Nú er mér öllum lokið! !"#$%&/()=

 

 Er Börgólfur Thor Björgólfsson ekki einn af fyrrum eigendum Landbankans?

 

Er þessi fjármálaóreiðumaður því ekki þess valdandi að skuldarklafi sé í fremsta hlunn að falla á íslenska samfélagsþegna ?

 

Hversvegna í ósköpunum eru eigur hans ekki gerðar upptækar og færðar Bretum og Hollendingum ?

 

Og afhverju í andskotanum fara ekki Bretar og Hollendingar- fyrst í kröfumál við Björgólf Thor Björgólfsson og rígja hann peningalega inn að skynni áður en þeir krefja íslendinga um pening ?

 

Hversvegna er þessum stórþjóðum svo mikið í mun að knésetja sauðsaklausan íslenskan almúgamanninn en siga ekki öllum sínum færustu skattböðlum á þennan mann 

 

 Það er eitthvað mjög... mjög... mjög... mjög... mjög... mjööööööööööög myglað mjöl ofan í skuggahornum viðskiptaheimsins og þá sérstaklega hja Bretum og Hollendingum ef þeir láta þennan mann leika lausum hala...En siga á íslensku þjóðina öllum sínum svívirðilegustu samningaúlfum.

 

Ég tel það skilyrðislausa heimtingu íslendinga að hver einasta króna þessa mans verður gerð UPPTÆK og í það snarasta. Sama á við alla þessa fjármálaóreiðumenn - Jón Ásgeir og alla hina.

 

 Ég legg því til að við ráðum Vladimýr Pútín til þess að aðstoða Evu Joly við rannsókn á íslenska bankahruninu. Eva sér um lagalegu hliðina en pútin sér um að gera eigur þessara manna upptækar. Pútíni tókst nefnilega að hrifsa undir sig eigur olíugreifanna með ákaflega harkarlegum hætti á sínum tíma og er því óumdeilanlegt að hann sé manna hæfastur til starfans.

 

Þá gætum við þakkað honum fyrir Pútin fyrir vel unnin störf, selt síðan eigur þessara manna til kröfuhafa og látið þá sem þeim skulda að yfirtaka fyrirtækin þeirra.

 

 


mbl.is Björgólfur að missa Actavis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er málið, taka ránsfenginn af þessum helvítins glæpamönnum, hverja einustu krónu. Og í fangelsi með þetta drullupakk það sem er eftir af ógeðslegri æfi þeirra.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 16.1.2010 kl. 20:22

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

og Láta þá deila fangaklefa með 2 metra háum- samkynhneigðum handrukkurum- sem urðu gjaldþrota vegna bankahrunsins.

Brynjar Jóhannsson, 16.1.2010 kl. 21:30

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hringjum í Pútín

Jónína Dúadóttir, 16.1.2010 kl. 21:44

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Nú Steingrímur er búinn að kalla Alþingi saman á mánudag til að fá samþykkta ríkisábyrgð fyrir Landsbankann svo hægt sé að  lána honum B.T.B fyrir sínum hlut í þessu gagnaveri.... Er forsetinn ekki í fríi ennþá... svo varamaður mun hugsanlega kvitta fyrir sem yrði þá hver.... ef þetta fær samþykkt.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 16.1.2010 kl. 22:31

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Á meðan  "Björgólfur Thor Björgólfsson" er valdurinn á Icesavedeilunni og okkur sé gert það að borga- þá tel ég með öllu réttlætanlegt að við höfum uppi á öllum hans eigum og gerum þær upptækar til þess að fylla upp í þetta hyldjúpa skuldargat.

Mér finnst oft gleymast... að það eru þessir menn-útrásarvíkingarnir- sem ullu þessu bankahruni. EKki núverandi ríkisstjórn nema þá mögulega samfylking með því að lofa því að standa við skuldbindingarnar.

Ég vil BYLTINGU gegn þessum gaurum og þá ser í lagi Björgólfi sem hvu enn vera með ríkari mönnum heims. 

Brynjar Jóhannsson, 17.1.2010 kl. 01:32

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

bara ein ástæða.

það er toppurinn að vera í teinóttu.

Brjánn Guðjónsson, 2.2.2010 kl. 20:23

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Björgúlfur Thor Björgúlfsson er gjaldþrota. Stærsta persónulega gjaldþrot Íslandssögunar. Það er líka heimsmet að vera einn af 50 ríkustu mönnum heims samkvæmt Forbes listanum, og þurfa svo að fara með hattinn til félagsmálastofnunnar.

Íslandsmet líka. Hann hefur aldrei verið kallaður fyrir.

Óskar Arnórsson, 5.2.2010 kl. 19:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Jóhannsson

Höfundur

Brynjar Jóhannsson
Brynjar Jóhannsson
Ég heiti Brynjar jóhannsson og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Martraðaprinsinn og er það útgáfufélagið Sarasvati sem gefur mig út.

Tónlist

www.brylli.com

Heimasíðan MÍN..


Tónlistarspilari

- Antymedro- sexual-lokamix

Nýjustu myndböndin

Gróa á Leyti

Kúrekinn

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...ahaugurnytt
  • DSC_0040
  • Pjakkurinn
  • n556750566 5295516 7415
  • 2cats_543477

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 184845

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband