Pólitískir valdasauðir og aurapar, Bónussvín.

Af fenginni reynslu vitum við Íslendingar að af aurum geta menn orðið apar. Okkur er kunnugt um að alþingismenn sem hafa verið of lengi við völd breitast úr venjulegum mönnum í gerspillta valdasauði. Því finnst mér hálf furðulegt að við eyjaskeggjar séum að hæða Nígeríumenn fyrir að ásaka geit um bílaþjófnað. Hvað er svona ólíklegt við það að geit hafi framið bílaþjófnað í Nigeríu þegar það er fyrir löngu sýnt að þeir sem ullu bankahruninu hérlendis eru furðudýr ? Dýrin eru kvikindi eins og

Fjármálaeftirlitsasnar- Útrásarapar-Bónussvín- Framsóknarrollur- Íhaldssauðir- Valdarefir- Helblá kapitalistavaldssvín - Viðskiptanöðrur- Seðlabankastjóra-krókudíll- Norskur skógarköttur-

Ásamt öðru rotnu föruneiti.

Peningar og völd eru svartigaldur sem breittu þessu fólki hérlendis í dýrsleg kvikindi sem svifust einskyns og gera allt til að ríghalda í stjórntaumanna. Engin þorði svo sem að lyfta litla fingri gegn þessu skítapakki því ellega hefðu puttarnir verið étnir af þeim. Ég vona samt að okkur takist að sópa þessum óargadýrum úr sínum básum því að skítafýlan er að gera út af við okkur landsmenn.
Ég lýt ekki á það sem sigur fyr en við höfum losað okkur við öll þessi óargadýr. Fyrst Nigeriumen ásaka geit fyrir bílaþjófnað þá getum við ásakað þessi kvikindi sem stjórnuðu yfirpeningum og landi herlendis fyrir bankahrun. 

 

Það er mín skoðun. 

 


mbl.is Þjófur breytist í geit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ekki svo vitlaust hjá þér

Jónína Dúadóttir, 24.1.2009 kl. 15:32

2 Smámynd: Halla Rut

Hvort kemur á undan; eggið eða hænan? Ertu viss um að peningarnir hafi gert mennina svona? Var það ekki heldur peningarnir sem kölluðu þann rétta "karakter" fram.

Með ást og ....

Halla Rut , 24.1.2009 kl. 23:55

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Jónína og tinna takk fyrir innlitið..

Halla þetta er góð spurning.

Ef ég skoða þetta frá heimspekilegu sjónarhorni ... þá sé ég þetta þannig að viss umhverfi henta sumum betur en öðrum. Siðferðislega sterkt umhverfi á málefnalegum grundvelli hendar mér betur t.d en einhver þyngarlaus sýndarveruleiki viðskiptalífsins.  Við vissar aðstæður er betra að vera siðlaus eins og í vissum viðskiptaheimi eins og t.d wall street eða sem stjórnandi stórs banka, en heiðanlegur kórdregnur eins og ég.  ÉG vil meina að þannig hafi viðskiptaheimurinn verið þegar góðærið var orðið uppblásnara en hugsast getur. VIð slíkar aðstæður ... dregur peningagæði upp í fólki það vesta upp í þeim. Velgegnin verður að spilafíkn og viðkomandi ráða ekki lengur við sínar dýrslegu kvatir.

Ég var að lesa athyglisverða grein hjá Óskari ... sem lýsir þessu mjög vel... hvernig menn sem stjórna fyirrtækjum séu oft siðlausir menn sem yrðast einskyns.  

Brynjar Jóhannsson, 25.1.2009 kl. 00:38

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Að draga saklaus dýr inn í pólitík á Íslandi er ekki forsvaranlegt.  Dýrin hafa ekki þá græðgi til að bera sem komið hefur okkur í þessa stöðu.

En skil samt "pointið".

Anna Einarsdóttir, 25.1.2009 kl. 00:52

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ætlaru að fara að segja mér að þetta séu ekki valdarefir og aurapar Anna ?

Brynjar Jóhannsson, 25.1.2009 kl. 01:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband