Kúrekinn vestrinu...

KÚREKINN 

Sérð kúrekann í vestrinu með byssubelti í hendi

og bandarísku martröðina í hverjum sjónvarpssendi

Misnotandi Jesú Krist og múgsefjandi skrílinn

Marserandi í leitinni að olíu á bílinn

Enn Kalli Rove það er heilahvelið hans

þessa hryðjuverka manns

Sem býr til yndjána úr araba og ógn úr hverju horni

Andskota úr friðarsinna og bull úr visku korni

Hann Kalli Rove

 

Og Kínakarlinn rís á bak við komunista merki

og Kúrekinn er hræddur við hans miklu vaxtarverki

Er sígur stóran skammt af sínu ofsatrúardópi

Með soghljóðum í nösina og halelulia hrópi

Kúrekinn hann bjó til þúsund ára ríkið

Hann er skratti í mansins líki

Er sannfærður að hann sé sjálfur nafli himingeimsins

Hafin yfir aðra menn og öskur þriðja heimsins

Kúrekinn 

 

og Kúrekinn hann sólundar nú tindátunum sínum

Með Samma frænda í veislu haldi handa auðvaldssvínum

og Hitleranir fjórfaldast og verða að forstjórunum

en Friðsamlegu Jesúsannir enda geðstofnunum

Kúrekinn hann hræðir brandaríska bjánan

og Brennir smánarblett á fánan

Með Nýrri gerð af þinghúsbruna setti upp sjónarspil

en Síðan valið ógnvaldið sem hann bjó sjálfur til

Kúrekinn... 

 

Ljóð eftir Brynjar Jóhannsson við eigið lag...

ÉG HVET ALLA TIL AÐ SKOÐA BÍÓMYNDINA LOOSE CHANGE EN HANA ER HÆGT AÐ SJÁ Á GOOGLE ÓKEYPIS.

 

Bannað er að birta LJÓÐIÐ nema með mínu leyfi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég lofa að stela aldrei aftur af síðunni þinni.  Ok ?  Vinir og alles !

Anna Einarsdóttir, 1.8.2007 kl. 18:41

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Nei ... afhverju ætti ég að halda að þú myndir gera það Anna... mér finnst þú stórskemmtileg... skemmtilegasti bloggarinn hérna ... sko.. þú máttir alvag taka af síðunni minni... þetta eru textanir mínir .. það er annað....

Brynjar Jóhannsson, 1.8.2007 kl. 18:44

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk kallinn minn.    Samt ekki kallinn minn, þú veist.  Þú mátt líka fá lánað allt sem þér sýnist hjá mér ef þér sýnist, sýnist mér.

Anna Einarsdóttir, 1.8.2007 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband