Niðurskurður byrjaður hjá mér og fer bráðum að ljúka

 Eins og ég skil Lilju Mosesdóttur þingmann vinstri grænna þá ætlast hún til að alþingismenn taki ábyrgð á gjörðum sínum og alþingi stjórni landinu á faglegum forsendum. Ég þurfti að hlusta á þessa frétt 25 sinnnum til þess að vera viss um að hún að meina þetta og endingu urðu viðbrögð mín þessi.

 

 - Shocking -->Sideways-->Sick-->Crying-->Tounge-->Wink-->Smile-->Happy-->LoL-->Grin-->W00t ->

BWHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHAHA

 Hvernig er nú hægt að ætlast til þess að alþingismenn beri ábygð á gjörðum sínum ? Er það nú ekki full mikil bjartsýni miðað fyrri reinslu að þeirra störfum að þeir geri eitthvað af viti ? 

 
Niðurskurði á geisla diski fer að ljúka. 

 

 

 

 Niðurskurði á geisladiki mínum fer bráðum að ljúka. Ég réði stórsöngvarann (194cm) Böðvar Rafn Reynisson( betur þek

ktur sem Ibbi í Dalton) Sem hljóðmálaráðherra á geisladisknum mínum og hinn margreinda Birgi Jóhann Birgisson  sem hljóðblöndunarforsetisráðherra. Undan farið hafa þessir meistarar staðið í niðurskurði á lögum mínum og hefur vinna þeirra gengið með ágætum. Rétt eins og Lilja Mosessdóttir setti ég fram þá kröfu að hljóðblöndun yrði með faglegum hætti og rÍsa þeir félagar klárlega undir þeim kröfum og gott betur en það.

 

á næstunni mun ég fara með lagið sem ég vil leifa ykkur að heyra í útvarpsspilun en það lag ber heitið Lækjatorg og er sungið af góðvinkonu minni  Þórunni Pállínu jónsdóttur (Tótu).


Lækjatorg..


Það var fámennt niðr’á Lækjatorgi skuggi á húsum ský og stroka
er ská á móti klukkunni með biomjólk og búðarpoka
Hann labbaði í stuttum frakka, lopapeysu og strigaskóm
og leit til hennar feimnislega og heilsaði með hlýjum rómi

Hún var hversdagsleg og nýmáluð með vellagaðan varaglossa
Vafin trefli í svörtum kjól rauðri peysu og klædd í klossa
sem Öskubuska í leiðangri í leitinni að nýjum skóm
Hún leit til hans í fyrsta sinn og heilsaði með hlýjum rómi

Í dagdraumum hvors annars voru
Um stefnumót sem aldrei varð
Kossa sem þau aldrei hafa kysst
Og þráðu að eiga næturgaman
unaðstíð sem aldrei kom
Þessir elskendur sem alloft hafa hist
en aldrei talast saman eða kysst

Hann stúderaði í Háskólanum heimspeki og lærði mikið
Var hugsuður með mikla dýpt en alltof innrænn fyrir vikið
fannst þarna á Lækjatorgi að þau höfðu áður hist
og hugsanlega í öðru lífi þúsund sinnum kysst

Hún var í kvöldskóla að klára stúdent starfaði sem búðardama
stundaði bæði joga og trimm og vissi alllt  um Dalai Lama
fannst þarna á Lækjatorgi að þau höfðu áður hist
og hugsanlega í öðru lífi þúsund sinnum kysst

Í dagdraumum hvors annars voru
um stefnumót sem aldrei varð
og kossa sem þau aldrei hafa kysst
Þau voru í góðu augnsambandi
og hefðu orðið frábært par
Þessir elskendur sem alloft hafa hist
en aldrei talst saman eða kysst

 

 


mbl.is Allt tekið með í reikninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært!

Lilja (IP-tala skráð) 30.5.2009 kl. 09:06

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Maður er alltaf skeptískur, en þetta var skemmtilegt lag með frábærum texta. Ef ég væri á landinu myndi ég alveg gera alvöru myndband fyrir þig.

Villi Asgeirsson, 30.5.2009 kl. 20:38

3 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Já, þægilegt lag að hlusta á, afslappaður og góður söngur hjá Þórunni. Hvenar kemur svo diskurinn út?

>Væri nú ekki samt snilld að gefa út á gamla vínilinn eða kassettu?

S. Lúther Gestsson, 30.5.2009 kl. 21:12

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Gunnar frændi og Lilja ...

Þakka ykkur kærlega fyrir hrósið ...  

 Villi... Ég tek því sem hrósi :) . Það væri sannur heiður að fá að vinna með hæfileikaríkum listamönnum sem eru á öðrum sviðum en ég sjálfur... mér finnst ekkert kemmtilegra en að blanda listrgreinum saman. Þú veist allavega af mér... ef þú átt leið  á klakan.

S-luther..

Ég er ekki komin með útgefenda en ég er að vonast til að með útvarpsspilum þá kvikni áhugi á því hjá þeim.

 Væri nú ekki samt snilld að gefa út á gamla vínilinn eða kassettu?

Ég kom með hugmynd að líkja eftir gamla vínilsándinu á þessari plötu....  svo það kæmi vel til greina hvað mig varðar. ..... Reyndar er ég efins um að framleiðendur myndu vilja framleiða slíkt... því blessaður gripurinn verður víst að getað selst til að þeir eru til tals. 

Takk kærlega fyrir komentin...  

Brynjar Jóhannsson, 30.5.2009 kl. 21:34

5 identicon

Heill og sæll; minn forni spjallvinur - líka, sem þið önnur, hér á síðu !

Brynjar ! Þakka þér; þetta ágæta framtak, en, ..... jafn eldfimt mál, sem koma hins ágæta Dalai Lama, hingað út til Íslands, og skírskotun til hans stífni, gagnvart hinu órjúfanlega Miðríki (Kína), hefði mátt liggja á milli hluta, í þessum annars ágætu ljóðlínum.

Það vill nú svo til; að það er meginmarkmið bræðra minna, í Kuomingtang hreyfingunni; hreyfingu þjóðernissinna, í Kína, að Tíbet verði áfram, undir Peking stjórn, þá þeir komast til valda á ný - þegar Rauðliðarnir hrökklast frá völdum, ágæti drengur.

Með; hinum beztu kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 03:06

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Heill og sæll, þér yðar skemmtileg- herra Óskar Helgi Helgason-  bloggvinur- alltaf gaman að sjá þig hér

 Sögupersónan í textanum sem þú talar um,  er hversdagsleg stúlka í venjulegri vinnu en er mikið fyrir nýaldaspeki og með brennandi áhuga fyrir Dali lama. Ég ætti að vita það þar sem ég bjó þessa sögupersónu til sjálfur.  Það eina sem mig langaði að gera -- kæri bloggvinur- var að gera ástina hversdagslega og fjalla um hana út frá hversdagslegu sjónarhorni í stað þess að klæða hana í einhver spariföt. Boðskapurinn textans er fyrst fremst þessi-- taktus sénsin ef þú færð tækifæri <----

Eins og kemur sterklega í þessari miðjusettningu lagsins.  

 
"Þessir elskendur sem alloft hafa hist

en aldrei talst saman eða kysst"

Ég get lofað þér ágæti vinur að polítik í kína var mér ekki ofanlega í huga þegar ég samdi þennan texta það er mikið víst. 

Brynjar Jóhannsson, 31.5.2009 kl. 04:57

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

skemmtilegt lag og góður texti.

fín hugmynd hjá þér að innleiða smá vínilskít í þetta. það eru til VST plugin sem ná að framleiða þann skít með miklum ágætum.

Brjánn Guðjónsson, 31.5.2009 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband