10.11.2007 | 09:57
ÞEIR ERU AÐ KOMA AÐ SÆKJA ÞIG ROTTAN ÞÍN TIL AÐ BERJA ÞIG
Ég vann í þvottahúsi á elliheimili og á hverjum degi labbaði ég með þvottakerru inn á allar deildir til að sækja óhreina taupoka. Daglega fór ég inn á hjúkrunardeildir þar sem að gamla fólkið var öllu skrautlegra og skemmtilegra en á venjulegu deildunum. Á einni þeirra fór ég alltaf fram hjá gömlum manni í hjólastól sem stundaði þá daglegu venju að æpa á mig.
FÍFL..........FÍFL::: FÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍFL FÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍFL.
Því næst elti horringlan mig á hjólastólnum og reyndi að berja mig.
Upp á hvern einasta virka dag, viku eftir viku hélt gamli maðurinn athæfi sínu áfram. Alltaf þegar ég fór framhjá honum fór hann æpa..
FÍFL ::::FÍFL FÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍFL
og ef ég var í nánd við hann elti hann mig á hjólastólnum og reyndi að berja mig eða stoppa mig af í hjólastólnum.
ÞEIR ERU AÐ KOMA AÐ SÆKJA ÞIG ROTTAN ÞÍN TIL AÐ DREPA ÞIG.. sagði hann eitt sinn við mig og hjólaði hjólastólnum í mig með grimdarlegum svipi. Ég varð oft pirraður á þessum stælum hans og reyndi að skamma hann en þá óx öldingurinn ásmegin og varð enn þá illkvitnari við mig. Samstarfskellingarnar sögðu mér að ástæða pirringsins væri sú að þessi gamli maður þoldi ekki aðra karlmenn því hann liti á sjálfan sig sem konung í ríki sínu. Ég var orðin langpirraður á þessari framkomu þó svo að mér þætti hún ótrúlega fyndin. Ég vissi ekki til hvaða ráðs ég átti að taka og einn daginn þegar hann er byrjaður að æpa á mig spyr ég samstarfskellingarnar..
ER HANN SVONA VIÐ ALLA ?
NEi hann er bara svona við þig sagði .. ein þeirra ...
Við göntuðumst að þessari framkomu hans og töluðum hvað stríðni hans væri einkennilega svört. Þegar ég gjóaði augunum til gamla mansins færðist skyndilega stíðnisglott upp á varir hans. Hann hafði þá verið að stríða mér allan tíman með þessu háttarlagi og kvikindisskapurinn verið gagn og gaman gamla mansins.
eftir það heilsaði hann mér alltaf eins og þjóðhöfðingi og varð einn af mínum uppáhalds gamlingjum.
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Halla Rut
-
Anna Einarsdóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Signý
-
Kreppumaður
-
Fríða Eyland
-
Heiða Þórðar
-
Bara Steini
-
Marta B Helgadóttir
-
halkatla
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sema Erla Serdar
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Björgvin
-
Bjarki Tryggvason
-
Jón Þór Ólafsson
-
Brissó B. Johannsson
-
Tinna Jónsdóttir
-
Sigurlaug Kristjánsdóttir
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Aðalheiður Ámundadóttir
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Ásgerður
-
Brattur
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Bergur Thorberg
-
Viktor Einarsson
-
Agný
-
Lady Elín
-
Guðfríður Lilja
-
Gunnar Axel Axelsson
-
Óskar Helgi Helgason
-
Sigurður Viktor Úlfarsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Matti sax
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
kiza
-
Huld S. Ringsted
-
www.zordis.com
-
Brjánn Guðjónsson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Jónína Dúadóttir
-
Páll Geir Bjarnason
-
Sigríður Hafsteinsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Stríða
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
S. Lúther Gestsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Ólöf Anna Brynjarsdóttir
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Sævar Einarsson
-
Gullvagninn
-
Kolgrima
-
Óskar Þorkelsson
-
Helga Dóra
-
Guðrún Birna le Sage de Fontenay
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Óskar Arnórsson
-
Kristín Jakobsdóttir Richter
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldóra Rán
-
Helga Magnúsdóttir
-
Guðrún Lilja
-
Mía litla
-
Íris Arnardóttir....vitringur
-
Þórhildur Daðadóttir
-
polly82
-
Andrea
-
Hdora
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Brynja skordal
-
SeeingRed
-
Benna
-
Villi Asgeirsson
-
Svartagall
-
Alfreð Símonarson
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Skattborgari
-
Aprílrós
-
Mál 214
-
Bwahahaha...
-
Isis
-
persóna
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Vefritid
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Hlédís
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Eva
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
brahim
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er rosalega gaman að vinna með gömlu fólki.. var að vinna á elliheimili fyrir örfáum árum, var að skúra og vann í búrinu.. þetta fólk er svo skemmtilegt..
Dexxa (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 10:05
Já... það er nefnilega málið.. gamla fólkið er miklu skemmtilegra en starfsfólkið.. allaveganna þar sem ég var að vinna..
Brynjar Jóhannsson, 10.11.2007 kl. 10:08
Honum hefur þótt þú heldur bryllaður eða var það þarna sem þú bryllaðist...
Fríða Eyland, 10.11.2007 kl. 10:26
Svona er að vera krútt
.... eins og ég
Brynjar Jóhannsson, 10.11.2007 kl. 11:21
Hef bæði verið að vinna á öldrunardeild og geðdeild, það er alveg frábærlega skemmtilegt að vinna með því fólki. Það er að vísu líka til leiðinlegt fólk inn á milli, en maður reynir ekki að muna mikið eftir þeim. En það er satt hjá þér oft eru sjúklingarnir skemmtilegri en starfsfólkið
Ingunn Jóna Gísladóttir, 10.11.2007 kl. 11:40
Ójá.. gamla fólkið er sko miklu skemmtilegra en starfsfólkið.. ég var sko að vinna með nokkrum fucking pirrandi tussum (afsakið orðbragðið), sem virtust ekki bera virðingu fyrir nokkurri manneskju..
Dexxa (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 13:43
fimm...
Ingun.. já auðvitað var leiðinlegt fólk þarna inn á milli en gæðaperlunar bættu það upp.
Craxy Dixxa.. já mér fanst eins og sumar ættu frekar eiga heima í slátur húsum en nokkurn tíman við ummönun aldraða.
Brynjar Jóhannsson, 10.11.2007 kl. 14:03
Góður kallin, lætur sér ekki leiðast.
Halla Rut , 10.11.2007 kl. 18:47
Já... það segið þið satt.Halla Og Arna.... hann er býstna skondinn þessi maður.. Enda hafði ég virkilega gaman að honum..
Gunnar.. það var einmitt málið.. hann var algjör konungur í ríki sínu þessi elska..
Brynjar Jóhannsson, 10.11.2007 kl. 20:03
þið tveir hafið nú aldeilis verið krútt saman!!!!
Brissó B. Johannsson, 10.11.2007 kl. 21:15
Haha góður, það er svooo gaman að vinna innan um gamalt og skemmtilegt fólk.
alva (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 22:47
hann hefði betur lamið þig helv. kallinn........
Lárus Gabríel Guðmundsson, 10.11.2007 kl. 23:23
Brissó... Já krútt með stóru Ki
alva.... SATT
Lárus.... Hann reyndi það nokru sinnum......
Brynjar Jóhannsson, 11.11.2007 kl. 12:20
Hahahaha góður sá gamli, gamla fólkið getur verið svo yndislegt og einmitt með dáldið skrýtinn húmor
Benna, 11.11.2007 kl. 13:56
Brynjar Jóhannsson, 11.11.2007 kl. 14:11
Ég get alltaf skellt uppúr yfir sögunum þínum, þú segir stórskemmtilega frá.
Fleiri sögur, takk. Vona að þú sért að ná þér af þynnkunni. 
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.11.2007 kl. 16:40
Ég verð örugglega orðin hressari á morgun
Brynjar Jóhannsson, 11.11.2007 kl. 16:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.