Hvað var jesú áður en hann fæddist.. ?

 
 
Fáir vita að Jesú Kristur var Rúnar Leopálsson áður en hann fæddist. Drengurinn stundaði skemmtannalífið af miklum eldmóði og með tímanum leiddist hann út í eiturlyfjaneyslu. Eftir að hafa prufað hinn og þessi "óefni" komst Rúnar að því að hassið væri líf hans og yndi og fór að púa kanabisefni eins og ofvirkur skorsteinn. Honum líkaði hvergi betur við sig en blokkaríbúð sinni í Breiðholti og stundaði þar mikið úthverfar íhuganir.
 

 

vá sjáið þessa gardínu maður Sick

 

sagði Rúnar við sína verðandi lærisveina sem voru gjarnir að koma í heimsókn til þess að fíra eina feita með honum. Útúr reyktur mannskarin góndi svo klukkutímum skiptir á garðdínur íbúðar hans- auk þess að fá snilldar viðskiptahugmyndir sem þeir voru svo frábærar að þeir höfðu gleymt þeim öllum fyr um kvöldið.

 

Hei ég er með hugmynd... ég bara man hana ekki mar Errm

 

Einn daginn komst Rúnar mjög merkilegri niðurstöðu. Hann uppgvötaði það að hann væri Jesú Kristur og sá að nýja testamenntið væri skrifuð um sig. Einhverra hluta vegna átti fólk erfitt með að trúa honum og þótti maðurinn galin en brást maðurinn við með þeim hætti að sýna þeim mikilfönglegt kraftaverk. Hann bauð félagaskara sínum að koma með sér niður á höfn og þar ætlaði hann að sýna að hann gæti gengið á vatni. Þetta var að vetri til um miðbik desember og því frekar kallt í veðri. Félagarnir létu þessa vitleysu eftir honum enda meira félagar heldur en vinir.

 

Far vel félagar-

Sagði Jesú og stökk í sjóinn.

GaspGaspGaspGaspGaspGaspGaspGasp

 

Auðvitað sökk maðurinn á bólakaf og greip skelfing um sig í kjölfarið. Hringt var í lögregluna undir eins og tóks laganna vörðum að bjarga manninum frá dauðum með mikillri hetjudáð.

 

Núna er jesú komin inn á geðdeild og verður þar um ókomna tíð. Honum finnst vistin þar fín en samt sem áður út í hött- þar sem hann vill frekar vera út í hinum vitfirta heimi í þeim tilgangi að bjarga honum frá glötun.

 

Já en ... ef ég næ að breita stofnanna súpunni í vín... viljið þið þá sleppa mér lausum FootinMouth 

 

Spurði hann geðlækni sinn um daginn. Ekki þótti lækninum hugmyndin góð og jók lyfjaskammtinn hans aftur.

Eitt má þessi Jesú Kristur eiga- Hann kenndi lærisveinum sínum þá lexíu að fara varðlega með eiturlyf og hættu þeir flestir neyslu í kjölfarið á þessum atburði.


það er ÓGEÐSLEGT AÐ VERA ÁSTFANGIN... OJJJJ OOJJJJJJJ OJJJJ:

 

Það er fátt eitt skelfilegra en að vera ástfangin. Um það hljóta allir að vera sammála og þá sér í lagi ég.  Þetta væmni þrungna tímabil er heilahristingi líkast og fjarri því að vera viti borið. Ekkert er jafn skelfileg tilhugsun og ósanngjarnara hlutskipti en að verða lostin af ást. Hvernig má það vera að sykursætar glæsikvendúllur byrtast óumbeðnar í líf mans og valdaræna hausinn á mér?

 

og biðja ekki einu sinni um leifi ? Angry

  

Þær birtast bara sisona og stela af mér senunni? Ég verð skyndilega kurteis og fæ einhverjar heimskar hugmyndir í hausinn eins og fer að sýna af mér herramanslegt fas.

 

-nei komdu sæl fröken hvað er skítt... uu nei ég meina títt .. DÖÖÖ ég mis- ældi mig Blush

 

Fallegi og yndislegi hluti Kvenþjóðarinnar er ekkert nema til ama og leiðinda að þessu leiti. Þeirra fallega bros gerir mig fallega feimin og þvinga mig til þess að gera eitthvað ósæmilegt eins og að vera góður. 

 

-Oj bara ... ég get ekki bloggað meira ... ég er farin á klósettið til að æla  af almennilegheitum. Crying

 

Hei ... hlustið á lag sem er í spilarnum mínum- það heitir AÐ ELSKA ÞIG ER ÓGEÐSLEGT. Það lag sýnir bæði og sannar hvað er skelfilegt að verða lostin af þessari furðulegu vellýðunartilfinningu. 

 

<----- lagið er næst síðast á spilaranum.

 

Já og ég nenni ekki að hlusta á eitthvað helvítis ástarþref frá einhverjum sívæmnum og ælulegum fagurgölum. Þið getið bara andskotast til að vera sammála mér og tekið undir hvert orð sem ég er að segja.

 

Annars....

 

góða helgi.. Cool

 

 


mbl.is Ástin lenti á bið í 20 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessar myndir, sýna og sanna að Árni var svo sannarlega lagður í einelti.

Ég náði myndum af fundinum þar sem Árni M Mathiesen var gjörsamlega lagður í einelti af talsmanni Breta. Það er hverju orði sannara að Árni greiið hann Matthisen átti í vök að verjast eins og þetta myndskeið bæði sýnir og sannar. Raunar er hálf ótrúlegt að horfa á alþjóðasamfélagið láta þessi slagsmál afskiptalaus og lýta undan þeim eins og allt sé í stakasta lagi.

 

Sjáið hér. 

 

 
Ljótt að sjá svona aðfarir  Crying .. Skamm alþjóðasamfélagið ... Skamm skamm skamm Bretland fyrir að sýna okkur svona framkomu varðandi Icesave deiluna.Angry

 

 


mbl.is Árni átti í vök að verjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Júlí 2009
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband