Uppskrift að skoðunum öfundsjúks bohema

Hallmæltu Sjapplín og kvikmyndum Harold Louds

Halldóri laxnesi sporaðu í svörðinn þinn gríttan

Talaðu illa um kynferðiskenningar Froud

og Kahil A girban sem heimspeking einskynsverðnýttan

 

Segðu" að william Shakspire sé verstur í leikritagerð

og Wolgan a mozart sé afleiddur tónlistarsmiður

þróunarkenning hans Darvins sé vorkunnarverð

og verkin hans Poe sé lélegur ritgagnaviður

 

segðu" að kenningar Nitche séu bann hæf sem tal kaffihúsa

því kenningar þínar þær leysi aðeins heimsmálin öll

Fullyrtu að Hoocker sé fremjandi vonlausa blúsa

og fáklæddur socrates drýgði aðeins innantóm köll

 

Fretaðu lofti á kenningar Jesú Krist

Segðu "að kóraninn hafi ekki boðskap til nokkurs að bera

þá hefur þú numið þá niðrandi sköpunarlist

að nölda um þá sem komu til þess eins að vera

 

Ljóð við lag mitt... Brynjar jóhannsson..

 

Bannað að birta nema með mínu leyfi. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Flott hjá þér. Ég þurfti að lesa þetta mjög hægt til að ná þessu til fulls (kannski er ég bara svona vitlaus). Ef þetta er sungið þarf það að vera söngvari sem er skýrmæltur. Svo Megas er út úr myndinni en Sverrir Stormsker væri góður en kannski ert þú söngvari sjálfur, ég veit það auðvitað ekki. 

Halla Rut , 15.8.2007 kl. 19:34

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

þakka þér hólið halla.... ég þyki alveg þolanlegur söngvari þú getur séð lag hérna til hliðar sem heitir kúrekin... það er myndbandið

Brynjar Jóhannsson, 15.8.2007 kl. 22:02

3 Smámynd: Lady Elín

Góður!

Lady Elín, 15.8.2007 kl. 22:36

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þurfti að lesa þetta tvisvar - frábær!

Marta B Helgadóttir, 16.8.2007 kl. 23:13

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ljóð við lag þitt..... samdir þú þá ljóðið líka ?  Spyr fávís kona. 

Anna Einarsdóttir, 16.8.2007 kl. 23:17

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já..ANNAN MÍN..... það er víst...

Brynjar Jóhannsson, 16.8.2007 kl. 23:59

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Svakalega flott hjá þér.  Samt líkar mér ekki síðasta erindið af því að mér var kennt að svona talsmáti væri guðlast.    Hin erindin eru mögnuð. 

Anna Einarsdóttir, 17.8.2007 kl. 00:42

8 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

ELSKU HJARTANS Anna mín.....

Textin ber heitið ... UPPSKRIFT AF SKOÐUNUM ÖFUNDSJÚKS BÓHEMA.Textinn er uppskrift af  skoðunum sjálfskipaðra SÉRFRÆÐINGA  sem nuða yfir helstu mikilmennum heimssögunar og telja sig vita alltaf betur og vera vitrari enn allir aðrir. 

Slíkt fólk væri einmitt víst að freta lofti á kenningar jesú krists og segja að kóraninn sé boðskaparlaus. Ef þú tekur mið að því þá ég EKKI AÐ GUÐLAST í þessum texta heldur að lýsa hugarfari einstaklins sem telur sig YFIR AÐRA HAFIN..

Hitt er að ég hef oft og mörgum sinnum guðlast í mínum textum ..... En þvertek fyrir að ég sé að gera það í þessum.

Brynjar Jóhannsson, 17.8.2007 kl. 14:00

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

BRYNJAR GÆSKURINN MINN...   Ég var alls ekki að dæma þig, né nokkurn annan og er nett sama úr hvaða munni textinn kemur.... mér bara líkar ekki þessi orðanna skipan úr munni bóhemadruslunnar og þá segi ég bara það sem mér finnst og það er ekkert illa meint. 

Og taktu eftir....... restin er MAGNAÐUR TEXTI finnst mér. 

Piff.

Anna Einarsdóttir, 17.8.2007 kl. 14:35

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Á að troða upp á menningarnótt ?

Anna Einarsdóttir, 17.8.2007 kl. 14:36

11 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

NEI.

Fyrst borgaryfirvöld hafa ekki enn þá hringt í mig og boðið mér að spila þá ætla ég að láta mig vanta.

Brynjar Jóhannsson, 17.8.2007 kl. 15:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband