Niðurstaða heimspekilegra hugvísinda..

Eftir áratugalangar vísindalegar rannsóknir á hyldýpi huga míns og draumsýn undurmiðvitundar minnar hef ég loksins komist að hugvísindalegri niðurstöðu um sjálfan mig. Að baki niðurstöðunar liggur þrotlaus vinna og ítarlegar rannsóknnir þar sem ég hef skoðað sjálfan mig í smáeindir og séð mig víðasta heimspekilega samhengi . Ég hef rínt ofan í alla kima sálarlífsins og spurt bæði sjálfan mig og aðra ítarlegar spurningar um mína margbrotnu persónu. 

 Niðurstaða rannsóknarinnar er þessi ....

ÉG ER KRÚTT.

 

Krúttleikin lekur undan mér og kemur fram í hinum ýmsustu myndum. Ímyndunarafl mitt er mikilfönglegra en stórfengleg teiknimynd og ærslagangur hugsananna fjörugri en Tommi og Jenni í slagsmálum. Þegar ég æsi mig þá minni ég á Andrés Önd en er eins og Kalli kanína í tilsvörum. Ég líkist Gúffa í kvenna málum og er herramanslegri en Mikki Mús í framkomu. í mannlegum samskiptum er ég fjörugri en köttur með sinnep í rassgatinu og sætari í mér enn stærsta gerð af rjómaís. Á fylleríum breitst ég Friede star sem heillar dömunar upp úr skónum með léttum steppdanssporum og spyr þær úr spjörunum með orðheppni að hætti inspekor clouso (peter selles).

Krúttleikinn minn kemst á það mikin astralkendan heimsmælikvarða að nafn mitt Brylli ætti að vera samheiti yfir orðið KRÚTT. Í framtíðinni verður sagt... æi hvað þú ert mikill Brylli í þér.. eða Ó Ó Ó Ó HVAÐ ÞÚ ERT BRYLLAÐUR... eða eigum við að BRYLLAST SAMAN...

eigið góðar stundir. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þá er ég líka krútt

Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.11.2007 kl. 19:14

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já ég held að það sé deginum ljósara Gunnar Helgi að við séum báðir krútt

Brynjar Jóhannsson, 8.11.2007 kl. 19:27

3 Smámynd: Ólöf Anna

gúsí músí bábá...

Ólöf Anna , 8.11.2007 kl. 23:13

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

hahahaha... NEi ekki þannig krútt ... meira svona andans krútt

Brynjar Jóhannsson, 8.11.2007 kl. 23:14

5 Smámynd: Fríða Eyland

Aðferðafræði ekki sem verst ekki niðurstaðan heldur það er ein kynslóð kölluð krútt... þau eru að fara að brylla næst gangur tímans styrkir niðurstöðuna......

Fríða Eyland, 9.11.2007 kl. 09:09

6 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

til hamingju

Lárus Gabríel Guðmundsson, 9.11.2007 kl. 12:58

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Nöldrari.. Já eða BRYLLAÐ KRÚTT...

Fríða Eyland.. Kannski ætti að kalla þessa kynslóð.. BRYLLAKYNSLÓÐIN..

Lárus.. Já þakka þér sömuleiðis álfurinn minn og eigðu góða helgi..  

Brynjar Jóhannsson, 9.11.2007 kl. 13:41

8 Smámynd: Fríða Eyland

Niðurstaðan fær ekki fimm stjörnur eins og aðferðafræðin Sjálfumgleðin er valdur lækkunar gott er að hugsa sér nær og skynja veröldina sem heild en þegar þú sérð ekkert nema sjálfan þig og kosti kemstu ekki langt Heildin er 3 og 1/4 af fimm mögulegum...

Kveðja 

Fríða Eyland, 9.11.2007 kl. 17:46

9 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já en ég heiti Brynjar Konungur Bryllaríkis og nafli himingeimsins. Heimurinn snýst í kringum mig og veröldinni var ætlað að þjóna mér

Brynjar Jóhannsson, 9.11.2007 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 185561

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband