Færsluflokkur: Tónlist
29.10.2009 | 02:07
Ég á tónleikum fyrir stuttu.
Þetta er ég
Að spila lifandi
á Rósenberg -12 okt, 2009
Kúrekinn - gjörið svo vel
Bassi- Ingimundur óskarsson
trommur- Jón Indriðason
rafmagnsgítar- Hallvarður Ásgeirsson
Kassagítar og söngur- Ég
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2009 | 11:04
Þetta lag
.........er á geisladisk sem er verið að leggja lokahönd. Lagið er eftir mig og heitir Anti metro sexual en geisladiskurinn heitir Martraðaprinsinn.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2009 | 02:31
Privatherbergin..
í duldum dökkum herbergum
og Dr jenkle verður herra Hide
karlmenn verða að prinssessum
og trúðar fella tregatár
og tilveran hún gerist óréttmæt
á bak við læstar lokaðar dyr
þar lifnar óeðlið
og myrkraverur fremja enn eitt
ódæðið
fláir siðapostular sjást
þar sjúga kókaín
barnaperrar byrtast þar í sýn
Þjófarnir þeir skipta
ránsfengnum með sér
Svikarararnir leggja launráð
í duldum dökkum herbergjum
og Djöfullinn á létta stengi slær
englar verða að ófreskjum
og inn í mesta myrkrinu
er morðingi sem hendur sínar þvær
Á bak við læstar lokaðar dyr
þar lifnar óeðlið
Rót hins illa ræktar ávöxt
ranglætis
Dýrslostinn þar kemur í ljós
loftið rafmagnast
og góðmennin úr þurru umturnast
Tónlist | Breytt 26.10.2009 kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.5.2009 | 07:46
Roðin í KLAUSTRI.. nei ég meina í austri.
Taugatitringurinn væri , upp á sjö á rikter, ef ég væri fengin til syngja fyrir Vladimír Pútín forsætisráðherra Rússlands. Að sjálfsögðu myndi ég reyna að syngja viðeigandi tónlist fyrir járntjaldaþjóðhöfðingjann eins og rússneska þjóðsönginn. Það myndi ekki breyta því að þegar stigi upp á svið væri mér líkt að bulla tóma steypu.
Já komið þið sæl .... nú er Roðin í klaustri ... Nei ég meina au au austri .. hei strákar takið bara lagið..
Myndi byrja á að segja og síðan í óöryggi mínu syngja
<---Disko abbadís
En þið getið heyrt það í spilaranum mínum.
Ekki yrði Pútín parhrifin af tónlistarflutningi mínum. Raunar sé ég hann fox illan fyrir mér að honum loknum og hann myndi lesa úr söngum mínum stríðsyfirlýsingu á Rússland.
SVÍVIRÐA
Myndi Pútín æpa og tæki upp kalsnikovriffil og dritaði alla í kringum sig. Ég væri farin á vit forferða minna langt fyrir aldur fram og það fer fjarri lagi að Pútin léti þar við sitja. Áður en við vitum af þá væri búið að varpa risastórri kjarnorku sprengju á Reykjavík og Ísland væri orðið að fanganýlendu fyrir forherta glæpamenn.
ENDIR
Söngvaseiður Pútíns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 07:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2009 | 06:19
Poppgoð með kreppu.
Ég er komin með óhrekjanlega samsæriskenningu varðandi tónlistarmanninn Elton John. Kenningin spannar yfir víðan völl, eða alveg frá Bítlunum til íslensks stjórnmálaflokks og mun hafa úrslitaáhrif á íslensku þingkostningarnar næstkomandi laugadag. Ef myndir eru bornar saman af þessum tónlistarmanni síðan 1970 og í dag kemur glögglega í ljós að hér ekki um sama manninn að ræða.
Hér sjáið þið myndband af honum elton í kringum 1970- bæði á grönnum höndum og svipbrigðum ætti öllum að vera ljóst að þarna er í raun og veru Phil Spektor á ferð, sem meðal annars gerði garðin frægan sem upptökumaður Bítlanna.Mín kenning er sú að Phil hafi ákveðið að búa til auka persónu útfrá sjálfum sér sem er elton John og svo þegar hann sá að það væri svo mikið í að gera í upptökubransanum tók hann þá ákvörðun að fá sér stadista í staðin fyrir sig til að leika ELTON.
Stund sannleikans er runnin upp
Ef við berum Elton siðan 1970 við myndbandið sem ég sýni að neðan er margt sem stiður þessa samsæriskenningu mína eins og t.d er Elton ekki með sömu sólgleraugun og hann var með 1970. Hann er líka í öðrum fötum og það sem er enn þá grunsamlegra er að hann er með annað píano. Það sést langar leiðir að selspikaður skógarbjörn hefur verið tamin til þess að stíga á stokk fyrir hann og flytja hans helstu lög. Peningarírnun á eigum Johns ýtir sterklega undir það að hann sé að þiggja mútur og tengi ég þessi mútutengls klárlega til framsóknaflokkinn. Miðað við hvað röddin hans er rám er ég sannfærður um að dvergbangsi hafi verið tamin af dýratemjara til þess syngja fyrir hann og sá sem standi á bak við þetta sé Sigmundur Davíð formaður Framsóknarflokksins.
Afhverju segir þú Sigmundur standi á bak við þetta-
Hefur þú eitthvað fyrir þér sem stiður þessa fullyrðingu þína?
NEi reyndar ekki... ástæða þess að ég tengi þessa kenningu mína við Framsóknarflokkinn er vegna þess að mig langar svo að komast á þennan óvinalista framsóknarflokksins sem var birtur í DV yfir óvini þessa afvegaleidda flokks sem viðheldur vinsældum sínum á hræðsluáróðri og hálfkveðnum vísum.
Hér er nýlegt myndband af Elton- Framsóknarbangsa og vakna grunsemdir um hvort að hann er syngjandi þetta lag til Sigmundar Davíðs og blikkandi hann í mannþrönginni. ég gat ekki betur séð að það er einn þarna í þessum hópi sem er keimlíkur honum.
Poppgoð í kreppu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.4.2009 | 07:06
Gúgú og gaga
Getur verið að hljómsveitarmeðlimir Queen hafi verið með bandarísku söngkonuna Lady Gaga í huga- þegar þeir sömdu lagið Radio ga ga.
Hvað skyldi systir hennar GÚ GÚ segja við þessu ? Eins og þið vitið væntanlega eru þær GÚ GÚ og GA GA alveg snaróðar þegar þær fara út að skemmta sér og mála bæin rauðan.
Vill ekki nota sitt eigið nafn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 07:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.2.2009 | 06:02
strengjabrúðan
Stúlkan
Sjáið! hvað stúlkan hún stendur sig vel
sem strengjabrúðan hans
sem dásamlegi dansarinn
í draumi sérhvers mans
Sjáið! hvað gyðjan er glaðlind að sjá
sem gullið stofustúss
Djásn síns mans og stórstjarna
hans strengjabrúðuhúss
Hún er ljós
hún er flögtandi engill
hún er rós sem að nærist á ást
Hún er hlý
eins og hjartnæmur logi
vonar sem að lætur menn þjást
Sjáið! hvað stúlkan er eldheit af ást
elskar heitt sinn mann
Reynist honum uppfyllt ósk
uns hún kirkir hann
Sjáið! hvað heillin mín hugsar allt út
er hylmir sína slóð
Með látbrögðum hún leikur sig
lítið sorgmætt fljóð.
lag og texti Brylli
<-Lagið er í spilaranum, numer 2
Tónlist | Breytt s.d. kl. 06:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.8.2008 | 22:04
Hamskiptin ógurlegu.
Ég get brugðið mér í allra kvikinda líki. Stundum minni ég meira á strandaglóp sem hefur búið á eyðieyju alla sína hunds og kattartíð en nútímamann nokkurn tíman. Það mætti halda að ég sé "Bosníu hersóvkívíu" hershöfðingi á flótta undan lögum réttvísarinnar eða sé hrjáður af skærafælni. Það er stundum sem steinöldin hafi hent mér inn í nútímann og skilið mig þar einan eftir eins og hvæsandi ljón.
...Dr jekyl, mister Hyde...
Útlitið mitt er ámóta þversagnakennt og íslenska veðrið. Munurinn er jafn ólíkur og dagur og nótt, íslenskur vetur og íslenskt sumar, háflóð eða fjara.
Sænsk vinkona mín, sem er í heimsókn hjá mér í nokkra daga, snyrti örlítið á mér skeggið. (<----------- Lagið Diskó- Abba -dísin-mín er um hana í bloggdiskagræjunum mínum, lag numer 2) Það verður ekki annað sagt en að við raksturinn hafi útlitið á mér breyst lygilega mikið ? Ég lít ekki lengur út eins og Robinson Crusoe heldur er ég skyndilega farin að líkjast breskum handrukkara eða kvenlegum hommatitti.
-Sjáðu hvað ég hef breyst bara við það að þú rakaðir örlítið á mér skeggið ? Sagði ég við vinkonu mína
-Já þetta er ótrúlegt ég hef aldrei séð neitt þessu líkt
Svaraði vinkona mín með sænskum hreimi og átti ekki orð yfir breitingunni.
..Ekki samt örvænta..
því
Ég hef ekkert breyst.
Eins og þið heyrið í þessu lagi
þá er ég alltaf jafn
Rómantískur
Tónlist | Breytt 7.8.2008 kl. 03:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
5.8.2008 | 07:07
Kúrekinn ætlar ekkert að hætta olíufáksbrölti sínu í Afganistan.
Sumt virðist ekki breitast í þessari veröld grimdarinnar eins og þessi texti minn sýnir og sannar. Ég samdi textan um Goerge Bush á sínum tíma og hvernig heimsmálin litu út fyrir mér. Bandaríkin eru enn í sama brölti sínu í Afganistan og Írak undir fölskum forsendum. Hver heilvita maður veit að þetta er olíustríð en ekki til þess að uppræta hryðjuverkaógn.
Kúrekinn.
Sérð kúrekann í vestrinu með byssubelti í hendi
og bandarísku martröðina í hverjum sjónvarpssendi
misnotandi Jesú Krist og misnotandi skrílinn
marserandi í leitinni að olíu á bílinn
En Kalli Rove..
Það er heilahvelið hans
þessa hryðjuverkamans
Sem býr til indíána úr araba og ógn úr hverju horni
andskota úr friðarsinna og bull úr visku korni
hann Kalli Rove
Kínakarlinn rís á bak við komanista merki
og kúrekin er hræddur við hans miklu vaxtarverki
er sígur stóran skammt af sínu ofsatrúardópi
með soghljóðum í nösina með halleiajúlía hrópi
kúrekinn
hann hræðir bandaríska bjánann
hann brennir smánarblett á fánann
er sannfærður að hann sé sjálfur nafli himinsgeimsins
hafin yfir aðra menn og hungur þriðja heimsins
Kúrekinn
Og Kúrekin hann sólundar nú tindátunum sínum
með Samma frænda í veisluhaldi handa auðvaldssvínum
og Hitlerannir fjölflaldast og verða að forstjórunum
en friðsamlegu Jesúsannir enda á geðstofnunum
Kúrekinn
hann bjó til þúsund ára ríkið
hann er skratti í mannsins líki
með nýrri gerð af þinghúsbruna hann setti um sjónaspil
en síðan varist ógnvaldið sem hann bjó sjálfur til
Kúrekinn
myndbandið við þetta lag er hér...
Lag og texti ..
Brynjar Jóhannsson.
Framlengja dvöl í Afganistan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.7.2008 | 14:48
Fígúrur lífsgæðakapphlaupsins...
Minni íbúð-
ódýrt vískí-
lítil innkaup
og hippakonur
Mig langar að votta skuldunautum vors lands samúð mína, með einlægri von um að þeir drukkni ekki ofan í skuldafeninu. Helst vildi ég að þeir nái að sigla milli skels á og báru í þessum ólgusjó íslensks efnahagslífs og að veski þeirra verði ekki tæmt í einni af ránsferðum verðbólgudraugsins.
-búúúúúúúú komdu með peninganna þína eða þú færð ekkert að borða -
Gamanið væri orðið einum of grátt ef skuldunautarnir eiga ekki fyrir innborgun á íbúðinni sinni og geta ekki leyft sér mikið meira en að bora í nefið.
Ég skal halda inni í mér hlátrinum
og láta naumhyggju-skoðun mína sem minnst í ljós.
Lagið er hér...Veldu hlustið og ýttu á lagnúmer 4 á geislaspilaranum
Fígúrur lífsgæðakapphlaupsins
Er klappstýra lífsgæða kapphlaupsins hvetjandi styður
sinn kappa sem bíður í rúmi að vekjarinn flauti
Þá Barbí er barinn en Ken hann er urðaður niður
með bókhaldareikningum lögmanns og gjaldkera tauti
grasasni tískunnar gulrætur sölumanns bryður
sem gráðugan Mammon í bæn sinni þrálátt tilbiður
og bjallan hún glymur og Súpermann setur skikkjuna
sem svífur af stað fellur strax ofan í valinn
og kúrekar viðskiptalífsins þeir berja í bikkjuna
sem ber þá af stað eins og eimreið um táradalinn
og konungur hégómans fellur í hengingarlykkjuna
og hrókur alls fagnaðar sekkur í alkahóldrykkjuna
steinrunnar verkalýðshetjunnar vakna úr dvala
sem vonast um bættari lífskjör í tvístraðri einingu
og karlinn í kotinu hleypur að verðbréfa sala
og kaupir sér hlut í íslenskri erfðargreiningu
snobbhænur lyfta upp nefi og lofthanar gala
er um lífsgæðakapphlaupsins ávinning byrja að tala
og lýðurinn glottir og kóngurinn vandar ei kveðjurnar
er karlinn í brekkunni skrattanum skemmtir með söngvum
og riddarar íhaldsins taka úr slíðrunum sveðjunnar
sem slá mót lágstéttar hermaurum hnöktandi í öngum
er skjaldbaka hversdagsins sporar nær spektlaus um leðjuna
einn sparigrís bætir við hlekkjum í verslunarkeðjuna
mig langar að þakka ákveðnum aðilum fyrir innblástur í þetta
fallega ljóð sem er ort til yfirborðskenndar íslenskrar þjóðarsálar en viðkomandi einstaklingar eru.
Barbí dúkkur með aflitað hár
prinsinn á hvíta porsinum
jakkaklæddir hvítflippar
tískufrík og barmellur
súkkulaðibrenndir líkamsræktartrukkar
módel með anoerexiu
íhaldið í öllum flokkum
menntahyskið aura púkar
snobbpíkur gáfnarembingspakk
og forstjórinn á flotta jeppanum
að lokum langar mér að segja eitt mikilvægt sannleikskorn,
en það er: fegurðin skiptir ekki máli heldur peningarnir
taka lán kaupa bíl kaupa hús vera í tísku veisla föt veisla meira meira meira
innrætið skiptir ekki máli heldur innrætið útlitið leikföngin og lífsstíllinn
Erfiðleikar hjá húskaupendum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Brynjar Jóhannsson
Tónlist
www.brylli.com
Heimasíðan MÍN..
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Halla Rut
- Anna Einarsdóttir
- Kristinn Theódórsson
- Signý
- Kreppumaður
- Fríða Eyland
- Heiða Þórðar
- Bara Steini
- Marta B Helgadóttir
- halkatla
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sema Erla Serdar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Björgvin
- Bjarki Tryggvason
- Jón Þór Ólafsson
- Brissó B. Johannsson
- Tinna Jónsdóttir
- Sigurlaug Kristjánsdóttir
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Ásgerður
- Brattur
- Jóna Á. Gísladóttir
- Bergur Thorberg
- Viktor Einarsson
- Agný
- Lady Elín
- Guðfríður Lilja
- Gunnar Axel Axelsson
- Óskar Helgi Helgason
- Sigurður Viktor Úlfarsson
- Baldur Fjölnisson
- Matti sax
- Ingunn Jóna Gísladóttir
- kiza
- Huld S. Ringsted
- www.zordis.com
- Brjánn Guðjónsson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Geir Bjarnason
- Sigríður Hafsteinsdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Jón Steinar Ragnarsson
- Stríða
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Georg P Sveinbjörnsson
- S. Lúther Gestsson
- Markús frá Djúpalæk
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Ólöf Anna Brynjarsdóttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sævar Einarsson
- Gullvagninn
- Kolgrima
- Óskar Þorkelsson
- Helga Dóra
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Óskar Arnórsson
- Kristín Jakobsdóttir Richter
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldóra Rán
- Helga Magnúsdóttir
- Guðrún Lilja
- Mía litla
- Íris Arnardóttir....vitringur
- Þórhildur Daðadóttir
- polly82
- Andrea
- Hdora
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Brynja skordal
- SeeingRed
- Benna
- Villi Asgeirsson
- Svartagall
- Alfreð Símonarson
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Skattborgari
- Aprílrós
- Mál 214
- Bwahahaha...
- Isis
- persóna
- Vilhjálmur Árnason
- Þráinn Jökull Elísson
- Vefritid
- Guðmundur Óli Scheving
- Hlédís
- Aldís Gunnarsdóttir
- Eva
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- brahim
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar