður, þessvegna reyndi ég að vera eins hlutlaus og mér var unnt (í gömlu minni með arfa-myndunum) Þakka þér fyrir að skella mér í fjósið þar er ylur, eins og í dæmisögunni fögru sem við förum að minnast fljótlega, þar vil ég gjarnan vera takk. Ég veit sem er að bönn bæta fátt en ég er þeirrar skoðunar(skín í gegn) að uppstillingin var ekki smekkleg, sérstaklega fyrir snobbara eins og Elínu Hirst og Kolbrúnu sem er með Agli í bókarýni á RUV ...auðvitað veit ég að umfjöllun eykur sölu mar þarf ekki að vera hagfræðingur til að skilja það þessvegna benti ég ósköp prúð á að setja þessa Listaverkabók hjá Kjarval þannig allir geta verið sáttir, snobbhænur og barnafólk..eitt að lokum ......umfjöllun er alltaf góð .....
Fríða Eyland, 14.11.2007 kl. 01:48
Fríða..
Jú þetta er menningararfleið þó slæm sé... krakkar ólust upp við þetta lag frá blautu barnsbeini og margir kunnu það betur en faðir vorið. Bókin er minningartengd flestum íslendingum sama hve ljót hún er.
Saga okkar íslendinga er full af frásagnaarfi sem við getum ekki beinlínis státað okkur af. Jörundur hundadagakonungur. einokunaröldin og alsírránið. Allt eru þetta hluti af okkar sögu hvort okkur líki það betur eða verr. Ólafur pétursson slökkvuliðsstjóra sonur gerði sig meðal annars frægan fyrir að vera einn afkasta mesti njósnari nasista. Sama gildir það um þessa umræddu sögu. Hetjur okkar til forna myndu teljast sem fjöldamorðingjar í dag og því til rökstuðnings nægir að nefna Gunnar Frá Hlíðarenda sem myrti 16 mans.
Ég tel mig nú hafa komið mínu sjónarmiði vel á framfæri í mínu síðasta bloggi mínu og tel það fullnægjandi ENDA ER ÉG KOMIN MEÐ OFNÆMI FYRIR ÞESSUM NEGRASTRÁKUM.
Brynjar Jóhannsson, 14.11.2007 kl. 02:07
fríða.. þú ert að misskilja.. Ég var ekki að tala um þig varðandi FJÓSAMENSKU HÁTT... heldur bókina... ?????
Brynjar Jóhannsson, 14.11.2007 kl. 02:12
Gott mál ég er með þetta sama ofnæmi, frelsarinn fæddist í fjósi ég er alveg sérstaklega sátt við að vera bendluð við það en ekki klína á mig kirkju hvorki pólitískri né rétttrúnaðar.
Fríða Eyland, 14.11.2007 kl. 11:08
Bárður: Lékstu þér með dúkkur þegar þú varst lítill ?
Ég hef ekki séð þig koma með neitt haldhæft í þessum rökræðum annað en að kvarta yfir því að fólk hafi of sterkar skoðanir. Mér afvitandi er ekkert sem bannar neinum það.
You don´t have any balls my friend
Lárus Gabríel Guðmundsson, 14.11.2007 kl. 11:20
Brylli minn... Enn og aftur er blásið af stað orrahríð því fólk sem hér er að bögga þig hefur bara einfaldlega ekki hæfileikann til að taka mark á öðrum eða hvað þá að geta átt heilbrigð skoðannaskipti því það er einfaldlega svo rótfast í sinni trú á sitt... Ekki taka mark á þessu kallinn minn. Við hin vitum betur og þessvegna erum við að ræða við þig ekki þau og það segir sitt er það ekki.
Bara Steini, 14.11.2007 kl. 12:15
Bárður
Málið er að það taka allir eftir þessu nema Lárus. Ég hef sýnt ýmsum hvað hann hefur skrifað hér á blogginu og allir hingað til hrista hausinn. í þokkabót snýr hann hlutunum yfir á aðra, ásakar fólk um væl og eins og í þínu tilfelli er hann með einhver ákaflega barnaleg skot og spyr þig hvort þú hafir leikið þér með dúkkur þegar þú varst lítilll. Í raun er hann talandi sönnun um þennan pistil minn um hvernig fólk grípur til gífuryrða að ástæðulausu og forðast að ræða hlutina á hóværari nótum.
Brynjar Jóhannsson, 14.11.2007 kl. 14:32
sammála þér brynjar hinn frábæri og æðislegt
það gerir svo lítið úr öllum vandamálum þessar sífelldu upphrópanir, ég er þeirrar skoðunar að það geri bara illt verra að leyfa fólki ekki að hafa sínar skoðanir. Þannig missa orð og hugtök alla merkingu.
En þessu hjó ég eftir og fannst snilld:
"ég sem er frekar á móti sjálfstæðismönnum en svertingjum ef eitthvað er fæ það óþvegið."
fólk er nú bara ekki mannlegt nema vera á móti sjálfstæðismönnum, það segi ég alltaf (og ef einhver er ófær um að taka þessu sem gríni verður sá aðili að eiga það við sig)
halkatla, 14.11.2007 kl. 14:41
djöfull get ég verið rugluð, þetta átti ekki að vera æðislegt heldur æðislegi - og ein setning kom alveg fokkt opp út, hún átti ekki að vera:
ég er þeirrar skoðunar að það geri bara illt verra að leyfa fólki ekki að hafa sínar skoðanir
heldur:
ég er þeirrar skoðunar að það geri bara illt verra að leyfa fólki ekki að tjá sig á sama hátt og það hugsar (af því að þannig verður bara til bæling og leynimakk sem er stórhættulegt)
ég er búin að gera ótal freudian slip í dag, heilinn er eitthvað eftirá miðað við puttana
halkatla, 14.11.2007 kl. 14:44
Takk fyrir skemmtilegt innlegg Anna..
Tildæmis í þínu tilfelli þá ertu kristin kona og ég hef einhvern tíman rökrætt við þig um trú. Þó við vorum á sitthvorri skoðun í einhverjum málefnum enduðu aldrei rökræðunar að við færum að sparka í "punginn" á hvoru öðru.
Enda gátum við rætt hlutina með málefnalegum hætti.
Brynjar Jóhannsson, 14.11.2007 kl. 14:59
Kæru gagnrýnendur: Takk fyrir úlfúðina. Hún styrkir mig, eins og hún styrkti Muhammed Ali !
Lárus Gabríel Guðmundsson, 15.11.2007 kl. 00:27
Brynjar Jóhannsson, 15.11.2007 kl. 00:30
Ja... ég veit ekki bryndís mín....
það er nú alveg hægt að ræða hlutina í ró og næði.. Það gefur oft bestu laustnina.. ekki satt ?
Brynjar Jóhannsson, 16.11.2007 kl. 00:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.