ÉG VANN ENN OG AFTUR! ÉG ER BESTUR

 Ég fór í afmæli í gærkveldi hjá vinkonu minni Evu og  skemmti mér fallega .Í upphafi kvöldsins átti ég við mikið áfengisvandamál að stríða sem lýsti sér þannig að BJÓRINN var frosin og ég gat ekki drukkið hann. Ég varð seint og illa fullur og náði ekki að æla ofan í hálsamálið á neinni konu eða vera með almennileg skrílslæti. Kannski kom áfengisvandamálið sér vel því að ég sigraði ENN OG AFTUR í spurningarkeppninni hennar en ég hef unnið í öllum keppnum sem hún hefur haldið á fylleríum heima hjá sér Cool . Það var skipt í sirka átta hópa og við þreykið (ÉG OG HJÁLPARHELLUNAR) bárum sigur úr bítum með miklu ÖRYGGI (munaði einu stigi). hahahahahah ÞETTA SKÍTAPAKK ÚR HÁSKÓLANUM KANN EKKI NEITT LoL..

           -AULAR AULAR öskraði ég í sigurvímu svo allir heyrðu eftir að ég hafði borið sigur úr bítum.

Eins og hóværum manni sæmir þá þakkaði ég  aðalega sjálfum mér fyrir sigurinn enda voru hin tvö í liðinu svona eins dekkjalið  formúluökmans Cool. Liðið fékk tvær rauðvínsflöskur að verðlaunum og þar sem ég var hjarta og heili liðsins féll það í mitt hlutverk að drekka rauðvínið. Áfengisvandamálið hvarf hægt og bítandi og var ég á endanum orðin hrasandi fullur og byrjaður að þvaðra tóma fylllerísvitleysu á trúnaðarskeiðinu. 

Í dag er hálfgerður útfaradagur hjá mér og er ég þunnari en draugur. Reyndar lýður mér oftast vel í þynku og er ótrúlega afslappaður. 

Eigið góðar stundir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

TAKK TAKK

Brynjar Jóhannsson, 11.11.2007 kl. 15:09

2 identicon

Misstir þú kannski af hinum vinningnum, 2-0 þarna hjá þessum sem júdasinn sveik eina helgi og hefur ekki verið fyrirgefið enn fyrir vikið. Allaveg. Til hamingju með þig (okkur?)  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 17:02

3 Smámynd: Bara Steini

Sendi þér þynnku heilsur kallinn minn

Og Bjórpinni.... Beint úr frystinum hehehe 

Bara Steini, 11.11.2007 kl. 17:18

4 Smámynd: Halla Rut

Þú ert svo fyndin...

Halla Rut , 11.11.2007 kl. 17:48

5 identicon

Hehehehe.. ég er alltaf jafn ánægð með að verða ekki þunn.. það er æðislegt!

Dexxa (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 18:00

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Anna.. já druslunar þarna frá mancister eru komnir á toppinn... Það breitir því ekki að LIVERPOOL ER MEÐ FALLEGASTA LIÐIÐ og það liprasta með pésa krufs í farabroddi..

Þakka þér steini.. ég rísi upp úr dauðum fyr eða síðar

Halla... Ég þakka fyrir ég verð bara grátklökkur að heyra svona hól.

Brynjar Jóhannsson, 11.11.2007 kl. 18:04

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Þynkan er mjög fín fyrir svona ofvirkt eldfjall eins og mig.. ég fæ þá að slappa af lokisins og fæ frí hjá sjálfum mér

Brynjar Jóhannsson, 11.11.2007 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband